bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 11:07

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 10  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 15:06 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. May 2004 13:27
Posts: 1258
Nonni, make them pay.. barnið þitt getur farið veerulega illa úr þessu upp á hræðslu við lögreglumenn, martraðir etc. sem getur leitt í margar gerðir af sálarkreppum! Og líka þetta var óréttlátt gagnvart þér líka!

Láttu þá borga fyrir þetta, gerðu það fyrir okkur alla sem hafa verið böggaðir óréttlega af löggunni! Kreistu allt sem þú getur úr þessu máli! Þeir ættu að læra að svona FBI-leikir borga sig ekki þegar þeir þurfa að borga miljónir í skaðarbætur í annað hvert skipti.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 15:08 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
elli wrote:
Geirinn wrote:
Ég reyndi að vera almennilegur þegar ég var tekinn fyrir að draga bílinn minn ólöglega, þ.e. tæknilega var það tryggingasvik eða álíka bull.

Allavega, einn lögreglumaður og ein lögreglukona og ég átti erfitt með að átta mig á því hvort þeirra væri í verra skapi. Ég var sjálfur með enga stæla, eina sem ég spurði var hvort ég þyrfti að skrifa undir og mér var sagt að ég þyrfti þess.

SVO hefur maður auðvitað lennt í mjög líbó löggum sem hafa sleppt sektum fyrir ýmislegt, stuðaraleysi + plötuleysi, ekkert bílbelti, smávægilega of hraður akstur og fleira.

Það er auðvitað óréttlátt að dæma heila starfsstétt fyrir afglöp nokkurra manna. En afglöp þessara manna eru nokkuð stór og alvarleg.

En svo er líka gaman að heyra sögur af "góðum" löggum það má ekki gleyma þeim.

Já, en það er líka það sem ég er að reyna að segja: Hér er oftast bara ein hlið málsins, það er ekkert hægt að dæma málið útfrá því. Svo bendir Eggert líka á afskaplega góðan punkt: Hvað hefði gerst ef einhver tilkynnir um mann sem sé vopnaður í bíl, löggi stoppar hann og er skotinn í tætlur! Hvað gerist þá? Er þá ekki sagt að viðkomandi lögreglumenn hafi átt að fara rólegar í sakirnar og passa sig enn frekar? Kommon, við lifum bara orðið í þjóðfélagi þar sem glæpir eru að verða alvarlegri og alvarlegri og því gerast svona hlutir, þvímiður. Annars er ég alls ekki að segja að það megi ekki gagnrýna lögregluna, hún er alls ekki hafin yfir gagnrýni og í raun er það afskaplega hollt að gagnrýna störf þeirra, þannig eru menn vakandi fyrir mistökum og öðru slíku. Gagnrýni er jú rýni til gagns.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 15:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þórir wrote:

Þess vegna hefðu þeir akkúrat ekki að bösta hann þegar hann er í bílnum

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 15:25 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Þórir wrote:
Já, en það er líka það sem ég er að reyna að segja: Hér er oftast bara ein hlið málsins, það er ekkert hægt að dæma málið útfrá því. Svo bendir Eggert líka á afskaplega góðan punkt: Hvað hefði gerst ef einhver tilkynnir um mann sem sé vopnaður í bíl, löggi stoppar hann og er skotinn í tætlur! Hvað gerist þá? Er þá ekki sagt að viðkomandi lögreglumenn hafi átt að fara rólegar í sakirnar og passa sig enn frekar? Kommon, við lifum bara orðið í þjóðfélagi þar sem glæpir eru að verða alvarlegri og alvarlegri og því gerast svona hlutir, þvímiður. Annars er ég alls ekki að segja að það megi ekki gagnrýna lögregluna, hún er alls ekki hafin yfir gagnrýni og í raun er það afskaplega hollt að gagnrýna störf þeirra, þannig eru menn vakandi fyrir mistökum og öðru slíku. Gagnrýni er jú rýni til gagns.

Akkúrat, nú get ég verið sammála þér. :D

Svo er líka alltaf spurning um hvað ef... og þá fær löggan auðvitað að súpa á því hafi þeir ekki brugðist rétt við. Það er óneitanlega svoldið hart að löggan þurfi að svara fyrir upplognar sakir þar sem óvild eða hrekkur á sér stað.
En lögmenn eru jú til þess að menn geti leitað réttar síns þegar svona gerist og það er alveg ljóst að miðað við söguna hjá Mr. Hung þá þarf einhver á aðstoð lögmanns að halda eftir þennann atburð. :idea:

Þetta mynnir mig á atvik sem átti sér stað 1997. Hér kemur sagan.

