Kristján Einar wrote:
ég hefði gaman ef að löggan á spjallinu myndi núna láta okkur vita hvort svona lagað væri algengt? þá meina ég með hvernig var farið með nonna þrátt fyrir að vanta handtökuheimild, og hvort þetta sé löglegt?
alls ekkert skítkast frá mér btw, bara forvitni
Nei, sem betur fer er það ekki algengt að löggan þarf að standa í svona mambói.
En staðreyndin er að í dag er töluvert að fólki sem er búið að skemma í sér heilann vegna dóp-neyslu (ótrúlegt en satt!!! prufið að halda uppi eðlilegum samræðum við gaur á 3 eða 7 nonstopp degi í "djammi"). Margir lifa í þeirri trú að þeir verði að eiga og ganga með skotvopn af því að þeir "þurfa að verja sig" (og þegar þeir fara að skulda, þá magnast þessi trú þeirra).
Það er töluvert af ólöglegum vopnum í umferð í dag, einmitt hjá þessu fólki. Það eru ekki mörg á síðan það voru notaðar byssur við uppgjör við íþróttasvæði í Breiðholti og eru blessuðu börnin okkar ekki einmitt oft að leika sér á svoleiðis svæðum
Þegar dómari gefur út leitarheimild, eins og í þessu dæmi, ganga lögreglumenn út frá því að hann hefi gert það af ríkum ástæðum (ekki afþvíbara/eða honum finnist það fyndið) og þeir taka þessu alvarlega. Þegar þetta kemur upp þá er það afgreitt hratt og ÖRUGGLEGA því ég þekki enga löggu sem langar EKKI að fara heim til sín eftir vinnu.
Það er ekki að banka á rúðuna á bíl sem talið er að innihaldi skotvopn og biðja ökumann blíðlega með bros á vör um að koma og spjalla aðeins. Ég er ekki að ætlast til að fólk skilji þetta, enda er Jón Jóns ekki látinn fara í svona verkefni.
Og þetta með að þurfa vita hverjir eru löggur hérna...ég er hérna af því að ég á BMW og tek hérna þátt sem slíkur. Ég er ekki hérna sem lögga (ég á mér líf utan vinnunnar).
Ég er meira en tilbúinn til að svara spurningum eftir því sem ég get, eins og ég er að reyna að gera hérna, en ég sé ekki tilganginn í því að taka þátt í spjallinu hérna ef ég þarf að líða fyrir vinnuna mína.
Ég er ungur og er lögga. Samkvæmt fordómunum hérna er ég fífl, þó ég hafi unnið í 7 ár og aldrei eignast einn einasta "óvin".
Stór hópur af þeim sem ég hef tekið vegna "fíkniefnarugls" hafa verið á BMW eða Bens. Samkvæmt þeim fordómum sem virðast ríkjandi hérna mætti stimpla stóran hluta af ykkur sem dópista-pakk. En þetta er ekkert annað en óþroskaður og fordómafullur hugsunarháttur sem ég vona að verði ekki standard hérna.