saemi wrote:
Ég á ekki til nógu sterk orð yfir það hversu mér finnst það ömurlegt hjá fólki þegar það hendir rusli út úr bílnum sínum. Ég skil tyggjó, ókei, en allt annað er vanþroski að mínu mati.
Myndir þú henda rusli út um gluggan á heimilinu þínu og bíða eftir að e-r kæmi til að tína það upp eða það fyki í burtu ???
Ég hef ekki áhuga á að lifa í þjóðfélagi þar sem allir henda rusli út um allt. Maður sér þetta alls staðar í Afríku, Indlandi, Suður Ameríku, Asíu og bla bla bla þar sem fólk er ómenntað og á ekki bót fyrir boruna á sér. þar hendir það þessu bara út um gluggan og svo leika börnin og dýrin sér í þessu upp fyrir haus.
En ég meina, .. við erum nú ekki alveg fædd í gær með hausinn upp í rassgatinu á okkur ennþá. Við göngum í skóla og eigum að vita betur. Samt sem áður þá eru Íslendingar ótrúlega lélegir í þessum málum.
Það er gaman að sjá til samanburðar t.d. hvernig Japanir ganga um. Þar er svona lagað ekki til. Göturnar hreinar ásamt gangstéttum og görðum. Enda mikil virðing borin þar fyrir öðrum einstaklingum, fólk bugtar sig og beygir fyrir þér. Er ekki skemmtilegra að vera í þjóðfélagi þar sem virðing er borin fyrir umhverfinu og næsta manni, heldur en þar sem allir gefa skít í nágrannan og allt annað en eigin rass?
Því set ég þá sem henda rusli á sama stall og blessað fólkið í þriðja heims löndunum sem veit ekki betur, það hefur bara ekki nægan þroska til að skilja þetta.
Fróðleiksmoli hér:
Þriðjuheimsríki voru vön því að geta hent rusli og það myndi hverfa, þ.e. lítið af umbúðum og flest allt sem þau borðuðu var lífrænt => það moltast.
Tímarnir breytast ...... og núna eru bara HAUGARNIR af drasli á þessum stöðum.
Mér finnst einstaklega ósmekklegt að sjá rusl úti um allt og vert væri að þeir sem eru hvað harðastir í rusl hendingum kíki á borgir erlendis sér til fyrirmyndar. Víðast hvar er mjög lítið rusl að sjá.
Með öðrum orðum...... við eigum að vita betur. Ruslið týnir sig ekki sjálft upp.