Nú vantar mig smá upplýsingar.
Það er bíll sem ég er aðeins að hugsa um að kaupa til að nota í varahluti, en hann er á útlenskum númerum.
Ég var að spá í hvort einhver hérna hefði reynslu af þessu, og þá hvaða kostnaði ég gæti lent í.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég gæti keypt bílinn, hent plötunum af, og látið hann svo hverfa, þannig að hann væri hvergi skráður á íslandi. En ég vil alls ekki lenda í einhverju veseni eftirá.
Þarf að borga fulla toll af svona bíl? Hann er ekki ökufær og stefnan er ekki að hann fari nokkurn tíman á götuna aftur.

