Viftukúpling í E30 / mjög óánægður með verslun TB

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby ömmudriver » Fri 06. Oct 2006 10:57

Eg var ad kaupa viftukuplingu i minn i gaer og hun kostadi um 19 kallinn.(i B&L)
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby jens » Mon 09. Oct 2006 19:00

Mig langar að leggja áherslu á að þegar maður hringir til að athuga hvort varahlutur er til þá skal maður hafa það í huga að afgreiðslumaðurinn fari og sjái með eigin augum að hluturinn sé til.
Ég var að koma af Hellisheiðinni seinni partinn og sá að bílinn var farin að vera heitari en vanalega svo ég ákvað að renna við í TB sem er smá spotti ef maður er með bíl með hitavandamál. Ég hafði hringt og mér sagt að hún væri til en þegar ég mæti þá er enginn til " nú E30 ég hlít að hafa misskilið". Þetta varð til þess að ég var í vandræðum, komst ekki í B&L fyrir lokun og var í vandræðum í Hvalfjarðargöngunum á leið heim. Nú sit ég uppi með bíl sem ég nota á hverjum degi í vinnu fyrir austan og kemst ekki á honum í fyrramálið. Ég þoli ekki svona, hef mjög lítinn tíma og þarf að geta stólað á að það sem mér er sagt standi.
Tek það fram að ég hef aldrei áður reynt að nota þjónustu TB og þetta hefur ekkert að gera með þá sem vinna á verkstæði TB,
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby gstuning » Mon 09. Oct 2006 19:22

jens wrote:Mig langar að leggja áherslu á að þegar maður hringir til að athuga hvort varahlutur er til þá skal maður hafa það í huga að afgreiðslumaðurinn fari og sjái með eigin augum að hluturinn sé til.
Ég var að koma af Hellisheiðinni seinni partinn og sá að bílinn var farin að vera heitari en vanalega svo ég ákvað að renna við í TB sem er smá spotti ef maður er með bíl með hitavandamál. Ég hafði hringt og mér sagt að hún væri til en þegar ég mæti þá er enginn til " nú E30 ég hlít að hafa misskilið". Þetta varð til þess að ég var í vandræðum, komst ekki í B&L fyrir lokun og var í vandræðum í Hvalfjarðargöngunum á leið heim. Nú sit ég uppi með bíl sem ég nota á hverjum degi í vinnu fyrir austan og kemst ekki á honum í fyrramálið. Ég þoli ekki svona, hef mjög lítinn tíma og þarf að geta stólað á að það sem mér er sagt standi.
Tek það fram að ég hef aldrei áður reynt að nota þjónustu TB og þetta hefur ekkert að gera með þá sem vinna á verkstæði TB,


ég lenti nú í því að ætla mér að versla kúplingu í 318is E30,
spurði tvisvar hvort að þetta VÆRI ALVEG BÓKAÐ rétti parturinn í M42 318is E30 1990, jájá alveg bókað var svarið

þegar þetta kom var þetta M52 kúpling og pressa!!
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby jens » Mon 09. Oct 2006 19:25

Þetta er alveg það sem ég er að meina. Ég vinn mikið og þarf að sækja það langt og í skóla líka. Svona lagað setur allt úr skorðum.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby adler » Mon 09. Oct 2006 20:02

jens wrote:Þetta er alveg það sem ég er að meina. Ég vinn mikið og þarf að sækja það langt og í skóla líka. Svona lagað setur allt úr skorðum.


Þetta er nú ekkert hefurðu reynt að eiga viðskipti við Bílanaust það er ekki hægt að treysta þeim skröttum fyrir 5 aur það er allt til þegar að maður hringir en svo þegar að maður er kominn á staðinn og búinn að bíða heillengi þá kemur í ljós að það er ekkert til, fyrir mér þá er svona staðir ekki til nema í algjöru hallæri.

Ég hef aftur á móti mjög svo góða reynslu af TB og hann Hafþór er alltaf tilbúinn að létta manni lífið ef að hann getur.
Þeir eru núna að leggja meiri áherslu á varahluta deildina hjá sér og ég held að þeir verði númer 1 í þjónustu við þá sem eiga BMW og Benz eftir nokkur ár,það er allavegann mín tilfinning.

