bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 11:26

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 ... 10  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 22:22 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Þetta er leiðinlegur þráður og ennþá leiðinlegra atvik!

Held að það getu voða fáir áttað sig á þessum aðstæðum sem að Nonni er í og ég skil hann vel að vera brjálaður...

Ég væri brjááálaður líka en svona er þetta bara :(
Mistökin gerast og það er hundleiðinlegt!!

Ég vona svo sannarlega að þú komist til botns í þessu máli og gangi þér vel með það kallinn! :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 23:41 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Þessi þráður er mjög eldfimt efni.

Hér hafa verið sett inn áður nokkrum sinnum þræðir sem hafa fjallað um viðkvæm mál og af gefinni reynslu þá vil ég minnast á eftirfarandi:

Hér hefur bara komið fram ein hlið á málinu og ég vil meina að hún sé frá aðila sem er í tilfinningalegu uppnámi og ekki rétti aðilinn til að skýra hlutlaust frá atburðum. Ásamt því sem hann hefur ekki vitneskju um hina hlið málsins.

Ég hef ekki hugmynd um málavexti og myndi því fara varlega í allar yfirlýsingar um þetta. Ég er ekki að rengja einn né neinn, en ég hef lært það að oft eru tvær eða fleiri hliðar á hverju máli.

Þó svo það sé sagt að e-r hafi kjaftað frá, er það vitað með vissu?? Lögreglan sagði það, en er það víst. Ég stórefa að það sé nóg að e-r kjafti í lögguna til að svona gerist.

Er ekki frekar málið að anda í gegnum nefið og ná sér niður á jörðina áður en maður fer að tapa sér í yfirlýsingum.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 06:20 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Posts: 494
Location: Reykjavík
Ég trúi hverju einasta orði, lögreglan hefur verulega misþyrmt mér í gegnum ævina, eins og til dæmis þegar ég var 10 ára þá var ég rifin af hjólinu mínu so það datt í götuna og mér HENT utan í glugga í vallarásnum "árbærinn" og sagt hvað í andskotanum þetta ætti að þíða að hjóla HJÁLMLAUS og ég auðvitað með skítinn í buxunum og gat ekki sagt neitt, og svo þegar ég var 13 ára var ég tekinn og hent á skottið á lögraglubíl og öskrað á mig úr 5 cm fjarlægð um hvar einhyverjir aðilar væru sem að hefðu framið skemdarverk á einhverjum blaðagámi og ég vissi hvorki upp né niður, og ég hika ekki við að segja að það var helvítis asninn hann Ívar lögregluþjónn sem að er víst kominn í fíknó eða últendingaeftirlitið eða eitthvað því álíka,,

Djöfull hvað þetta pirrar mig þegar að LÖG-REGLAN misnotar starf sitt svona, það er til endalaust að af sögum um svona mál og það versta er að 1/3 af þessu er satt frá mínum öruggu heimildum,,,

Eins og til dæmis var bíllin min tekinn og stríparður af fíknó fyrir 2 árum og ég líka allt útaf því að ég var í bol sem ég keypti í dogma sem að stóð á "will work for weed" og mér fannst húmor í þessum bol en þeir dómgreindarlausu ekki,,

Ef ég væri þú þá mundi ég ekki hika við að fara með þetta mál eins langt og þú gjörsamlega getur, ég hef sjálfur lent í svo spilltum löggum yfir ævina að ég gæti talið það 3x tærnar á mér, bara dónar, lögbrjótar og "aumingjar" meirað segja þá eyddi ég 2 tímum núna í kvöld í að tala um löggu sem að er að hóta ýmsu hlutum að útlendingi sem að er að vinna með mér bara því löggan er að "ritskoðað" konuna hanns og útlendingurinn er ekki sáttur með það auðvitað,,

En þegar að upp til hópa er litið hér á íslandi þá mundi ég giska á að allavega í það minnsta 10 % af þessu svo kölluðu lögregluþjónum hér á íslandi væri hægt að kalla inná teppið og allavega í það minnsta 4% af þeim yrðu reknir..

En gangi þér vel vinur og ég vona svo innilega að þeir verði sóttir grimmilega til saka, og þeir VERÐA að hafa öruggar heimildir fyrir því að það séu vopn í bílnum OG AÐ ÞAÐ SÉ VERIÐ AÐ FARA AÐ MISNOTA ÞAU,
ef að það stenst ekki þá munu væntanlega sumir missa bónusinn út mánuðinn og ef ekki til lengri tíma....

