bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 09:26

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 39 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 16:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
///M wrote:
vökuuppboðin eru fyrsta lau. hvers mánaðar og það mega allir taka þátt

Voða misjafnt núorðið með þessa reglu hjá þeim.
4-6 vikna millibil, jafnvel eins og núna var síðasta uppboð í nóvember.

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 16:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Eggert wrote:
PT788 - BMW 525 IXA 94


Ég bauð í þennan, fór 60.000 hærra en ég hafði í vasanum :cry:

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 16:56 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Posts: 989
Location: Seoul, South-Korea
Einsii wrote:
Leikmaður wrote:
meira skiptir að ,,vinna" hinn aðilann sem er að bjóða í á móti þér :lol:

Kanski veit hann eitthvaðs em þú veist ekki ;)


...hugsanlegt að það sé kg. af kóki inn í farþega sætinu ;)
En þess vegna sagði ég að menn eru þá a.m.k. með safe bet ef þeir þekkja e-ð til bílsins.
En oft á tíðum verður þetta nett ,,keppni" - held líka að fólki finnist það hljóti að vera að græða að kaupa bíl á uppboði :D

_________________
Jóhann Karl Hermannsson

BMW 520D F10 ´13
Kawasaki KX450f ´07
8 Ball Lowrider 20"


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 17:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Leikmaður wrote:
Einsii wrote:
Leikmaður wrote:
meira skiptir að ,,vinna" hinn aðilann sem er að bjóða í á móti þér :lol:

Kanski veit hann eitthvaðs em þú veist ekki ;)


...hugsanlegt að það sé kg. af kóki inn í farþega sætinu ;)
En þess vegna sagði ég að menn eru þá a.m.k. með safe bet ef þeir þekkja e-ð til bílsins.
En oft á tíðum verður þetta nett ,,keppni" - held líka að fólki finnist það hljóti að vera að græða að kaupa bíl á uppboði :D


þú ert væntanlega að meina ,,,,,,cola-drykk ........eða???

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 17:52 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Bæði rétt hjá Thrullernum og Leikmanninum.

Ég hef verið að vinna við að gera tilbúið fyrir uppboðin hjá vöku, þannig ég ætti að vita svona ýmislegt um uppboðin.
...ég er reyndar hættur hjá þeim núna.

Reglan var sú að það voru 10 uppboð á hverju ári, fyrsta laugardag í hverjum mánuði nema í Janúar og Ágúst. Undanfarið hafa uppboðin vera mjög lítil allt niður undir 50 bíla á móti því að árið 2000 voru uppboð með í kringum 150-200 bílum algeng. Vegna þess hve lítil uppboðin hafa verið þá hefur verið tekin sú ákvörðun að fækka uppboðum og þau auglýst hverju sinni. Þau voru alltaf auglýst í DV laugardaginn fyrir uppboð. Ég er bara ekki viss hvort það er þar ennþá eða hvort þetta er komið í fréttablaðið. Einnig er hægt að sjá þetta á http://www.vakaehf.is/auction.html hvenær næsta uppboð verður.
Bílnúmerlistinn sem birtist í blöðunum með kannski 1000-1500 bílnúmer eru bílar sem einhver krafa er á. Sumir af þessum bílum eru með einhverskonar samninga í gangi sem ég þekki ekki nákvæmlega. Margir eru auglýstir en eigendur hafa náð að semja um skuldir og aðrir bara finnast ekki.

Það er ansi mikið um að fólk keyri daginn áður frammhjá Vöku og kíki inn í port eða jafnvel biðju um að fá að skoða en það er ekki hægt. Og það þýðir heldur ekkert að vera kíkja því það geta verið bílar þarna í geymslu t.d. frá Sjóvá tjónadeild eða bílar sem teknir eru að beiðni lögreglu eða númeralausir eða eitthvað álíka.

Það er stór misskilningur hjá mörgum að Vaka haldi uppboðin, það er ekki rétt, það er Sýslumaðurinn í Reykjavík sem heldur uppboðin. Vaka sér um geymsluna á vörslusviptum bílum, gerir svæðið klárt fyrir uppboð og raðar bílunum upp og býr til uppboðslistann og auðvitað útvegar sýslumanni aðstöðuna.

Þegar Vaka fer og nær í bíla sem verið er að vörslusvipta þá er það ekki Vaka sem er að vörslusvipta, yfirleitt er það vörslusviptarfyrirtæki sem er að gera það fyrir kröfuhafa sem yfirleitt eru einhverjar lögfræðiskrifstofur. En Vaka er með tækin og tólin til að geta tekið bílana og er með geymsluplássið.
Í lang flestum tilfellum vita starfsmenn vöku ekkert um ökutækið sem er verið að vörslusvipta annað en það er verið að vörslusvipta bílinn og það er þetta ákveðna vörslusviptingarfyrirtækið sem er að vörslusvipta.