Það er auðvitað alveg grábölvað að fara fýluferðir allveg sama hver á í hlut,en ef að maður skoðar málin hver er að veita bestu þjónustuna og besta verðið þá verður maður að halda friðinn við viðkomandi. :wink:
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby Einarsss » Mon 09. Oct 2006 20:10

ég hef alveg tekið fýlu ferð úr skeifunni uppí hafnarfjörð til TB að kaupa pústpakkningu í hálftíma hádegishléi, ég var voðalega sáttur þegar ég fékk að vita að hún væri ekki til þó að ég hafi hringt klukkutíma áður og spurt um þetta.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby jens » Mon 09. Oct 2006 20:41

Veit að það eru aðilar hér á spjallinu sem tengjast TB og skora ég á þá að koma þessari umræðu til skila, ég er ekki viss um að sá sem afgreiddi mig hafi skilið í raun hvað ég var reiður yfir að hafa farið fýluferð. Svo sé ég að þetta er ekki einsdæmi, örugglega góð verslun og því þarf þetta að komast til heyrna þeirra.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Jss » Tue 10. Oct 2006 00:47

Það er alltaf best eins og þið bendið réttilega á að fá manninn í símanum til að athuga hvort hluturinn sé ekki ábyggilega til. Hinsvegar er oft erfitt að eiga við það þegar það eiga að vera til mörg stykki af einhverjum hlut en eru síðan ekki. Getur komið fyrir á bestu stöðum svona leiðindar lagerskekkjur. Hinsvegar rekur B&L neyðarþjónustu ef þið lendið í vandræðum, man ekki hvort TB sé með eitthvað svipað.

Hins vegar er yfirleitt best að ræða svona lagað við fyrirtækið sem "brýtur af sér" áður en maður fer með það á netið. ;) Oft eru þau hin viljugustu til að hjálpa til við að redda hlutnum eins fljótt og örugglega og auðið er. Oft eru hin ýmsu mál komin á netið í einhverjum pirringi sem síðan kemur í ljós að var einungis misskilningur eða annað álíka sem auðvelt hefði verið að leysa.

Ég er ekki tengdur TB en eins og flestir/margir hér vita vann ég hjá B&L. Hef aldrei átt viðskipti við TB ef frá er talin ein dynomæling. Hins vegar kannast ég aðeins við Hafþór sem og aðra starfsmenn þarna og held ég hafi ekkert annað en gott um þá að segja.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby íbbi_ » Tue 10. Oct 2006 01:02

með fullri virðingu fyrir kúnnanum þá verður maður sem starfsmaður fyrirtækis í sona þjónustu samt að sirka út stundum hvað maður á að gera og hvað ekki, ef maður eyðir of mikin tíma í hverja einustu afgreiðslu þá fer allur dagurinn í eitthvað sem skilar sem minnstu inn, einns og þar sme ég vinn er lagerin 1 3ja hæða hús og svo 2 hæðir í öðru húsi, og það er meira en að segj það að hlaupa meðan maður er í símanum og tryggja að það sé allt til alveg öruglega, þó svo að það komi fyrir að maður geri það, veltur á tilfelli bara

ég hef lent í þessu sjálfur þar sem maður vildi fá tappa á vatnskassa í bílin hjá sér, og þegar ég flétti bílnum upp var engin tappi á honum, og því greinilega óorginal vatnskassi í bílnum, maðurinn þrætti eitthvað fyrir þetta en ég var með þetta svart á hvítu fyriri framan mig, en skoðaði allan andskotan, eldri og yngri bíla, ameríku/evrópu útgáfur til að athuga hvort þessi vatnskassi leyndist einhverstaðar, sem var ekki,

svo þegar ég kom heim og fer á netið þá er það fyrsta sem ég sé er þessi maður að drulla yfir mig og segja mig lelegan í því sem ég geri..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby IvanAnders » Tue 10. Oct 2006 07:22

Ræða þetta við TB, ef að þú ert ósáttur eftir það----->þá er pæling að setja þetta á netið :roll:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby jens » Tue 10. Oct 2006 08:10

Bíddu var ég ekki inn á gólfi í TB.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby IvanAnders » Tue 10. Oct 2006 13:43

jens wrote:Bíddu var ég ekki inn á gólfi í TB.


Svo skilst mér á þér, en mér skilst einnig að þú hafir jafnvel ekki komið óánægju þinni almennilega fram...

jens wrote:Veit að það eru aðilar hér á spjallinu sem tengjast TB og skora ég á þá að koma þessari umræðu til skila, ég er ekki viss um að sá sem afgreiddi mig hafi skilið í raun hvað ég var reiður yfir að hafa farið fýluferð. Svo sé ég að þetta er ekki einsdæmi, örugglega góð verslun og því þarf þetta að komast til heyrna þeirra.
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests