Að kaupa bíl sem er á útlenskum númerum

Hér skal spjalla um BMW.

Að kaupa bíl sem er á útlenskum númerum

Postby Lindemann » Sat 20. Jan 2007 17:15

Nú vantar mig smá upplýsingar.

Það er bíll sem ég er aðeins að hugsa um að kaupa til að nota í varahluti, en hann er á útlenskum númerum.

Ég var að spá í hvort einhver hérna hefði reynslu af þessu, og þá hvaða kostnaði ég gæti lent í.

Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég gæti keypt bílinn, hent plötunum af, og látið hann svo hverfa, þannig að hann væri hvergi skráður á íslandi. En ég vil alls ekki lenda í einhverju veseni eftirá.

Þarf að borga fulla toll af svona bíl? Hann er ekki ökufær og stefnan er ekki að hann fari nokkurn tíman á götuna aftur.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Lindemann » Sat 20. Jan 2007 17:21

Gleymdi náttúrulega að taka það fram að viðkomandi bíll er á íslandi.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby JónP » Mon 22. Jan 2007 15:55

Væri fínt að fá svar við þessum spurningum. Er í sömu hugleiðingum...
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby srr » Mon 22. Jan 2007 15:56

Getur ekki umferðarstofa svarað þessari spurningu ?
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby amg » Mon 22. Jan 2007 20:09

með ´rettu þarftu að tolla hann inní landið, semsagt borga vörugjald og virðisauka, það þarf samt ekki að vera mikið ef upphæðin a afsali er höfð temmilega þægileg. enn það er samt þónokkuð umstang i kringum þetta.

getur pm-að á mig ef þú vilt einhverjar uppl um svona
bmw 525 tds 1992

og sitthvað fleira frá kanaveldi
amg
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 343
Joined: Wed 04. Jan 2006 16:56

Postby BjarkiHS » Tue 23. Jan 2007 17:20

tætann og tilkynna hann svo stolinn eða týndan :twisted:
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú

Postby Lindemann » Tue 23. Jan 2007 17:41

þeir sögðu í umferðarstofu að fyrst það ætti að rífa hann, þá gætum við bara tekið hann og þyrftum ekkert að skrá neitt eða borga neitt.
Bara athuga hvort seljandi sé ekki örugglega eigandi að bílnum.

En ef það á að skrá hann, þá þarf núverandi eigandi(útlendingur) að nýskrá bílinn og borga skráningargjöld.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby srr » Tue 23. Jan 2007 17:55

Er þá hægt að flytja inn bíla með þessum máta, þeas bíla sem á að nota í parta?
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Lindemann » Wed 24. Jan 2007 00:38

Nú bara veit ég ekki...ég talaði reyndar ekki sjálfur við þá, en þetta var það sem var sagt.

Efast um samt að maður geti flutt inn bíl til að rífa og sleppa við tollinn :?
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests