Jahá, greinilega mjög skiptar skoðanir
Aðal ástæðan fyrir að ég myndi frekar taka m30 er kostnaðurinn ef e-ð klikkar sem getur vel gerst í þetta gömlum bílum. Síðan virðist hann líka vera að vinna betur miðað við það sem íbbi segir. Nánast það eina sem klikkar samt í m30 er mögulega knastásinn og heddpakkning. Ef annað hvort klikkar þá tekur maður bara upp heddið og skellir volgum ás í, kostnaður upp á rúm 100k en þá á maður líka að vera gott sem skotheldur. Og eins og ég segi, þessi stóra línu sexa er e-ð svo rómuð, þetta er ALVÖRU vél. Mér er frekar illa við allt þetta skynjaradæmi og vesen í nýrri vélum. Á reyndar ekki að vera neitt vesen á m60 miðað við það sem maður heyrir.
Og með faceliftið, þá fíla ég pre- facelift betur ef einhvað er. Finnst faceliftið vera e-ð svo "bold" á meðan hinn er mun meira "sharp". En er m30 að toga betur??
540 kemur ekki til greina, alltof dýrir og vesen ef maður ætlar að mixa bsk. sem er algjört möst að mínu mati. Þá kaupi ég frekar e-ð súper gott eintak af hinum ekinn undir 100k eða álíka
Hef reyndar enga reynslu af m60, maður ætti kannski að fá að kíkja á og sitja í 730 hjá skúla við tækifæri svona til að fá fílinginn
Ætli þetta ráðist ekki bara af því hvaða eintök verða í boði uppá hvað maður velur...