_________________
Ekki nógu margir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 06:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 03. May 2003 18:34
Posts: 1610
Þetta er skelfileg saga. Ég styð Nonna fullkomlega í þessu.

Og fyrir þig Nonni þá lenti ég sjálfur í svipuðu atviki sem barn, þó svo gífurlega langt frá því að vera jafn svakalegt og þitt atvik og ég man ekkert eftir því sjálfur, aðeins verið sagt frá því. Þannig vonandi gleymir strákurinn þinn þessu.

Það mál náði hápunkti þegar ég, 5 ára gamall, hljóp grátandi út úr bílnum sem ég var skilinn einn eftir í, í ártúnsbrekkunni því löggan var að taka pabba og má ég þakka fyrir að hafa ekki verið keyrður niður.

P.s. ekki má gleyma því að hvað með það þó að maðurinn væri með haglabyssu í bílnum! Það er ekkert bannað! Kannski var hann bara uppá skotsvæði. Það þurfa að vera rök fyrir misnotkun vopnanna!!!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 12:07 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Helgi M wrote:
Ég trúi hverju einasta orði, lögreglan hefur verulega misþyrmt mér í gegnum ævina, eins og til dæmis þegar ég var 10 ára þá var ég rifin af hjólinu mínu so það datt í götuna og mér HENT utan í glugga í vallarásnum "árbærinn" og sagt hvað í andskotanum þetta ætti að þíða að hjóla HJÁLMLAUS og ég auðvitað með skítinn í buxunum og gat ekki sagt neitt, og svo þegar ég var 13 ára var ég tekinn og hent á skottið á lögraglubíl og öskrað á mig úr 5 cm fjarlægð um hvar einhyverjir aðilar væru sem að hefðu framið skemdarverk á einhverjum blaðagámi og ég vissi hvorki upp né niður, og ég hika ekki við að segja að það var helvítis asninn hann Ívar lögregluþjónn sem að er víst kominn í fíknó eða últendingaeftirlitið eða eitthvað því álíka,,

Djöfull hvað þetta pirrar mig þegar að LÖG-REGLAN misnotar starf sitt svona, það er til endalaust að af sögum um svona mál og það versta er að 1/3 af þessu er satt frá mínum öruggu heimildum,,,

Eins og til dæmis var bíllin min tekinn og stríparður af fíknó fyrir 2 árum og ég líka allt útaf því að ég var í bol sem ég keypti í dogma sem að stóð á "will work for weed" og mér fannst húmor í þessum bol en þeir dómgreindarlausu ekki,,

Ef ég væri þú þá mundi ég ekki hika við að fara með þetta mál eins langt og þú gjörsamlega getur, ég hef sjálfur lent í svo spilltum löggum yfir ævina að ég gæti talið það 3x tærnar á mér, bara dónar, lögbrjótar og "aumingjar" meirað segja þá eyddi ég 2 tímum núna í kvöld í að tala um löggu sem að er að hóta ýmsu hlutum að útlendingi sem að er að vinna með mér bara því löggan er að "ritskoðað" konuna hanns og útlendingurinn er ekki sáttur með það auðvitað,,

En þegar að upp til hópa er litið hér á íslandi þá mundi ég giska á að allavega í það minnsta 10 % af þessu svo kölluðu lögregluþjónum hér á íslandi væri hægt að kalla inná teppið og allavega í það minnsta 4% af þeim yrðu reknir..

En gangi þér vel vinur og ég vona svo innilega að þeir verði sóttir grimmilega til saka, og þeir VERÐA að hafa öruggar heimildir fyrir því að það séu vopn í bílnum OG AÐ ÞAÐ SÉ VERIÐ AÐ FARA AÐ MISNOTA ÞAU,
ef að það stenst ekki þá munu væntanlega sumir missa bónusinn út mánuðinn og ef ekki til lengri tíma....



Er fólk alveg að tapa sér???

Ég og félagi minn vorum handjárnaðir af leynilögreglu þegar ég var 11 ára eftir að hafa kveikt sinueld og e-ð verið að væflast í kring. Stungið inn í lögreglubíl og farið með upp á stöð. Ekki alveg rétt aðferð við 11 ára krakka. En ég get alveg sofið í dag og man ekki eftir andvökunóttum í æsku minni. Svo það er von til þess að þetta lagist nú alveg. Það hafa ábyggilega flestir strákar sem blóðið rann í æðunum í sögur að segja af kynnum við lögregluna á þessum árum. Er þetta orðin e-r sögukeppni ?

