Lindemann wrote:
Þú ert algjörlega að misskilja það sem ég var að reyna að segja.............
Ég var að tala um að sá sem keyrir INN Í hringtorgið er að sjálfsögðu í rétti ef hinn er að leika sér á hlið í hringtorginu.
Svo var ég aldrei að tala um að réttlæta eitthvað þann sem er í hringtorginu, HELDUR að ef svo vill til að ég kem að hringtorgi þar sem bíll er að slæda þá BÍÐ ÉG. Ekki afþví ég vilji ekki trufla þann sem er í hringtorginu, ég vill einfaldlega ekki keyra inní hringtorg ef ég á það á hættu að fá bíl á mig.
Farðu svo bara vinsamlegast varlega í það að kalla menn illa gefna. Fyrst að reyna að skilja það sem þeir skrifa!...............
Ég ætlaði nú alls ekki að fara standa í orðaskaki við ykkur !
var bara að lesa þessa umræðu sem er í gangi hérna og finnst ýmislegt sem skrifað er, ekki bera vott um miklar gáfur
og LINDEMANN..
Segjum nú sem svo að þú sért í hringtorgi að "slæda", það er nótt og engin umferð og þar af leiðandi þarft þú ekkert að vera fylgjast mikið með hvað er að gerast í umferðinni..... ekki rétt ?
En nú kemur annar ökumaður akandi að þessu hringtorgi, og hugsar eins og þú "það er nótt og engin umferð og þar af leiðandi þarft ég ekkert að hugsa hvað er að gerast í umferðinni"
Hvað gerist ?
Þið voruð nú að tala um það hérna um daginn hvað drengurinn sem var á forsíðu Blaðsins um daginn væri mikið fífl, en svo var sú umræða farinn að snúast upp í það hvað blaðamenn væru slæmir og hefðu rangtúlkað allt sem hann sagði og tekið það úr samhengi !
Þið eruð bara sjálfir að skjóta ykkur í fótinn og gefa höggstað á ykkur með svona skrifum
Og ef ég er nú, eins og LINEMANN segir, ekki að skilja þetta hjá ykkur, þá eruð þið nú heppnir að ég skuli ekki vera blaðamaður, heldur bara faðir að fylgjast aðeins með áhugamáli sonar míns og hans félögum, þá væri ég nú aldeilis kominn í feitt og gæti skrifað krassandi grein um "unga ökufanta" og þyrfti ekkert að tala við ykkur, og myndi bara vitna í þessi skrif hérna
Farið þið bara varlega í það sem þið skrifið, og að sjálfsögðu líka í umferðinni
Kveðja
Andrew_sá gamli

_________________
.
.
.
"Jeppakarlinn"... sem gleymdi aðgangsorðinu sínu......
