bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 19:00

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

Hljópstu apríl?
14%  14%  [ 9 ]
Nei 86%  86%  [ 57 ]
Total votes : 66
Author Message
 Post subject: Fyrsti apríl
PostPosted: Sun 01. Apr 2007 21:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Jæja...

Er einhver með góða sögu af aprílgabbi sem heppnaðist vel?

Hljóp einhver apríl?

Féll einhver fyrir aprílgöbbum fjölmiðlana?

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Apr 2007 21:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ferrari gabbið hjá Fart var það eina sem ég féll fyrir.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Apr 2007 21:36 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Ég var í bústað með vinum og einn fékk sent sms um að George W Bush hefði verið skotinn eldsnemma um morguninn. Við stukkum náttúrlega á fætur og fórum á textavarpið og mbl.is á símunum. Síðan föttuðum við að það var 1. apríl.
Hlupum reyndar ekki mikið en kolféllum alveg fyrir þessu :lol:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Apr 2007 21:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
bjahja wrote:
Ég var í bústað með vinum og einn fékk sent sms um að George W Bush hefði verið skotinn eldsnemma um morguninn. Við stukkum náttúrlega á fætur og fórum á textavarpið og mbl.is á símunum. Síðan föttuðum við að það var 1. apríl.
Hlupum reyndar ekki mikið en kolféllum alveg fyrir þessu :lol:


Snilld...

Ég ætlaði að vera ógurlega sniðugur. Fékk bílinn lánaðann hjá systur minni og hringdi svo heim og bað ömmu að segja henni að ég hefði keyrt út í á. En gamla var sko ekki til í það. Fannst það of svæsið :P

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 00:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Voru einhver aprílgöbb hjá fjölmiðlunum? Þau fóru allavega alveg framhjá mér :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 00:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
arnibjorn wrote:
Voru einhver aprílgöbb hjá fjölmiðlunum? Þau fóru allavega alveg framhjá mér :)


Rúv auglýsti alla leikmuni úr útvarpshúsinu ásamt fleiru til sölu

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item149447/

Stöð 2 bauð fólki að skrá sig í varalið ríkislögreglustjóra :lol:

http://www.visir.is/article/20070401/FRETTIR01/70401044

Best fannst mér samt gabbið í Sunnlenska fréttablaðinu. Það auglýsti uppboð á öllum eignum Byrgisins og viðkvæmum var ráðið frá því að mæta :lol:

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 02:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Bjarkih wrote:
Ferrari gabbið hjá Fart var það eina sem ég féll fyrir.

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 02:31 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Kærastan mín sendi mér samt sms í dag og bað mig um að sækja sig lengst uppí grafarvog þar sem hún var í fermingu. Ég sagði bara jájá og bað hana um að segja mér hvar þetta væri því ég hafði ekki hugmynd um hvar þetta var. Ekkert meira um það ég legg af stað og er að hlusta á útvarpið og þá segir gellan sem er að tala "jæja ef þið eruð ekki búin að reyna gabba neinn í dag þá er um að gera að drífa sig í því" og það fékk mig til að hugsa hvort kærastan væri nokkuð að fokka í mér... Svo var ég kominn fyrir utan húsið sem hún sagði mér að koma og þar voru engir bílar og allt slökkt.. ég bara WTF á ekki að vera ferming hérna?!?!

Hringdi svo alveg brjálaður í kærustuna og ætlaði að hella mér yfir hana fyrir að senda mig einhvert útí rassgat.....en svo kom í ljós að ég var fyrir utan hús nr. 9 og hún var í húsi nr. 10... frekar kjánalegt :lol: :lol:
:oops: #-o

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 10:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Eg hringdi i tengdamommu og sagdi henni ad vid hefdum sofnad i lestinni og vaerum kominn til oslo c.a 300 km fra afangastad og hun var komin ut i bil thegar kaerastan let mig hringja aftur og leidretta djokid.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 11:15 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Posts: 1278
Location: Keflavík
Ekki merkilegt gabb sem ég hljóp apríl fyrir.

Fósturdóttir mín fór út með ruslið í gærmorgun. Kemur til baka og segir að það sé risastór rispa á hliðinni á bimmanum :shock:
Ég fékk nett fyrir hjartað og skokkaði út til að líta á þetta. Kom til baka hálfskömmustulegur, mæðgurnar gerðu grín að mér og ég andaði léttar :)

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 12:17 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Var staddur á Kentucky á Selfossi (hnakkistan) alveg að mygla úr þýnku, get varla beðið eftir að sporðrenna óhollustunni, þá kemur konan og vinkona hennar (voru í sjoppunni við hliðina á Kentucky) og sögðu mér að Guðni Ágústsson væri piss fullur og röflandi í sjoppunni og þar sem mér finnst Guðni ekki vera skærasta peran í seríunni þá beit ég á agnið og hljóp yfir til að sjá Framsóknar idiótið gera sig af fífli.... en það var nú ekki Guðni sem gerði sig að fífli því þegar ég kom aftur lágu þær vinkonur í hlátúrskrampa á gólfinu og gerðu grín að mér. :shock:

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 14:04 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
hahaha, gaman að lesa þessar sögur og ýmynda sér þetta :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 18:25 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34
Posts: 282
siggik1 wrote:
hahaha, gaman að lesa þessar sögur og ýmynda sér þetta :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Apr 2007 21:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 14. May 2006 14:00
Posts: 1525
Location: Hér & þar
Við vorum 4 stelpur í stelpuferð norður á akureyri um helgina. Kærasti einnar hringdi í hana í gærmorgun um 11 og sagðist vera á Akureyri, hafa verið á fyllerí um nóttina og þau hafið ákveðið að fara þrjú til akureyrar, hún var ekki að trúa honum, en hann bað hana að sækja sig á Essó (á leiðinni út á flugvöll) svo hringdi hún aftur í hann "það er fyrsti apríl, þú ert ekkert á ak" hann soldið pirraður "jú ég er í þórunnarstræti með blabla og blabla þau ætla að skutla mér á essó, nenniru að sækja mig þangað" ég sagði við hana, hringdu eftir 5-10 min i hann og segðu að þú sért á essó, vinkona min vildi ekki gera það, því kærastinn hennar var svona pirraður í símann. Hún prófaði að hringja í tengdamömmu sína, sem sagði að hann hefði ekkert verið heima alla nóttina, þannig vinkona mín trúði þessu enn meira. Hún dró okkur allar út grútmyglaðar, þunnar á náttfötunum og á essó..
Sáum auðvitað engan, en hún hringdi til baka og heyrðu þá í pabba hans og fuglinum, þannig hún fattaði að hann væri í reykjavík.. :lol:

Smá langloka, en góður djókur =D

_________________
E21 - E30 - E36


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Apr 2007 02:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Ég var nú bara að koma frá Berlín, en þar féll ég einmitt fyrir einu aprílgabbi.

Félagi minn hringdi í mig af casinoinu og sagðist hafa unnið 1500 evrur með því að leggja 50 evrur á 31 og ætlaði að bjóða öllum á barinn, vorum btw 75 þarna úti.
Ég auðvitað hljóp til og dró alla með mér, ætlaði að sjálfsögðu að þyggja nokkra drykki og fór yfir í allt annann hluta berlínar, og þar stóðu fíflin skellihlæjandi...


Ég varð semi pirraður :evil:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group