Svo finnst mér með ólíkindum hvað Helgi M er yfirlýsingaglaður.

Það er haldið fram að Ívar lögregluþjónn sé kominn í eitthvað starf... en í raun hefur sá sem skrifað hana ekki hugmynd hvar hann er niðurkominn???

1/3 af sögunum um lögregluna er sannleikur. Ert þú guð?? eða hvernig getur þú vitað að það er einmitt rétt rúmlega 33% af þessu satt? Færð þú afrit af öllum skýrslum lögreglunnar sent heim til þín? Athugar þú þær svo sjálfur í þínum frítíma?....

Ef þú hefur lent sjálfur í því 30 sinnum að það hafa verið höfð afskipti af þér af slæmum aðilum í lögreglunni... þá hefur þú væntanlega lent e-n tíman líka í allt í lagi lögregluþjónum.. það er slatti. Fyrirgefðu að ég spyr, en ert þú ekki í röngum félagsskap???

Hvernig færð þú út þessi 10% Hvað fær þig til að giska á 10% Ekki 8%, ekki 15% heldur 10%??? Er þetta ekki bara skot út í bláinn??

Svo færð þú 4% líka??? Af hverju ekki 5%????? eða bara 10%???

Mér finnst þetta bara svo fáránlegt að segja svona því ég get ekki ímyndað mér að þú hafir neitt fyrir þér í þessu nema sögusagnir sem heyrast. Veist þú kannski yfir höfðuð nokkuð hvað eru margir lögregluþjónar á landinu?? Er sama hlutfall hér í höfuðborginni og úti á landi??

Sorrý, en ef að þú ert svona raunspár þá ættir þú endilega að taka þátt í lottóinu.

Lögreglan VERÐUR ekkert að hafa öruggar heimildir fyrir því að það séu vopn í bílnum. Ég er sko ekki sérfróður maður um þessi mál, en meira að segja ég veit að það er hægt að fá leitunarheimild byggða á líkum. Eins og ég hef áður sagt, þá virkar eftirlit ekki þannig að það megi ekkert gera án þess að vera 100% viss um lögbrot. Tollverðir stoppa ekki bara fólk sem er 100% að brjóta af sér!!! Á þá að kæra þá fyrir að róta í töskunni hjá manni ef maður er ekki að smygla?

Má maður þá vera með afsagaða haglabyssu, ólöglega (ekki skráða eða stolna), rúnta um með hana í aftursætinu ef maður er ekki að fara að misnota hana? Hvernig dettur þér svona í hug? Auðvitað má enginn rúnta um með afsagaða haglabyssu bara aþþíbara. Hvernig á líka að vera hægt að sanna að einmitt núna hafi átt að fara að nota vopnið?

Tíðkast bónusgreiðslur hjá lögreglumönnum?????




Ég bara gat ekki annað en kommentað smá á þetta innlegg, mér finnst umræðan hér komin á svo barnalegt plan inn á milli. En það mega allir hafa sína skoðun á þessu máli, það er lýðræði. Þetta er mín skoðun.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 12:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Jahérna ,, skiljanleg reiði og vonbrigði,,
en ætla ekki að hafa mörg orð um þetta,,

ANSI margir sem eru búnir að því + ritskoðun er í gildi
þannig að ég nenni ekki láta stroka út

get verið ..stóryrtur

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 13:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
saemi wrote:
Þessi þráður er mjög eldfimt efni.

Hér hafa verið sett inn áður nokkrum sinnum þræðir sem hafa fjallað um viðkvæm mál og af gefinni reynslu þá vil ég minnast á eftirfarandi:

Hér hefur bara komið fram ein hlið á málinu og ég vil meina að hún sé frá aðila sem er í tilfinningalegu uppnámi og ekki rétti aðilinn til að skýra hlutlaust frá atburðum. Ásamt því sem hann hefur ekki vitneskju um hina hlið málsins.

Ég hef ekki hugmynd um málavexti og myndi því fara varlega í allar yfirlýsingar um þetta. Ég er ekki að rengja einn né neinn, en ég hef lært það að oft eru tvær eða fleiri hliðar á hverju máli.