Þetta var árið þar sem laser pennarnir fóru að streyma hingað. Ég var ný kominn frá spáni og hafði gripið með mér einn slíkann. Ég var á leið úr bænum (eftir nokkra öl) á leið í eftirparty. Á ljósum við Faxafenið þá stoppar bíllinn sem skutlaði okkur og líka leigubíll þar við hliðina á okkur. Ég ríf auðvitað upp laserinn minn fína og fer að beina geislanum inn í leigubílinn við hliðna á okkur. Nú þegar komið er upp á breiðholtsbraut þá skiptir engu en blá ljós kvikna með sírenuvæli ofl. Okkur er öllum hent út úr bílnum og skipað að standa fjarri meðan vopnaleit fer fram í bílunum þar sem víst þótti að þar væri skambyssa. Löggan rústar bílnum í leit sinni að skambyssunni og er hin æstasta. Auðvitað hrópa ég nokkur vel valin orð að þeim sem fyrir þessu stóðu á meðan. Nú auðvitað finnur lögreglan enga sambyssu en fer fram á að fá að sjá í veski vasa og fleyra. Ég tek það auðvitað ekki í mál og bregst illa við þá hóta helvítin því auðvitað að stinga mér og öllum inn ef við höldum okkur ekki hæg og fær í krafti valdnýðslu sinnar fær hún sínu framgengt.
Það lækkaði auðvitað í mér rostann þar sem mig langaði ekki til að enda kvöldið í fagaklefa svo löggan fékk sínu fram en auðvitað fann hún aldrei lykklakippuna með laesernum og þurfti frá að hverfa.
Hún sagði að það hefði verið tilkynning frá vegfarenda þess efnis að skambyssa væri í bílnum (helvítins leigubíll).

Ég veit að það er ekkert ánægulegt við að vera sakaður um vopnaburð þannig að ... láttu þann sem á það skilið blæða fyrir þetta. :!:

Edit:
Ég er ekki að segja þessa sögu til þess að skapa meiri leiðindi heldur bara að sýna fram á að þessi mistök geta og hafa átt sér stað og það er hundleiðinlegt að standa í þessu.

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]

Last edited by elli on Sat 13. May 2006 15:47, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 15:37 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Þetta er hrikalega leiðinlegt mál og ömurlegt að strákurinn skuli hafa þurft að horfa uppá þetta.

En hvað á lögreglan að gera?? Ég get ekki verið sammála því að þeir eigi að bíða fram á kvöld/nótt með að gera eitthvað. Ef ábendingin hefði verið rétt og lögreglan hefði rökstuddan grun um að maður væri að aka um með ólöglegt vopn, ekkert gert í málinu og síðan hefði viðkomandi gert eitthvað með þessu vopni þá get ég alveg séð fyrir mér hvers konar komment kæmu á starfshætti lögreglunnar.

Þannig að ég spyr aftur, hvað á lögreglan eiginlega að gera?? Kannski það sem kemur í hugann á mér er að þeir hefðu ALLS EKKI þurft að sýna þessa hörku eftir að Nonni var kominn útúr bílnum. Hefði eflaust verið hægt að kanna það fljótt án þess að vera með einhver læti hvort hann væri vopnaður og þá hefði ekki þurft að handjárna hann með einhverjum látum fyrir framan son hans.

Eitt annað. Mér finnst mjög lágkúrulegt þegar menn notfæra sér svona harmleiki og þráð sem þennan til að dúndra inn allskonar sögum og uppákomum um lögregluna sem eiga að réttlæta það að hægt sé að kalla þá.. tjah, flesta fífl!! Það er alveg öruggt mál að það eiga ALDREI allir eftir að vera sáttir við lögregluna. Það er bara einfaldlega vegna eðli starfs þeirra. Það munu alltaf koma upp svona hlutir og auðvitað má alltaf skoða vinnubrögðin til að sjá hvort einhvern lærdóm megi draga af því.

Ég er sannfærður um það að lögreglan hafi álitið miklar líkur á að ábendingarnar hafi verið réttar sem þeir hafi fengið varðandi þetta mál sem hér er verið að tala um. Annars hefðu þeir örugglega aldrei verið með svona víðtækar aðgerðir.

Mér þykir leitt að heyra að þú og sonur þinn hafi orðið fyrir þessu hræðilega óláni og vona að þið báðir, en þó fyrst og fremst sonur þinn, jafnið ykkur á þessu.

