Þórir wrote:
Já, en það er líka það sem ég er að reyna að segja: Hér er oftast bara ein hlið málsins, það er ekkert hægt að dæma málið útfrá því. Svo bendir Eggert líka á afskaplega góðan punkt: Hvað hefði gerst ef einhver tilkynnir um mann sem sé vopnaður í bíl, löggi stoppar hann og er skotinn í tætlur! Hvað gerist þá? Er þá ekki sagt að viðkomandi lögreglumenn hafi átt að fara rólegar í sakirnar og passa sig enn frekar? Kommon, við lifum bara orðið í þjóðfélagi þar sem glæpir eru að verða alvarlegri og alvarlegri og því gerast svona hlutir, þvímiður. Annars er ég alls ekki að segja að það megi ekki gagnrýna lögregluna, hún er alls ekki hafin yfir gagnrýni og í raun er það afskaplega hollt að gagnrýna störf þeirra, þannig eru menn vakandi fyrir mistökum og öðru slíku. Gagnrýni er jú rýni til gagns.
Akkúrat, nú get ég verið sammála þér.
Svo er líka alltaf spurning um hvað ef... og þá fær löggan auðvitað að súpa á því hafi þeir ekki brugðist rétt við. Það er óneitanlega svoldið hart að löggan þurfi að svara fyrir upplognar sakir þar sem óvild eða hrekkur á sér stað.
En lögmenn eru jú til þess að menn geti leitað réttar síns þegar svona gerist og það er alveg ljóst að miðað við söguna hjá Mr. Hung þá þarf einhver á aðstoð lögmanns að halda eftir þennann atburð.
Þetta mynnir mig á atvik sem átti sér stað 1997. Hér kemur sagan.
Þetta var árið þar sem laser pennarnir fóru að streyma hingað. Ég var ný kominn frá spáni og hafði gripið með mér einn slíkann. Ég var á leið úr bænum (eftir nokkra öl) á leið í eftirparty. Á ljósum við Faxafenið þá stoppar bíllinn sem skutlaði okkur og líka leigubíll þar við hliðina á okkur. Ég ríf auðvitað upp laserinn minn fína og fer að beina geislanum inn í leigubílinn við hliðna á okkur. Nú þegar komið er upp á breiðholtsbraut þá skiptir engu en blá ljós kvikna með sírenuvæli ofl. Okkur er öllum hent út úr bílnum og skipað að standa fjarri meðan vopnaleit fer fram í bílunum þar sem víst þótti að þar væri skambyssa. Löggan rústar bílnum í leit sinni að skambyssunni og er hin æstasta. Auðvitað hrópa ég nokkur vel valin orð að þeim sem fyrir þessu stóðu á meðan. Nú auðvitað finnur lögreglan enga sambyssu en fer fram á að fá að sjá í veski vasa og fleyra. Ég tek það auðvitað ekki í mál og bregst illa við þá hóta helvítin því auðvitað að stinga mér og öllum inn ef við höldum okkur ekki hæg og fær í krafti valdnýðslu sinnar fær hún sínu framgengt.
Það lækkaði auðvitað í mér rostann þar sem mig langaði ekki til að enda kvöldið í fagaklefa svo löggan fékk sínu fram en auðvitað fann hún aldrei lykklakippuna með laesernum og þurfti frá að hverfa.
Hún sagði að það hefði verið tilkynning frá vegfarenda þess efnis að skambyssa væri í bílnum (helvítins leigubíll).
Ég veit að það er ekkert ánægulegt við að vera sakaður um vopnaburð þannig að ... láttu þann sem á það skilið blæða fyrir þetta.
Edit:
Ég er ekki að segja þessa sögu til þess að skapa meiri leiðindi heldur bara að sýna fram á að þessi mistök geta og hafa átt sér stað og það er hundleiðinlegt að standa í þessu.