Þó svo það sé sagt að e-r hafi kjaftað frá, er það vitað með vissu?? Lögreglan sagði það, en er það víst. Ég stórefa að það sé nóg að e-r kjafti í lögguna til að svona gerist.


Er ekki frekar málið að anda í gegnum nefið og ná sér niður á jörðina áður en maður fer að tapa sér í yfirlýsingum.
Er ég í tilfingalegu uppnámi?

Orðum þetta öðruvís:

Þetta hefði verið voða heimilislegt ef ég hefði verið með allt settið í bílnum,Konuna og 3 börn og það yngsta 5 vikna.

Svo geta ekki verið margar hliðar á þessu máli því ég hef ALDREI verið tengdur vopnum á nokkurn hátt og það ætti ekki að vera erfitt fyrir þetta pakk að fletta mér upp til að athuga það.

Hættu svo að reyna að verja þetta því það gengur aldrei upp!!!!

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Last edited by ///MR HUNG on Sun 14. May 2006 14:42, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 13:26 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Posts: 494
Location: Reykjavík
Ég skal alveg viðurkenna það að ég hafi verið að skjóta örlítið útí bláinn þarna og verið að skjóta ranghugmyndum en þó í minna lagi, og eins og kannski sést á tímanum á innlegginu þá náði ég að klára þetta og annað innlegg, og sofnaði svo á tölvuborðinu.....

En ég fer samt ekki fram hjá því að ég hef lent mjög mikið í spilltum lögreglum,, og hef heyrt mjög margar sögur frá bæði vinum og kunningjum, og svo má líka nefna það að ökukennarinn minn er árbæjarlögreglan, og þar sem ég er kominn úr árbænum þá hef ég getað staðfest flestar sögurnar með því að spyrja hann, þó að hann sjálfur sé prýðis karl og vantar virkilega fleiri hanns líka..

En ég sé það líka Sæmi að þú spyrð bara um það sem ég skýrði ekki nógu vel, enda kannski var ég ekki skýr í kollinum, og því skal ég svara því hér...

Ívar lögregluþjónn var í árbæjarlögreglunni,, hann fór svo í sérsveitina, eða fíknó er ekki viss en honum hentaði bæði störfin að mínu mati þar sem að hann nær að halda áfram hegðun sinni áfram..

Eins og frram kemur hér fyrir ofan í þessu inleggi þá er þetta stórýkt að ég viti um 33% af löggusögunum,, en ég veit þær þó mjög, mjög margar og ég veit það frá sumum aðilum sem ég þekki sem að eru "ógæfumenn" að þeim sögum er treystandi,,

Hérna hefuru ekki kannski lesið rétt eða fengið ranghugmyndir vegna ýktra fullyrðinga, ég skrifaði neðst að samkvæmt mínum einum og sér heimildum en ekki þjóðskránni eða skrýslum lögreglunnar what so ever, þá myndi ég giska á að það væri hægt að taka einn af hverjum 10 löggimann hérna í rvk og inná teppi,, en ég mundi giska á því að það væri hægt að að taka 4% eins og stendur í fyrra innlegginu og reka þá fyrir það eitt að sæma ekki lögreglunni og skyldum sínum, og þegar þú ferð að véfengja þetta þá er betra að segja þér eitt,, ég keyri að meðaltali 3 tíma á kvöldi, rúntfíkn mikil en what the hell, þannig að ég hef verið í góðu kynni við lögguna í gegnum það,, og ofan á það þá fer ég á djammið oft líka hverja helgi, þannig svo ég útksýri þetta betur fyrir þér,, þá er einn af hverjum tíu sem að ég hef lent í er "asni" og af þessum sem að mínu mati mætti tuska til væri einn af hverjum 20-30 og þannig fékk ég þetta út þó mikil ölvun væri til staðar... Svo líka skrifaru hvort að ég hefði ekki lent í þeim góðum,,, óóójúú þeir eru margir hverjir indælir löggimann og fínustu karlar,, það er ekki málið,, það er svo rosalega viðkvæmt að í samfélagi sem þessu að ef að einn af lög-reglu þjónunum fer með rangar aðferðir þá fréttist það eins og eldur um sinu,, þannig er bara ísland,

Sem og með ranga félagsskapinn, í unglingadeildinni í árbæjarskóla eru núna 400 krakkar og var líka þannig þegar að ég var þar, og svo auðvitað þegar að við klárum 10 bekkinn þá fara allir til sitthvora átta, sumir í skóla, vinna, út til útlanda, eða bara í "skóla lífsins" og með þeim ósiðum sem að mega oft koma til með að fylgja því, þannig að margir hverjir vinir mínir sem að þarna voru fóru útí skóla lífsinns, en ég tala bara við þá í dag þegar ég hitti þá og þannig, ég læt alla vitlausu nema smirnoffin í friði..

