bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 17:07

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1 ... 7, 8, 9, 10, 11  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 02:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ef þér líður eitthvað betur þá finnst mér Mclaren ljótur bíll...
jaguar jx220 finnst mér gott dæmi um fallegan ofurbíl...

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 09:06 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Quote:
mikið er gott að það eru ennþá menn hér sem mæla af viti !


Hér eru bara eðlileg og að mér þótti skemmtileg skoðanaskipti fram að þessu. Það er nú ekki sjálfgefið að allt nýtt sé betra, það er ekki sjálfgefið að meira sé betra - nokkuð sem mér sýnist loða dálítið við yngri mennina á spjallinu.

Annaðhvort er verið að misskilja mann hérna all verulega eða þá að það er einhver réttrúnaður sem maður á að fylgja hérna og það líkar mér alls ekki. Það er mín skoðun að BMW eigi af fylgja því sem mér finnst vera þeirra fílósófía og ég er búin að færa fyrir því rök. Ég hef reyndar sagt að eðlilegt sé að hafa vel útbúna lúxusbíla og það er ekkert að því en ENN OG AFTUR þá gengur það bara ekki yfir alla línuna.

Ég held einmitt gagnstætt ykkur að BMW menn séu einmitt að átta sig á þessu og séu að bæta úr þessu núna með nýjum E46 CSL, Bini t.d. og tilvonandi 1 series sem eftir því sem segir um frumgerð þess bíls er NÁKVÆMLEGA það sem ég er að óska eftir, sömuleiðis mun nýja sexan vera nokkuð létt ásamt Z4 þó ekki séu slegin nein met í þeim efnum.

Það eru svo mörg dæmi um það að fyrirtæki fari í þann pakka að framleiða allar gerðir bíla fyrir allar gerðir kaupendahópa og það endar alltaf með útþynntum bílum af þeim gerðum sem voru vinsælastir og bestir. Svo byrja framleiðendurnir að tapa peningum á þessu og þá fer allt til fjandans.

Mér finnst líka dálítið merkilegt að sjá menn gagnrýna VW fyrir Phaeton bílinn og Porsche fyrir Cayenne jeppann en þetta er nákvæmlega það sem BMW gerði þegar þeir komu fyrst með sjöu og svo síðar með X5 og nú X3.

Auðvitað vilja menn ekki missi af auðfengnu fé, og ekki bendir neitt til þess að menn séu farnir yfir strikið ennþá. BMW má bara ekki gleyma upprunanum og sínum kjarna bílum sem eru 3 og 5 línurnar.

Hvað varðar gullár BMW þá finnst mér þau nú vera þau ár þegar BMW átti sigurvegara í kappakstri og að mínu mati eru gullárin þegar 3.0 CSL, 2002 Tii og M1 voru í framleiðslu.
Síðan koma sveiflur en BMW toppar aftur með E28 M5, E30 M3 og svo með E34 M5 að síðustu. E36 M3 var alltaf góður en ekki frábær eins og hinir.

PS... Þá finnst mér þetta ekki snúast um trúarbrögð svipað og í fótboltanum - heldur finnst mér að BMW eigi að standa með sínum kúnnum, annars fer kúnnin bara annað. Einmitt þessvegna er svona áhugamál svo mikilvægt þar sem allir ættu að geta sameinast um það að hafa áhuga á BMW á hinum ýmsu tímaskeiðum en ekki vera litnir hornauga fyrir það að fylgja ekki Toyota norminu, trúandi í blindni að þar sé allt best.

Svo vil ég nú að lokum minna á það að ég hef verið duglegur á þessu spjallsvæði við að verja Chris Bangle, en mér finnst hann einmitt vera að endurskapa útlitslega sérstöðu með BMW og ég tel að þessir bílar muni vekja athygli í framtíðinni ólíkt E46 og E39 sem eru að mínu mati minnst spennandi og minnst einkennandi BMW bílarnir útlitslega. Ég veit þeir eru góðir og að mínu mati bestu bílarnir í sínum flokki í dag (ég hef keyrt helling af þessum bílum) og E39 er jafnvel talin besti bíll í heimi - en þeir eru ekki nógu afgerandi BMW-legir útlitslega að mínu mati. Þetta er að breytast með Chris Bangle.

