///M wrote:
það á enginn breik í að skipta hraðar en sjálfskiptingin í e60 m5
og e60 m5 er með það stutta gíra að í 0-200 rönni á eftir að muna HELLING ,,,,,,bsk vs smg,,,,,,,
Naglilnn IMO hittur á höfiðið. Það að SMG sé sneggri að skipta en "flestir" beinskiptingar hefur lítið með það að gera hvor bíllinn sé sneggri í 200. Það sem skiptir máli er hvar togkúrfan og hestaflakúrfan liggja. Trixið við þessa miklu hröðun SMG bílsins fellst í gíruninni. Í raun er eini gírinn sem er alvöru langur sá fyrsti. Eftir það er alltaf skipt úr 8250 í rúmlega 6000 rpm. Það þýðir að maður er allataf að vinna frá toppnum á toginu upp í topp á hestöflum.
Ég hreinlega man ekki hver gírunin er á 6gang en annaðhvort eru gírarnir lengri, eða bíllinn er ekki í 200mph klúbbnum.
Það má þá minnast á eitt. Ég hef spyrnt við Maserati 3200GT nokkrum sinnum. Ég hef hann í S5, en ég sting hann af í S6.
Persónulega tek ég álíka mikið mark á commentum sem eru "ég tæki frekar Manual en SMG" frá mönnum sem hafa ekkert keyrt SMG3 eins og kynlífstipsum frá nunnu. Menn geta s.s. haft sitt prefrence, en mitt mottó hefur alltaf verið "dont deny it untill you try it"
Það eru ákveðin reliability vandamál við SMG miðað við könnun sem ég gerði á M5board. C.a. 30% eiganda höfðu lent í major SMG vandamálum. N.b. þeir eru ennþá með bílinn í ábyrð og því tel ég þetta ekki vera vandamál nema BMW nái ekki að leysa þetta áður en bílar fara að falla úr ábyrð, það yrði virkilega slæmt. En þegar performance umslagið er pressað þá má búast við vandamálum. 6Cyl vél ársins síðustu ár eru S54, samt eru ENN mikil vandræði með þann mótor ef hann hefur fengið "slæma" meðferð. Íþróttamenn þurfa að hita vel upp fyrir átök.
Menn geta líka haft sínar skoðanir á því hvað þeim líkar og hvað ekki. Ég var á námskeiði hjá Somilier (vínspekingi) og hann sagði að maður ætti aldrei að segja að vín væri vont, bara að manni líki ekki við vínið. Sama gildir um gamla/nýja bíla, beinskipta/sjálfskipta/sequential. Kanski líkar manni ekki vel við eitthvað, það þýðir samt ekki að eitthvað sé betra en annað.
Mér finnst samt ,,,,,,,,BARA,,,,,,, í lagi að bjóða upp á Manual E60M5. Ef markaðurinn óskar eftir því þá eiga menn að bregðast við. Held að þessi bíll verði seint "leiðinlegur" þó að hann verði með beinskiptingu og inngrip frá MDM DSC.