Bæði rétt hjá Thrullernum og Leikmanninum.
Ég hef verið að vinna við að gera tilbúið fyrir uppboðin hjá vöku, þannig ég ætti að vita svona ýmislegt um uppboðin.
...ég er reyndar hættur hjá þeim núna.
Reglan var sú að það voru 10 uppboð á hverju ári, fyrsta laugardag í hverjum mánuði nema í Janúar og Ágúst. Undanfarið hafa uppboðin vera mjög lítil allt niður undir 50 bíla á móti því að árið 2000 voru uppboð með í kringum 150-200 bílum algeng. Vegna þess hve lítil uppboðin hafa verið þá hefur verið tekin sú ákvörðun að fækka uppboðum og þau auglýst hverju sinni. Þau voru alltaf auglýst í DV laugardaginn fyrir uppboð. Ég er bara ekki viss hvort það er þar ennþá eða hvort þetta er komið í fréttablaðið. Einnig er hægt að sjá þetta á
http://www.vakaehf.is/auction.html hvenær næsta uppboð verður.
Bílnúmerlistinn sem birtist í blöðunum með kannski 1000-1500 bílnúmer eru bílar sem einhver krafa er á. Sumir af þessum bílum eru með einhverskonar samninga í gangi sem ég þekki ekki nákvæmlega. Margir eru auglýstir en eigendur hafa náð að semja um skuldir og aðrir bara finnast ekki.
Það er ansi mikið um að fólk keyri daginn áður frammhjá Vöku og kíki inn í port eða jafnvel biðju um að fá að skoða en það er ekki hægt. Og það þýðir heldur ekkert að vera kíkja því það geta verið bílar þarna í geymslu t.d. frá Sjóvá tjónadeild eða bílar sem teknir eru að beiðni lögreglu eða númeralausir eða eitthvað álíka.
Það er stór misskilningur hjá mörgum að Vaka haldi uppboðin, það er ekki rétt, það er Sýslumaðurinn í Reykjavík sem heldur uppboðin. Vaka sér um geymsluna á vörslusviptum bílum, gerir svæðið klárt fyrir uppboð og raðar bílunum upp og býr til uppboðslistann og auðvitað útvegar sýslumanni aðstöðuna.
Þegar Vaka fer og nær í bíla sem verið er að vörslusvipta þá er það ekki Vaka sem er að vörslusvipta, yfirleitt er það vörslusviptarfyrirtæki sem er að gera það fyrir kröfuhafa sem yfirleitt eru einhverjar lögfræðiskrifstofur. En Vaka er með tækin og tólin til að geta tekið bílana og er með geymsluplássið.
Í lang flestum tilfellum vita starfsmenn vöku ekkert um ökutækið sem er verið að vörslusvipta annað en það er verið að vörslusvipta bílinn og það er þetta ákveðna vörslusviptingarfyrirtækið sem er að vörslusvipta.
Flestir bílarnir þarna eru þarna vegna einhverskonar skulda, hvort sem það eru bílalán sem ekki eru borguð og allt niður í afnotagjöld.
Hef séð bíl sem var sirka milljón króna virði vera vörslusviptann fyrir 25 þús kr afnotagjalda-skuld. Svo lagðist ofaná allskonar kostnaður, lögfræðikostnaður, vörslusviptingarkostnaður, kostnaður hjá vöku og allskonar auka kostnaður og samtalls var þetta farið að nálgást 200 þús.
Sumir af bílunum eru bílar sem Vaka hefur verið með í geymslu í langann tíma og eigandinn hyrðir ekki um að ná í. Bíllinn er kannski of góður til að henda sem Vaka má gera ef bíllinn er búinn að vera í geymslu í meira en 30 daga. En bíllinn safnar auðvitað bara geymslukostnaði og þá getur Vaka farið framm á uppboð á því ökutæki.
Sumir af þessum bílum eru bílar sem hafa verið keyptir á háum lánum, fyrstu 2-3 afborganir borgaðar og svo ekki söguna meira.
