Kassinn kominn í og bíllinn byrjaður að skelfa göturnar á ný
Lentum í pínu veseni með kúplingsþrælinn sem var þ.a. ég fékk þessa snilldar hugmynd að stíga á kúplingspedalann með þrælinn hangandi í lausu lofti og það endar ekki vel -(((((((((((BARA)))))))) hálfviti-

Þegar maður er illa þreyttur og pirraður þá gerast heimskulegir hlutir, en jæja maður lærði ýmislegt af þessu, t.d. hvernig svona gaur lítur út að innan....
Svo þegar búið var að klambra þessu nokkurn vegin saman aftur og ég var að blæða helv.. kúplinguna og taka loftið sem hafði safnast bakvið cylenderinn í þrælnum þá setti ég hann eitthvað skakkan í og helvítið skaust inní bellhousingið....gaman gaman! Rífa allt helvítis draslið frá aftur og byrja uppá nýtt ((((((BARA-hálfvit!-)))))))).
En jæja dótið hafðist saman í kvöld á nokkrum tímum og djöfulsins svaka shift feel er með poly gírkassapúðunum, maður hefur það bara á tilfinningunni að lúkan á manni sé inní kassanum að hræra tönnunum saman---BARA í lagi
Pínu stífur í 5.gír en ekkert major, líklega BMW MTF LT2 vökvinn en hann getur víst látið svona þegar olían er ekki orðin heit.
Hlakka til að tilkeyra kvikindið á rallycrossbrautinni á sunnudag
P.s. Siggi snillingur í Mótorstillingu tók kassann í gegn hjá mér og vinnubrögðin á þeim bæ eru sko BARA í lagi,,,,,,,,,,,BARA!