Flestir bílarnir þarna eru þarna vegna einhverskonar skulda, hvort sem það eru bílalán sem ekki eru borguð og allt niður í afnotagjöld.
Hef séð bíl sem var sirka milljón króna virði vera vörslusviptann fyrir 25 þús kr afnotagjalda-skuld. Svo lagðist ofaná allskonar kostnaður, lögfræðikostnaður, vörslusviptingarkostnaður, kostnaður hjá vöku og allskonar auka kostnaður og samtalls var þetta farið að nálgást 200 þús.

Sumir af bílunum eru bílar sem Vaka hefur verið með í geymslu í langann tíma og eigandinn hyrðir ekki um að ná í. Bíllinn er kannski of góður til að henda sem Vaka má gera ef bíllinn er búinn að vera í geymslu í meira en 30 daga. En bíllinn safnar auðvitað bara geymslukostnaði og þá getur Vaka farið framm á uppboð á því ökutæki.

Sumir af þessum bílum eru bílar sem hafa verið keyptir á háum lánum, fyrstu 2-3 afborganir borgaðar og svo ekki söguna meira.

Eins og Thrullerinn sagði þá er hægt að láta bjóða upp bíl sem þú ert með þarna, en það vantar hjá honum að ekki fara uppí vöku til að gera það, þið þurfið að tala við Sýslumanninn í Reykjavík. Held að uppboðskostnaður sé einhver 10 þús kr á bíl, allavega síðast þegar ég vissi. Og ég held að bíllinn verði að vera skuldlaus.
Ef þið eruð í svona hugleiðingum þá eins og ég sagði, talið við Sýslumanninn í Reykjavík, ekki Vöku.

Eins og Leikmaðurinn sagði þá er mjög misjafn hvort það er lykill eða lyklar með bílunum. Stundum er búið að eltast við suma bíla í langann tíma og ef bíllinn finnst þá er hann bara tekinn þar sem hann er. Svo er misjafnt hvort “eigendurnir” koma brjálaðir uppí vöku og ef að fólk hagar sér skynsamlega þá hefur það fengið að taka persónulega muni úr bílunum á móti því að skila lyklum inn.
Stundum lætur fólk ekki ná í sig svo þá koma aldrei neinir lyklar, eða neitar algjörlega að skila inn lyklum.
Það er hægt að sjá hvort það er lykill með á uppboðslistanum því það er stórt L fyrir aftan bílinn ef það er lykill-lyklar. Hlutfall bíla með lykla er mjög misjafn eftir uppboðum getur verið bara frá um 30% og alveg uppí 80%.

Eins og komið var framm þá eru bílanir í mjög misjöfnu ástandi. Yfirleitt þá helst það ansi fast í hendur að bíll sem ekki er borgað af hefur ekki heldur fengið neitt viðhald og fólk sem hagar sér svoleiðis fer oft ekki neitt rosalega vel með hlutina heldur.

Ég hef bæði séð bíla sem hafa verið yfir milljón króna virði og alveg í lagi fara undir 100 þús kr en það er ekki oft svo það sem maður hefur séð oftar er þegar bílar sem líta vel út að utan en eru í raun algjörar druslur fara á yfir milljón, það finnst manni oft sorglegt. Eða þegar bílar eru að fara á svipað og þú gætir fengið sambærilegann bíl bara á bílasölu fyrir sama pening, þar sem þú getur grandskoðað bílinn og prófað hann, það hefur mér alltaf þótt skrítið.

Já, bílanir eru í mjög svo misjöfnu ástandi, ef þú kaupir bil þá er það algjörlega þitt í hvaða ástandi bíllinn er. Ef þú hefur unnið uppboð á bíl þá verður þú fara strax og borga við borðið með peningum eða debetkorti, ávísanir og credit kort eru ekki tekin.
Svo nærðu í lykla í herberginu á bakvið ef það eru lyklar og þar er einnig skráð hjá hvaða tryggingarfyrirtæki þú tryggir bílinn, ef það eru númerplötur á bílnum þá er það skylda að láta vita hjá hvaða trygginarfélagi þú ætlar að tryggja bílinn jafnvel þótt það séu ekki lyklar með bílnum.

Ef þú býður í bíl og vinnur og þú hleypur út og það næst í þig og getur ekki borgað þá er bíllinn yfirleitt boðinn upp aftur og ef hann fer á lægra en þú bauðst í hann þá takk fyrir skuldar þú mismuninn.

Þegar þú kaupir bílinn þá áttu að fá hann skuldlausann, yfirleitt er ekki hægt að fara með bílinn í skoðun fyrr en á þriðjudegi eftir uppboð og það getur tekið allt að viku að clear-a allar skuldir af bílnum.

Vöflusalan sem mælst hefur vel fyrir undanfarin uppboð eru með leyfi sýslumanns og er haldin af starfsmannafélagi Vöku, allur ágóði af sölunni fer í starfsmannasjóðinn.

