Höfuðpaurinn wrote:
Bjöggi wrote:
það virðist vera eitthvað úrval af kraftsíum þarna líka, þyrfti ég ekki að taka svoleiðis í leiðinni ef eitthvað ætti að gerast?
veit nú ekki hvort þú færir að finna einhvern mun í krafti við það, en ég keypti K&N í jeppann og finn aðalega mun á eyðslu (
sagðiru ekki að hann eyddi svo svakalega hjá þér)
en í sambandi við verðið á slíkum síum, þá var ódýrara að kaupa síuna hjá Bílabúð Benna... pantaði hana á föstudegi, hún var komin næsta miðvikudag... þar lendiru líka ekki í veseni ef þú skyldir fá vitlaust afgreitt (ég lenti ekki í því.. vil bara koma þeim punkti að)
nú er ég búinn að mæla einn tank í venjulegum akstri og mér finnst þetta engin eyðsla að ráði 14.6. Ég var undirbúinn um allt upp undir 20 ltr/100km svo ég þarf ekki að kvarta yfir eyðslunni.
Mig langar bara í meiri kraft og ég er ekki alveg að tíma að fara í stærri vél, ef eitthvað væri þá yrði það m20b25, en ég á ekki peninga fyrir þeirii vél sem Alpina er að selja. Finnst ágætis hugmynd að setja svona kubb í til að prófa.
Reyndar er þessi vél ansi þreytt, samkv. mæli er bíllinn keyrður 303.000 km. Það reyndar gæti vel verið að einhvern tímann hafi verið skipt um vél. En ég bæði þjöppumældi og lekamældi vélina, hún rétt slefaði við að vera innan marka og þá var hún volg, hún nær ekki að vera innan marka þegar hún er skítköld