Að lokum læt ég fylgja með mynd af series 1 bílnum og stikla á þeim þáttum sem gera hann spennandi fyrir mig.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 09:13 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Myndin gleymdist af Series 1 concept.

Image
Image

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 09:16 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég vil líka bæta því við að mér finnst þessi bíll með því flottara sem ég hef séð í dag og innréttingin er algjörlega GEÐVEIK og sýnir loksins nýja hugsun í innréttingum, ekki bara nýstárlega útfærslu á sömu gömlu hlutunum.

Innréttingin er úr áli, neoprene og leðri og er "hangandi" og hreyfanleg...

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 09:25 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
En þessar umræður eru alltof mikið búnar að ganga út frá því hvað þér og hinum finnst skilurðu. prófaðu að lesa aftur í gegnum textann sem þú ritaðir hér fyrir ofan og þá sérðu að í hverri málsgrein má finna orðin mér finnst.

Svo er það náttlega annað mál að fyrirtæki græða nebblega (oftast) ekki á því að teygja framleiðslulínuna of mikið. Samkvæmt hugmyndum markaðsfræðinnar þá er það ekki gott að bjóða stóra Sjöu sem pabbinn hefur efni á og lítinn Ás sem 20 strákurinn hans hefur efni á. Það gerir það að verkum að pabbinn sem á meiri peninga en strákurinn vilji eyða fullt af peningum í sama vörumerki og 20 ára sonur hans á.

En þetta var bara svona svo menn átti sig aðeins á því að það þýðir ekki bara að bjóða uppá kannski 10 mismunandi línur til að þóknast ölllum!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 10:08 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er nú reyndar mjög merkilegt að lesa þennan þráð.

Mal3 póstar að tólfan í F1 sé magnaðasta vélin sem komið hefur frá BMW, kannski vegna þess að hún er í magnaðasta bíl í heimi og er öflugasta vél sem BMW hefur látið fara frá sér í framleiðslubíl. Þá póstar Gstuning spurningu um afhverju hún sé best, vélin í E39 M5 sé best – eðlilega hlýtur þetta að ýta af stað miklum umræðum.

Spjallið gekk út á þetta að síðu fimm, reyndar með útúrdúrum og samanburði á hinum ýmsu vélum og allt í góðu með það. Neðst á síðu fimm kommenta ég á lengd þráðarins og útskýri mitt sjónarhorn og náði þar með að drepa umræðuna um 5 lítra V8 vélina VS F1 og E34 M5.

En þá berst hin nýja V10 vél í M5 í umræðuna, allt er þetta mjög eðlileg og skemmtileg þróun á þræðinum. Síða 6 og 7 fjalla svo um þessa þróun og að næsti M3 fái V8 vél. Þá var mér nú öllum lokið því ég virðist vera eini maðurinn hérna sem finnst þetta hin mesta vitleysa, þetta er á góðri leið með að enda í strokkakapphlaupi og í þeim efnum virðist nú Caddillac hafa vinninginn eða Bugatti Veyron sem eru ef ég man rétt með 16 strokka velar… bara silly. En við það hófst umræðan um léttari bíla og ég er fylgismaður þeirrar stefnu og því fór sem fór.

Arnib benti réttilega á að ný módelnöfn kæmi í stað fyrir ofvöxnu bílana og að í dag væri Polo kominn í stað þess pláss sem Golf fyllti fyrir 10 árum síðan. Mikið rétt en samt undarleg þróun því eftir 20 ár verður Golf líklega orðin jafn stór og Phaeton og entry level bíllinn verður VR6 með 350 hestafla vél miðað við þessa þróun…

Á síðu 8 fór umræðan út í design philosophy BMW. Mjög skemmtileg umræða ennþá en menn greinilega ósammála um sögu BMW og líta hana mismunandi augum. Það er mjög eðlilegt en á þeim tímapunkti verður maður að kúpla yfir í “mér finnst” þar sem um túlkanir á stefnu BMW er að ræða.

