StoneHead wrote:
Vá, þetta er heitt umræðu efni.
Mér finnst einfaldlega þetta brot á persónuvernd.
Ég er búinn að lesa allar 7 blaðsíðurnar og ef ég skil þetta rétt að þá fékk lögreglan eina ábendingu um skotvopn.
Ríkislögreglustjóri sækir væntanlega um leitarheimild sem hann fær.
Bifreiðin er stoppuð með miklum látum, ökumaður bifreiðarinnar fylgir leiðbeiningum lögreglunnar. (Hérna ætti lögreglan að mér finnst, að hafa leitað í bifreiðinni og látið gott heita. En svo annað kom uppá daginn.)
Og þar á eftir kemur maður hlaupandi með kylfu að honum, skellir honum á skottið og handjárnar hann. (Hérna heyrist samkvæmt lýsingunni barnsgrát úr bifreiðinni sem var stöðvuð.)
Lögreglan viðhefst ekkert í því og stýjar barninu frá foreldranu, og keyrir þeim í sitthvoru lagi niðrá Lögreglustöð.
Þar kemst í ljós að þetta var allt misskilningur og lögreglan segir "Fyrirgefðu misskilninginn".
Finnst ykkur þetta rétt?
Mér er svo skít sama hversu margir lögreglumenn eru hérna inni, hvort þeir voru í vondu skapi þegar þessi atburður átti sér stað og hvað þeir heita.
Annaðhvort þarf að skerpa á einhverju innan lögreglunar eða er greindavísitalan í algjöru lámarki? Ég spyr.
Jújú, ég þekki þó nokkra lögregluþjóna sem sinna starfinu sínu virkilega vel. Og meiga þeir taka það til sín sem eiga.
HINSVEGAR, veit ég um alltof marga sem fýla sig svo rosalega stóra í þessu Uniformi! Þeir skipta TUGUM, bara þá sem ég þekki.
Svoleiðis menn koma óorði á þessa starfsstétt sem er nauðsynleg til að halda þessu landi gangandi.
Nonni, viltu gera það fyrir mig að gefa ekki MÚKK eftir í þessu máli!
Og gangi þér vel!
Mikið rétt hjá þér og þeir sáu ástæðu til að vera 2 við að járna mig
En ér er búinn að tala við fréttablaðið og barnavernd og kominn með lögfræðing þannig að þessir hálfvitar sleppa ekki neitt.
Þetta mál er svo heimskulegt og mikið klúður að það er komið yfir það að vera fyndið!
Og að það sé búið að gefa leitarheimild á einkanúmerið mitt á landsvísu er langt frá því að vera gott mál.
Ég er ekki að sjá að ég fái að aka í friði með það framvegis enda tók ég það af þessum bíl áðan.