Held að þetta sé svona það helsta, getur velverið að ég bæti einhverju inn í þetta.
Þið getið líka bara spurt og ég skal sjá hvort ég geti svarað því eða allavega látið ykkur vita hvert þið ættuð að snúa ykkur til að fá frekari upplýsingar.

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93



Last edited by Svessi on Sat 03. Feb 2007 19:36, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 17:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
Leikmaður wrote:
Einsii wrote:
Leikmaður wrote:
meira skiptir að ,,vinna" hinn aðilann sem er að bjóða í á móti þér :lol:

Kanski veit hann eitthvaðs em þú veist ekki ;)


...hugsanlegt að það sé kg. af kóki inn í farþega sætinu ;)
En þess vegna sagði ég að menn eru þá a.m.k. með safe bet ef þeir þekkja e-ð til bílsins.
En oft á tíðum verður þetta nett ,,keppni" - held líka að fólki finnist það hljóti að vera að græða að kaupa bíl á uppboði :D


þú ert væntanlega að meina ,,,,,,cola-drykk ........eða???


Nei, þeir eru mældir í lítrum :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 18:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
"Good Posting" Svessi

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 20:14 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
Það var þarna M5 99 árgerðin veit ekki með ástand en hann fór á 2 millur.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 20:25 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
ef hann er í lagi þá eru það bara góð kaup

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 22:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
Hlynzi wrote:
Það var þarna M5 99 árgerðin veit ekki með ástand en hann fór á 2 millur.


lol.. þú varst ekki alveg að fylgjast með því hvað þráðurinn snérist um er það?

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 23:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
srr wrote:
Eggert wrote:
PT788 - BMW 525 IXA 94


Ég bauð í þennan, fór 60.000 hærra en ég hafði í vasanum :cry:


Á hvað fór hann??

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Feb 2007 23:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Bjarki wrote:
srr wrote:
Eggert wrote:
PT788 - BMW 525 IXA 94


Ég bauð í þennan, fór 60.000 hærra en ég hafði í vasanum :cry:


Á hvað fór hann??

160.000 kr :shock: Damn gott verð en ég var bara ekki með nóg :cry:

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Feb 2007 00:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Ég hef keypt tvo bíla á Vöku-uppboði og mætt óteljandi oft.

Þetta er skemmtilegt og oft má gera góð kaup. Sérstaklega í dýrari bílunum, þar sem að það eru ekki allir sem draga 1+ milljón upp úr vasanum.
Þetta er samt eitthvað að breytast og alltaf fleiri sem geta stgr. háar upphæðir.

Eitt sem ekki hefur komið fram en ég vill endilega benda á:

Flestar lánastofnanir senda lögfræðing á staðinn sem "ver" bílinn. Þið þurfið því að vera vakandi fyrir því hverjum þið eruð að bjóða á móti.

Það er mjög algengt, að það sé lögfræðingur (standa oft hægra megin við púltið í salnum) að bjóða á móti þér til að lánastofnunin fái meira upp í kröfuna á bílnum.

Þannig að það er mjög gott að sigta þessa kalla út. Ég var farinn að þekkja fésin á þeim og þá var oft gott að hætta bara að bjóða ef þeir byrja.

Annars hef ég nokkrar sögur þar sem mönnum hefur tekist að snúa á þá :lol:

Í eitt skiptið þá stóð sá sem var að bjóða fyrir aftan lögfræðinginn og leit yfir öxlina hjá honum og sá hvað hann ætlaði að bjóða upp í.
Hann gerði sér lítið fyrir og bauð eitthvað aðeins hærra og á meðan lögfr. var að hugsa málið var bílinn sleginn honum :lol:

Einnig vill ég benda ykkur á að það eru menn þarna sem mæta á hvert einasta uppboð og eru orðnir virkilega flinkir í þessu. Gaman að fylgjast með þeim stundum. Nefni t.d. Arelíus í Borgarnesi, hann hefur keypt óteljandi bíla þarna.

Jæja,

Hættur í bili en endilega kíkið á þetta ef þið eigið aur í vasanum :wink:

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Feb 2007 00:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Arilíus mætir nú bara með alla fjölskylduna...konan og báðir strákarnir eru í þessu :lol:

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Feb 2007 01:54 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
Það er þvílíkt gaman að mæta þarna, uppboðið þegar Viperinn fór á 1600 þús var skemmtilegt, einhver gaur að labba um allt og bjóða mönnum boddýpartana sem var búið að hirða af bílnum. Ég sá einu sinni tvo sniðuga gaura þarna bjóða í sundurtætt hjól, varahlutirnir voru faldir á víð og dreif um salinn, engi þorði að bjóða í þetta rusl. Þeir fengu hjólið á eitthvað algjört slikk og röðuðu því svo bara saman á 5 mínútum og leiddu það út.

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 39 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group