Eins og Thrullerinn sagði þá er hægt að láta bjóða upp bíl sem þú ert með þarna, en það vantar hjá honum að ekki fara uppí vöku til að gera það, þið þurfið að tala við Sýslumanninn í Reykjavík. Held að uppboðskostnaður sé einhver 10 þús kr á bíl, allavega síðast þegar ég vissi. Og ég held að bíllinn verði að vera skuldlaus.
Ef þið eruð í svona hugleiðingum þá eins og ég sagði, talið við Sýslumanninn í Reykjavík, ekki Vöku.
Eins og Leikmaðurinn sagði þá er mjög misjafn hvort það er lykill eða lyklar með bílunum. Stundum er búið að eltast við suma bíla í langann tíma og ef bíllinn finnst þá er hann bara tekinn þar sem hann er. Svo er misjafnt hvort “eigendurnir” koma brjálaðir uppí vöku og ef að fólk hagar sér skynsamlega þá hefur það fengið að taka persónulega muni úr bílunum á móti því að skila lyklum inn.
Stundum lætur fólk ekki ná í sig svo þá koma aldrei neinir lyklar, eða neitar algjörlega að skila inn lyklum.
Það er hægt að sjá hvort það er lykill með á uppboðslistanum því það er stórt L fyrir aftan bílinn ef það er lykill-lyklar. Hlutfall bíla með lykla er mjög misjafn eftir uppboðum getur verið bara frá um 30% og alveg uppí 80%.
Eins og komið var framm þá eru bílanir í mjög misjöfnu ástandi. Yfirleitt þá helst það ansi fast í hendur að bíll sem ekki er borgað af hefur ekki heldur fengið neitt viðhald og fólk sem hagar sér svoleiðis fer oft ekki neitt rosalega vel með hlutina heldur.
Ég hef bæði séð bíla sem hafa verið yfir milljón króna virði og alveg í lagi fara undir 100 þús kr en það er ekki oft svo það sem maður hefur séð oftar er þegar bílar sem líta vel út að utan en eru í raun algjörar druslur fara á yfir milljón, það finnst manni oft sorglegt. Eða þegar bílar eru að fara á svipað og þú gætir fengið sambærilegann bíl bara á bílasölu fyrir sama pening, þar sem þú getur grandskoðað bílinn og prófað hann, það hefur mér alltaf þótt skrítið.
Já, bílanir eru í mjög svo misjöfnu ástandi, ef þú kaupir bil þá er það algjörlega þitt í hvaða ástandi bíllinn er. Ef þú hefur unnið uppboð á bíl þá verður þú fara strax og borga við borðið með peningum eða debetkorti, ávísanir og credit kort eru ekki tekin.
Svo nærðu í lykla í herberginu á bakvið ef það eru lyklar og þar er einnig skráð hjá hvaða tryggingarfyrirtæki þú tryggir bílinn, ef það eru númerplötur á bílnum þá er það skylda að láta vita hjá hvaða trygginarfélagi þú ætlar að tryggja bílinn jafnvel þótt það séu ekki lyklar með bílnum.
Ef þú býður í bíl og vinnur og þú hleypur út og það næst í þig og getur ekki borgað þá er bíllinn yfirleitt boðinn upp aftur og ef hann fer á lægra en þú bauðst í hann þá takk fyrir skuldar þú mismuninn.
Þegar þú kaupir bílinn þá áttu að fá hann skuldlausann, yfirleitt er ekki hægt að fara með bílinn í skoðun fyrr en á þriðjudegi eftir uppboð og það getur tekið allt að viku að clear-a allar skuldir af bílnum.
Vöflusalan sem mælst hefur vel fyrir undanfarin uppboð eru með leyfi sýslumanns og er haldin af starfsmannafélagi Vöku, allur ágóði af sölunni fer í starfsmannasjóðinn.
Held að þetta sé svona það helsta, getur velverið að ég bæti einhverju inn í þetta.
Þið getið líka bara spurt og ég skal sjá hvort ég geti svarað því eða allavega látið ykkur vita hvert þið ættuð að snúa ykkur til að fá frekari upplýsingar.