Svo að ég gfari nú að klára svörin í stuttu máli þá segi ég viuð næstu spurningum. Auðvitað má lögreglan stoppa í tékk, sama hvort það sé dóp, byssur, eða hvaðanæva sem það er,, en þú hlýtur að sjá það að það er farið með mr. hung hérna eins og stórfelldan glæpamann,, þeir hefðu alveg getað stoppað hann litið í bílinn, því að ef að hann hefði nú haft byssu eru þá einhverjar meiri líkur á að hann sé minna ógnandi með 4 bíla í kringum sig frekar en einn,, og ég veit það að menn ÞURFA að hafa heimildir sem að eiga við rök að styðjast þegar að þeir handjárna menn,, en ekki bara einhver siggi útí bæ sagði að þú hefðir verið með vopn,, þú ert handtekinn, og kastað á sinn eigin bíl með kannski nágrannana keyrandi fram hjá og fleiri....

Þú hefur nú eitthvað misskilið "bónusgreiðslurnar" ég meinti að það mætti setja sklning í það hjá þeim mönnum sem að koma sér ekki fyrir að vera ekkert annað en nema bara dónar og ruddar að svona skilaru ekki kveðju til sjálfrennandi þjóðfélags.

En ég ætla ekki að standa lengur í þessum rökræðum ég er búin að afsaka part af fyrra innlegginu og er búin að svara því helsta, og til að slétta sandinn, þá Eru þetta alfarið mínar skoðanir og frá mínu sjónarhorni..

En ég er farinn útí sólina svo hafiði góðan dag og njótið bón-sins vel :wink:

_________________
Ekki nógu margir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 13:33 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Hvernig væri bara að eyða þessum þræði?

Held að Hung vilji það líka. Allavega þjónar þessi þráður engum tilgangi hérna á bmwkrafti að mínu mati.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 14:44 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
///MR HUNG wrote:
Og varst þú kannski þarna í gær Þórir :?:


Bara til að það sé alveg á hreinu. Númer eitt: Ég var ekki þarna, ég vinn í allt öðrum geira lögreglunnar. Númer tvö: Ég myndi aldrei tjá mig, hér eða annarsstaðar, um mál sem ég kem að.

Ég skrifa ekki meir í þennan þráð. Enn og aftur, ef brotið var á þér Mr.Hung, þá hvet ég þig til að sækja rétt þinn.

Kveðja
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 15:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Þórir wrote:
///MR HUNG wrote:
Og varst þú kannski þarna í gær Þórir :?:


Bara til að það sé alveg á hreinu. Númer eitt: Ég var ekki þarna, ég vinn í allt öðrum geira lögreglunnar. Númer tvö: Ég myndi aldrei tjá mig, hér eða annarsstaðar, um mál sem ég kem að.

Ég skrifa ekki meir í þennan þráð. Enn og aftur, ef brotið var á þér Mr.Hung, þá hvet ég þig til að sækja rétt þinn.

Kveðja
Þórir I.


....what he said.

En annars er ég fullkomlega sammála því sem Sæmi er búinn að segja hérna. Gott að halda sig aðeins á jörðinni í yfirlýsingum.

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 15:32 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mr. Hung fær alla mína samúð. Ég hef nokkuð oft reynt að gera mér í hugarlund hvernig það er að vera saklaus, sviptur frelsi og það jafnvel fyrir framan börn og fjölskyldu - ég get ekki ímyndað mér margt verra í okkar þjóðfélagi.

Ég vil hinsvegar benda á nokkur önnur atriði.

Glæpamenn eiga líka börn og ég get ímyndað mér að oft séu aðstæður ófagrar fyrir litlar sálir - en aðstæður einmitt þannig að taka þurfi á þeim með mátulegri hörku.

Þetta mál virðist hafa átt sér aðdraganda og við vitum ekkert um þann aðdraganda sem leiddi til þessa máls.