Allt var þetta í góðu en svo er látið að því liggja að maður sé að rakka BMW niður og fylgi ekki rétttrúanð síðunnar. Ég blæs nú bara á það. Það eina sem ég var að reyna að koma á framfæri er að BMW á að vera fremst í nýjungum á markaði, ekki bara í vélbúnaði heldur líka í hönnun sem oft hefur verið brautryðjandi hjá þeim. “Mín skoðun er sú” að hönnunarlega séð hafi BMW verið í lægð frá E46 til E39 (og þá á ég við útlitslega) og í dag séu þeir í mikilli sókn.

“Mér finnst” – kemur nú bara fyrir í loka svarinu mínu og bara vegna þess að ég er að verjast hér og verja MÍNA skoðun.

AÐ lokum vil ég benda á það að það er ekki sjálfgefið að maður vilji bara limma og jeppa þegar maður verður eldri. Það er kannski þannig á Íslandi en víðast í evrópu kaupir folk bíla með annan tilgang í huga en að hafa hann sem stöðutákn. Þessvegna kemur svo margt fleira til greina en limmar og jeppar.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 10:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
BMW að mér skilst hefur aldrei á betri Gullár en 1985-1993 ef við tölum um kappakstur því á þeim tíma náðu þeir að smíða sigursælasta keppnisbíl sem upp hefur komið á jörðinni, E30 M3 vann yfir 1000 DTM keppnir, og svo tugi þúsunda aðra keppna allt úr sama bílnum með mismunandi útfærslum, og aldrei meir en 2,5 vél 4cyl og það er enn verið að keppa á E30 M3 í dag, og hann vinnur ennþá

Ef við tölum um selda bimma þá eru gullárin búinn að vera síðasti áratugur, því BMW hefur blómstrað,

Ef við tölum um tæknilega góða og vel hannaða bimma þá eru gullárin núna,

BMW á 3línuna besti bíll í sínum flokki mörg mörg ár í röð
Sama með 5línuna og 7línuna, svo hafa M bílarnir alltaf sópað öllum verðlaunum sem hægt er að keppa um,

BMW veit að þeir eru bara svona góðir og vilja stærri bita af kökunni, þess vegna bjuggu þeir til Z3, X5 og nú er að koma 1lína, 3lína, 4lína, 5lína, 6lína, 7lína, X5, X3, M2, M3, M4, M5, M6, X 4,6Sport og Z Roadster og M coupe,

Allir líta á BMW sem keppinaut sinn, það er bara svoleiðis,
BMW núna er það sem Mercedes var einu sinni, kóngurinn á hæðinni,
Mercedes hefur droppað því að þeir geta ekki keppt við BMW, hafa meira að segja tapað gegn Lexus í mælingum bílablaða

Audi, VW og ú name it er að ströggla að halda við BMW, BMW er ekki að fylgja eftir heldur að stíga á undan, t.d
BMW kallar í Svíþjóð tóku nýja M5 bílinn(1999) og pittuðu honum gegn nýjum Audi A6 sem var meir en 400hö og túrbo og þannig meir en 500nm tog, Bimmin vann samt í upphröðun, millihröðun og ég veit ekki hvað,
Ég á myndband af Novak M5(500hp) að keppa við tvo Porsche 911 Turbo tjúnaða og að vinna, com´on Porsche Turbo er besti sportbíll í heimi, ég á nefninlega mynband af honum að keppa við vettu, rx7, NSX, EVO VI, Skyline, og Ferrari Modena 360,
Hann vann auðvitað

En þegar M4 kemur sem á að vera skrefinu nær sportbíl heldur en M3 þá fer Porsche að skjálfa í lappirnar þegar fólksbílaframleiðandi fer að stíga fram úr þeim,

Mér finnst : Catherham 7 flottasti og besti bílinni í heimi, 140hö svoleiðis bíll er jafn að öllu leiti og V8 SLK með Compressor
Mig langar í svoleiðis bíl og mun fá mér svoleiðis bíl


