Jæja nú er bílinn búinn að standa sig eins og hetja - ekki feilpúst.......
.... þangað til í dag.
Var að keyra í morgun og var aðeins að fíflast í Audi sem vildi leika.
Endaði þetta á Sæbrautinni þar sem undirritaður sýndi honum púströrin í slædi fram og aftur. Var þrælgóður með mig kominn framúrhonum þegar bara búmm - hnykkur á bílinn, vélin dauð og "engine failsafe mode" kom í mælaborðið. Tókst að láta hann renna útaf Sæbrautinni inn á bílastæðið við gamla Útvarpshúsið. Reyndi að starta en hann fór ekki í gang - hann snéri en virtist ekki sprengja.
Shit shit shit shit shit
Nú var ég í tímapressu þar sem við vorum að flytja fyrirtækið í dag þannig að ég lét sækja mig í hvelli. Stalst síðan seinna um daginn og dró bílinn með Cruisernum upp í BogL þar sem þeir ætluðu að kíkja á hann en reyndust síðan ekki treysta sér í það þar sem allir BMW gúrúar umboðsins voru erlendis. Dró því þann bláa niður í aðstöðu og fór síðan aftur í flutningana þar sem allt var í tímapressu.
Maður hafði náttúrulega enganveginn hugann við flutninga og skapið var ekki alveg upp á sitt besta. Sá fyrir mér jafnvel fokkdýrar vélaviðgerðir
Allavega - fór í kvöld eftir flutninga niður í aðstöðu vopnaður laptop og OBDII leskapli og ætlaði að reyna að sjá hvaða kóðar væru geymdir eftir ósköpin. Fékk hjálp góðra manna við að ýta bílnum inn (M5 er ekki sá léttasti að ýta upp brekku) og svo var reynt að lesa af tenginu í mælaborðinu. Það gekk ekki baun enda hef ég aldrei gert þetta áður.
Hins vegar meðan lappinn var að hjakka og prófa alla mögulega protocola þá ákvað ég að opna húddið og sjá hvort ekki væri allt eðlilegt að sjá.
Bingo.... vesenið blasti við mér og mér leið eins og 100% hálfvita. Það sem hafði gerst er að þegar ég var að blasta framúr Audi kappanum þá hafði ein hosuklemman á öðru MAF unitinu losnað og hosan runnið af.
Hefði betur tekið smá tíma í stressinu í dag og skoðað þetta
Festi hosuklemmuna og herti upp á hinum. Tók rafmagnið af bílnum í hálftíma til að cleara alla kóða og prufaði svo að starta. Fór ekki í gang en það var bara því hann var orðinn rafmagnslítill. Eftir að Hr. Alpina kom með geymi og tengdi við þá rauk kvikindið í gang og ÞUNGU fargi var af mér létt.
Tókum síðan smá prufurúnt áðan og getur Hr. Alpina vottað að bíllinn er ((((BARA)))) í lagi.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...