Vil líka benda á að BMW er góðir kallar,
Þeir bjuggu til 15 E36 M3R
Hann var 3.0 og var 325hö við 7000
Hann var 200kg léttari en original
Einungis seldur í Ástralíu og 3 fóru beint í GP þar,
Það er hægt að kaupa þessa GroupN hluti í gegnum öll BMW umboð, því það eru BMW partanúmer á öllu dótinu, það kemur ekki upp í ETK samt,
Einnig V8 vélin sem er í V8 M5 bílnum er stækkuð 4,4 vél úr M3 GTR bílnum þá E46, Þessi 4.4 er það sem BMW hefur notað síðustu ár til að stútta keppendum sínum, Hafa bara lent illa reglulega séð í gegnum tíðina eins og við þekkjum með M1 bílinn,
Td. þegar þeir voru að keppa við Porsche ´94 þá voru þeir með 3.0 vélar en Porsche 3,6 vélar samt náði BMW að taka á Porsche í beygjunum og vinna stölu sinnum,
BMW M3 CSL kemst undir 8mín á Nurburgring í stock formi, Það er fáheyrt
BMW M3 E46 kemst þar á 8.22 og M coupe 8.23 í stock formi
Sum mótorhjól komast ekki einu sinni undir 8mín,
Nurburgring notar BMW mikið til að þróa sína bíla því sú braut hefur allt sem bíll þarf að takast á við,
Smá recap af heimasíðu sem ég var að lesa um daginn
Það var 24hour race að byrja og í upphitunar hringnum þá voru BMW Schnitzer bílar að hita upp, virkjarnir voru ekki vissir um að olíukælir hefði undan fyrir gírkassan þannig að þeir settu eitthvað kælidót utan á þá man ekki hvað það er akkúrat núna, en það virkaði of vel og slöngurnar frosnuðu og sprungu og stútuðu kössunum, þá hófst keppnin með 2 bimma í skúrnum að fixa kassa, í stuttu þá komu þeir út í um 60 sæti og annar endaði í 5sæti á eftir Viper GTS, svo var V8 Opel á á undan í fyrsta,
Það segir mér enginn að BMW hefði ekki bakað þessa keppni í köku ef ekki hefði þurft að skipta um kassa, þetta var með 4.4 vélinni auðvitað sem er bara 450hö því að það eru restrictorar á henni,
BMW Rúlar það er bara svoleiðis, hvers vegna erum við að versla Bimma annars

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
