Los Atlos wrote:
Fáðu þér Apple eða Dell, það er eina vitið.
Ég er með MSI með 1,5 ghrtz-eitthvað og 512 vinnsluminni og það er bara allt í lagi.
Bara EKKI kaupa tölvu frá BT, nema að þú hafir gaman að bíða eftir viðgerðum og þegar þú færð loksins tölvuna aftur er hún enn biluð. VEI
Sammála, Apple eða Dell
Er reyndar búinn að vera með sömu Medion vélina í þrjú ár og líkar enn rosalega vel við hana.
Málið með Medion er það að þeir framleiða engar tölvur, þetta eru allt útboðsverkefni sem hin ýmsustu fyrirtæki taka að sér. Ef maður er svo heppinn að vita hvaðan þetta kemur, og er sáttur við það, þá er maður í góðum málum.
Var með IBM vél sem hékk aldrei í lagi (biluð frá fyrsta degi) , fékk síðan leiðinda þjónustu bæði hjá Nýherja og umboðsaðila þeirra úti á landi þangað til vélin var úrskurðuð ónýt viku eftir að ábyrgðin rann út. Alltaf mismunandi skýringar á vandræðunum þegar ég kom með hana til þeirra trekk í trekk.
Stefnir allt í Apple næst
, því mín er tveggja ára og hefur aldrei bilað né rifið kjaft, svo er ástæðan fyrir því að ég keypti IBM tölvu sú að Fjólbrautaskóli suðurnesja er með alveg nokkra tugi af IBM fartölvum og eru þær laangflestar helgamlar eða ca. fjagra fimm ára. Ég spurði gaurinn sem sér um tölvurnar í FS og hann sagði að þær bara biluðu ekki, nema ein og ein sem að skjárinn feilaði í