Ef við förum aftur að topicinu þá er bara hægt að keppa tveim vélum út frá nokkrum sjónarmiðum,

Fleiri hestöfl á líter
Meira tog á líter
Læggri bilanatíðni vélar
Eyðsla per líter
Lægri snúnings max hestöfl (verndar vélina)
Lægri snúnings max tog (betri nýtting á vélinni)
Notagildi (Hvar er annarstaðar hægt að nota hana)
Kostnaður við að framleiða hana
Og eitthvað fleira

Lokum þessu bara með að segja að V8 M5 vélin og V12 S70 vélin séu bara svo close að það sé persónulet álit hvor er í raun "BETRI"

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 11:17 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mjög dipló svar gstuning :D

Já, ég get vel fallist á þesa gullaldarára útskýringu.

Og þú kemur þarna aðeins inn á það sem ég hef verið að segja með Benz en þeim hefur einmitt farið verulega aftur og eru núna að ströggla með monster bíla til að skapa sér einhvern sess aftur. Fyrir 15 árum hefðu þeir hjá Benz aldrei látið neitt hafa svona áhrif á sig.

Bmw gæti farið sömu leið og á tímabili fannst mér vera útlit fyrir það, þeir eru hinsvegar á góðri leið með að verða auðkennanlegir aftur - en ég er samt ekki sáttur við þessa ofur áherslu á búnað sem ég tel gagnslausann.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 11:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég væri geim í M3 E46 með Kempower útfærslu(380hö) og enga innréttingu,

Það væri bara stuð

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 11:43 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég væri til í E30 M3 í strippaðri útgáfu með búri og öllu...

Ég held að það sé bíll sem eigi eftir að hækka all verulega í verði á komandi árum og muni líklega verða með frægustu bílum. Og ekki var hann neitt sérlega öflugur ;) - en dínamíkin með besta móti.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 13:43 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
gstuning wrote:
Ef við tölum um tæknilega góða og vel hannaða bimma þá eru gullárin núna,


Og ef þeir halda áfram því sem þeir hafa verið að gera síðustu áratugi þá verða gullárin áfram núna, sama hvort núna sé núna, eftir 30 ár eða fyrir 30 árum.

AMEN. :bow:

;-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 14:01 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ja... þeir hafa eiginlega ekki gert neina stóra feila ef undanskilinn er Z3.

Auðvitað eru bílarnir mis góðir go mis spennandi - en ekki hefur komið slæmur bíll frá þeim nema kannski Z3 sem þó var góður í M útgáfunni.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 16:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
og hvað helduru að það sé stór hluti bmw kaupenda sem kaupa bílin vegna búnaðarins?,

bmw án hluta eins og leðurs og alls þess tæknibúnaðar sem maður er vanur að sjá í stórum bimmum, hljómar eins og hóra án k-ntu fyrir mér.
og ég verð nú að segja það að þessi 1 lína finnst mér alveg :evil: :evil: :evil:
ef t.d m5 væri ekki jafn hlaðin búnaði og hann er þá þætti mérlítt merkilegt við hann... það se mér finnst merkilegt við hann er að þetta er stór og þungur bíll hlaðin aukabúnaði en er samt að skilja dýrustu sportara eftir.... það er það sem ég fíla við bmw rétt eins og 750 risavaxin og með svo miklum búnaði að þú kemur aldrei til með að vita af honum öllum, síðan gefuru í og þá er eins og hann sé að fara hefja sig til flugs, og plús það liggur hann eins og klessa,
þetta er það sem ég og langflestir sem ég þekkji sjá við bmw.. ég hef aldrei heyrt um áður að bmw eigi að framleiða littla létta aukabúnaðalausa bíla.. held að þú ættir að fá þér bara bmw mótorhjól.. þar er enginn aukabúnaður engar rafdrifnar rúður... og þú villt getutu eflaust skrúfað nokkra hluti af því ef þú villt...

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 16:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
en reyndar skal ég alveg viðurkenna það að mér lýst ágætlega á m2

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Aug 2003 17:18 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Vel mælt bebecar. 'Nuff said.

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1 ... 7, 8, 9, 10, 11  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group