zx wrote:
Ég átti eitt sinn BMW 316i, 1992 árg. Keyrður um 90þ km. Hann bilaði nánast í hverjum mánuði, eyddi miklu, var kraftlaus auk þess sem varahlutirnir kostuðu formúu.
Mín ráð:
Aldrei að kaupa BMW, þeir koma illa út úr gæðaprófunum. Eru alltof dýrir miðað við aðra bíla. Hafa háa bilanatíðni. Eyða miklu. Dýrir í viðhaldi. Fáránlega dýrir varahlutir osfrv.
Önnur staðreynd: Toyota t.d. eyðir meira fjármagni í nýþróun og rannsóknir en allir þýskir bílaframleiðendur til samans. Margar japanskar vélar eru taldar 10-15 árum á undan þeim þýsku hvað varðar gæði, eldsneytiseyðslu, kraft og endingu.
Það eru mjög góð kaup í Lexus bílum á Íslandi núna, þeir eru að vinna sér markað og eru seldir á undirverði. Veislan stendur ekki lengi, skelltu þér á einn.
Mig langar aðeins til að taka á máli þessa herramanns. Ekki að ég nenni að svara honum, því þarna rakkar einhver maður niður alla bíla heils framleiðanda vegna lélegrar reynslu af einum bíl, bíl sem hann lýsir svo nánast ekkert. Þetta er frekar jólasveinslegt og toppar náttúrulega gjörsamlega þegar hann hnykkir út með því að kalla "entry-level" bílinn kraftlausann. Það er ekki eins og maður kaupi sér bíl og fatti svo mánuði seinna "sjitt er hann kraftlaus?"
"þeir [BMW] koma illa út úr gæðaprófunum. Eru alltof dýrir miðað við aðra bíla. Hafa háa bilanatíðni. Eyða miklu. Dýrir í viðhaldi. Fáránlega dýrir varahlutir osfrv."
Ég hef nú ekki tekið eftir þessu í gæðaprófunum, en er þó í sífellu að heyra vel að þeim látið varðandi endingu, frágang og áreiðanleika. Ég er ekki bara að heyra það frá einhverjum BMW fanatics, heldur líka t.d. frá bílablöðum. Dýrir? Miðað við hvað, Toyota? Bílar í þessum flokki eru að sjálfsögðu ekki ódýrir og það eru betri kaup víðar en í BMW. Eitt sem ber að skoða er að margir samkeppnisaðilar hafa forþjöppur í sínum bílum sem leiðir til þess að þeir geta keppt betur m.v. íslensk tollalög.
"Önnur staðreynd: Toyota t.d. eyðir meira fjármagni í nýþróun og rannsóknir en allir þýskir bílaframleiðendur til samans."
Það er náttúrulega allt gott og blessað ef satt er, það er ekki hvað þeir eyða miklu sem skiptir máli, það er hvað kemur út úr því. Reyndar efast ég um að þetta sé satt, þar sem við hljótum að telja DaimlerChrysler með og þar (rétt eins og hjá t.d. BMW) er mikið verið að rannsaka fyrir framtíðina. Þar fyrir utan sé ég ekki betur en mainstream framleiðendur séu mjög duglegir að sækja til t.d. Lotus þegar kemur að þróunarvinnu. Mikið hljóta þeir að vera vitlausir að sækja til fyrirtækis sem eyðir svona litlu!
"Margar japanskar vélar eru taldar 10-15 árum á undan þeim þýsku hvað varðar gæði, eldsneytiseyðslu, kraft og endingu."
Hvað er verið að bera saman? Ef við berum saman 1 líters Toyota vél og 1 líters VW væri ég ekki hissa á að Toyota rokkurinn saltaði safngripinn sem VW setti nýlega í ódýrustu Polo bílana sína. Eigum við að bera saman 3.0l BMW I6 og Lexus 2.0 I6? Þó svo að vélar séu nýjar og glansandi eru þær ekki endilega betri fyrir notandann. Ég átti Ford Ka með 1.3 lítra vél sem var meira en 40 ára gömul hönnun að grunninum til, en samt var hún engu síðri en margar "nýrri og betri" vélar, fyrir utan það að reynslan hafði gert þessa vél mjög trausta.
Talandi um 1l vélar og VW, hvað eru japanir að gera í díselmálum?
Ef við drögum þetta saman í BMW vs. Lexus langar mig í 3-seríu, takk. E60 5-hljómar ekki illa, en fyrir peninginn sem IS200 kostar held ég að ég skreppi bara til Þýskalands og nái mér í einn E43 M5 3.8. Ég ætti að geta fengið mér fínt leiktæki fyrir mismuninn.
Ef spurningin verður þýskt vs. japanskt spyr ég fyrst "hvaða bílar?"
_________________
Kalli - Mal3
Bow down to
Daihatsu power!
Daihatsu Charade
TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum
