Það myndi kannski hjálpa okkur við að hjálpa þér, að vita hvernig JVC vél þú ert með.
Ég er nokkuð viss um að tengið sem stendur DV á vélinni hjá þér er 4 pinna firewire tengi.
Alveg rólegur við að hlaupa úti næstu búð og kaupa firewire (IEEE 1394) snúru.
Þarft aðeins að skoða hlutina áður en þú gerir það.
Það eru nefnilega til nokkur mismunandi firewire tengi, þau algengustu eru 4 og 6 pinna.
6 pinna tengi
4 pinna tengi
Og plugin sem eru fyrir þessi tengi:
6 pinna plug
4 pinna plug
Yfirleitt er mynd fyrir ofan pluggið sem getur verið eitthvað af þessu:
T.d. á stóru borðtölvunni hjá mér er myndin sem er fyrir miðju nema hvað það er þríhyrningur í stað kassans og hann snýr niður.
Algengast er að það sé 4 pinna tengi á videocamerum, og á borðtölvum er yfirleitt 6 pinna tengi, sumar vélar eru með bæði, og svo eru lappar oft með bara 4 pinna tengið.
Þetta er eitthvað sem þú þarft að kíkja á og gá að, því það er hægt að kaupa firewire snúrur sem eru með 6 pinna tengi á báðum endum, 4 pinna tengi á báðum endum og líka 4 pinna tengi öðru megin og 6 pinna hinu megin. Þær eru ekki beint gefnar þessar snúrur þótt þær séu ekkert hrikalega dýrar, bara óþarfi að vera kaupa eitthvað í flýti sem þú getur svo ekki notað.
Fann hérna í fljótheitum þessa þrár mismunandi snúrur í BT:
4 pinna tengi báðu megin
6 pinna tengi báðu megin
4 pinna tengi og 6 pinna tengi
Eins og þú sérð þá er mismunandi framleiðandi að þessu hjá BT, lengdir mismunandi og verð mis hátt.
Fyrir mig hefur sirka 2 metra snúra verið yfirleitt nóg, nema þegar ég hef kannski verið að taka eitthvað upp með vélinni og sett það beint inn í tölvuna án þess að vera með spólu í.
Annars geturu fengið þetta í flestum tölvubúðum, Elko, BT, Tengi, Hugver, Tæknibæ, Tölvulistanum, Att, Tölvuvirkni og öllum hinum líka.
Það er lang þægilegast að vera klippa af svona videovél með firewire, þú getur spólað framm og tilbaka í gegnum tölvuna.
Mér sýnist svona á þessu að þú sért algjör byrjandi í þessu og þessvegna mæli ég með Sonic Foundry Vegas Video klippi forritinu, getur svosem byrjað í windows movie maker, en Vegas Video er mjög þægilegt, sjálfur er ég bara með útgáfu 4 og hefur hún dugað mér mjög vel hingað til.
p.s. ég er alveg sammála Þórði með að nota USB í svona er varla hægt, ekkert nema vesen, bara það að finna klippiforrit sem styður það getur verið vesen.
Eins og ég hef sagt áður þá keypti ég mér miniDVD cameru í haust og það er ekkert firewire tengi á henni og þetta er bara búið að vera vesen hjá mér. Næst kaupi ég mér sennilega aftur DV vél með firewire.
Gangi þér annars vel Gulli, vona að þetta hafi hjálpað þér eitthvað.