Lentum í pínu veseni með kúplingsþrælinn sem var þ.a. ég fékk þessa snilldar hugmynd að stíga á kúplingspedalann með þrælinn hangandi í lausu lofti og það endar ekki vel -(((((((((((BARA)))))))) hálfviti-
Svo þegar búið var að klambra þessu nokkurn vegin saman aftur og ég var að blæða helv.. kúplinguna og taka loftið sem hafði safnast bakvið cylenderinn í þrælnum þá setti ég hann eitthvað skakkan í og helvítið skaust inní bellhousingið....gaman gaman! Rífa allt helvítis draslið frá aftur og byrja uppá nýtt ((((((BARA-hálfvit!-)))))))).
En jæja dótið hafðist saman í kvöld á nokkrum tímum og djöfulsins svaka shift feel er með poly gírkassapúðunum, maður hefur það bara á tilfinningunni að lúkan á manni sé inní kassanum að hræra tönnunum saman---BARA í lagi
Pínu stífur í 5.gír en ekkert major, líklega BMW MTF LT2 vökvinn en hann getur víst látið svona þegar olían er ekki orðin heit.
Hlakka til að tilkeyra kvikindið á rallycrossbrautinni á sunnudag
P.s. Siggi snillingur í Mótorstillingu tók kassann í gegn hjá mér og vinnubrögðin á þeim bæ eru sko BARA í lagi,,,,,,,,,,,BARA!