Löggan virðist einmitt vera milli steins og sleggju... erfitt að sjá hvað þeir eiga gera öðruvísi ef þeir telja sig eiga við vopnaðann mann.

Ef einhver hefur klagað þig í gríni, þá á sá hinn sami alla þessa reiði skilið.

Og varðandi barnið og þessa uppákomu, þá er ég viss um að lögrlegan er til í að leggja ýmislegt á sig til að reyna að bæta fyrir skaðann. Það mætti kannski athuga það hvort ekki sé hægt að fara með strákinn í heimsókn til þeirra og sína honum "hina hliðina" á löggunni.

Að lokum, þá áttu að sjálfsögðu að leita réttar þíns ef það hefur verið brotið á þér. Ef þeir hafa brotið verklagsreglur eða slíkt, þá þarf að taka á því svo svona gerist ekki aftur.

Svo get ég ekki orða bundist, en einhver sem hefur 30 sinnum lennt í spilltri löggu - það hlýtur bara að vera einhver ástæða fyrir því :!:

*edit... á þetta ekki að vera í OFF TOPIC :D

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 17:55 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20
Posts: 104
WOW :shock: Þetta er ótrúlegur þráður!

Það var einhver sem vildi vita hverjir væru löggur hérna og ég get ómögulega skilið tilgang þess öðruvísi en að sá hinn sami vilji þessa vitneskju til að persónugera hlutina!

Ég er lögga.

Ég hef þá líka nokkrar spurningar sem ættu að vera ofur-eðlilegar í kjölfarið... bara gott að vita þetta.

Hverjir hérna nota fíkniefni?
Hverjir hérna selja fíkniefni?
Hverjir hérna stunda það að limlesta fólk af gamni sýnu?
Hverjir hérna stunda innbrot og þjófnaði.
Hverjir hérna haga sér á e-n hátt þannig að við hinir þurfum að líða fyrir þá?

P.s. það er ekkert að því að vera með haglabyssu í bílnum, ég er oft með mína en ég hef aldrei lent í vandræðum út af því væntanlega af því að hún er ekki til sýnis fyrr en komið er á skot- eða veiðisvæði.
En að saga framan af haglabyssu telst meiriháttar breyting á skotvopni, sem augljóslega engin sækir um leyfi fyrir, og þ.a.l. má afsöguð haglabyssa ekki vera neinsstaðar.
Og svo það sé alveg á hreinu, þá fær ENGIN dómsúrskurð til að leita bara út af einhverjum einum "djóker" sem bullar í lögregluna (þá gerðum við ekkert annað en að sparka upp hurðum, hægri vinstri, alla daga eins og í Hollywood-myndunum.

_________________
'88 Drusla
'88 Drusla
'99 Ekki eins mikil en samt drusla
'97 BMW 523 E39
'04 BMW X5 E53


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 17:59 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20
Posts: 104
Ójá, svo ég gleymi ekki...NEI, ÉG VAR HELDUR EKKI ÞARNA.

_________________
'88 Drusla
'88 Drusla
'99 Ekki eins mikil en samt drusla
'97 BMW 523 E39
'04 BMW X5 E53


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 14. May 2006 18:08 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
poco wrote:
WOW :shock: Þetta er ótrúlegur þráður!

Það var einhver sem vildi vita hverjir væru löggur hérna og ég get ómögulega skilið tilgang þess öðruvísi en að sá hinn sami vilji þessa vitneskju til að persónugera hlutina!

Ég er lögga.

Ég hef þá líka nokkrar spurningar sem ættu að vera ofur-eðlilegar í kjölfarið... bara gott að vita þetta.

Hverjir hérna nota fíkniefni?
Hverjir hérna selja fíkniefni?
Hverjir hérna stunda það að limlesta fólk af gamni sýnu?
Hverjir hérna stunda innbrot og þjófnaði.
Hverjir hérna haga sér á e-n hátt þannig að við hinir þurfum að líða fyrir þá?



Stoltur - lýsi ég því yfir að ég geri ekkert af þessu! Þetta síðastnefnda er þó kannski ekki beint ólöglegt... ég t.d. býð þess aldrei bætur að hafa rekist á String-Emil á spjallinu hér
:wink:

Og já, ég er ekki lögga... og þær löggur sem ég þekki persónulega eru ÚRVALS menn.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 ... 10  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group