_________________
BMW 520d E61

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 16:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Skelfilegt að lesa svona. Farðu með þetta alla leið og sjáðu til að einhverjum sé refsað.

Aumingja krakkinn þinn að þurfa að horfa uppá svona :roll:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 16:41 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 03. Jun 2004 22:09
Posts: 457
Location: Reykjavík
elli wrote:
Þórir wrote:
Og eitt að lokum, hvaða tvíræði er það að segja "ég skil 100% að þú sért fúll sár og svektur en ekki segja frá því" það má ekki gagnrýna lögguna.
:oops:

Sæmi sagði ekki að það væri bannað að gagnrýna lögguna. Hann sagði að persónuárásir, dómar og uppnefningar væru ekki liðnar hérna. Semsagt, hann vill málefnalegar umræður. Ég sé bara ekkert að því.

_________________
M. Benz E320 Sportline '94 Svart Metallic
M. Benz E420 '94 Vínrauður
BMW 530iA '94 Diamondschwarts Metallic - Seldur
BMW 525iA E34 '94 Orientblau Metallic - Seldur
M. Benz 220E W124 '93 Ljósgrár - Seldur
BMW 316i E30 '90 Gletscherblau Metallic - Seldur

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 17:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Gefum okkur það að löggan hafi haft vel rökreistan grun um vopn í bílnum (hefði nú haldið að það þyrfti til að fá dómsúrskurð :roll: ) Að þá er náttúrulega ekkert óeðlilegt við það hvernig þeir stoppuðu hann og fengu hann til að fara útúr bílnum, en eftirleikurinn er alveg út í hött!!!!! :shock: :evil: Handjárn og soninn í annan bíl og læti er bara bull og þess vegna segi ég: Nonni- farðu ALLA leið með þetta og enn lengra með viðkomandi sem að varð valdur af þessu! :twisted:

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:03 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Joolli wrote:
elli wrote:
Þórir wrote:
Og eitt að lokum, hvaða tvíræði er það að segja "ég skil 100% að þú sért fúll sár og svektur en ekki segja frá því" það má ekki gagnrýna lögguna.
:oops:

Sæmi sagði ekki að það væri bannað að gagnrýna lögguna. Hann sagði að persónuárásir, dómar og uppnefningar væru ekki liðnar hérna. Semsagt, hann vill málefnalegar umræður. Ég sé bara ekkert að því.

Bara svo það sé alveg á hreinu þá er þetta ekki rétt haft eftir mér, s.s. ekki "quote-að" upp úr mínum texta heldur Ella.

KV
Þórir I.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:05 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Posts: 1121
Location: Rvk
Mér finnst þetta súrt fyrir þig og strákinn þinn, og ekki skemmtileg minning fyrir strákinn því hann man sennilega eftir því þegar pabbi "glæbon" var handtekinn fyrir vopnaburð... EN

Mér finnst þetta ekkert svo athugavert... Löggan fær ábendingu um að þú sért með vopn í bílnum og hún verður að vinna að málinu með það í huga... Þeir stoppa þig ekkert og rölta í rólegheitunum og spurja þig svona ´´Hva segiru er kjellin með byssu í bílnumm?´´... Þeir hafa bara ákveðnar vinnu reglur og hafa sennilega farið eftir því... Því hvað hefði getað gerst EF þú værir "maðurinn" með vopnin??? Það er engin leið fyrir þá að komast að því nema að taka þig... Ég vil endilega að löggan stoppi ALLA sem bent er á að gætu verið með vopn í bílnum... Ég vill ekki flauta á þann asna í pirringskasti á hverfisgötu...

EEEEEEEEN held að flestar löggur séu faggar engu að síður ;)

_________________
Núið:
BMW 730d '04

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:06 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
IvanAnders wrote:
Gefum okkur það að löggan hafi haft vel rökreistan grun um vopn í bílnum (hefði nú haldið að það þyrfti til að fá dómsúrskurð :roll: ) Að þá er náttúrulega ekkert óeðlilegt við það hvernig þeir stoppuðu hann og fengu hann til að fara útúr bílnum, en eftirleikurinn er alveg út í hött!!!!! :shock: :evil: Handjárn og soninn í annan bíl og læti er bara bull og þess vegna segi ég: Nonni- farðu ALLA leið með þetta og enn lengra með viðkomandi sem að varð valdur af þessu! :twisted:

Var það ekki málið? Skildist á þessu að löggan hefði verið með dómsúrskurð.
Ef svo er þá er náttúrulega ekki hægt að fara í mál við þá lögreglumenn sem voru á vettvangi vegna afglapa í starfi, þar sem þeir voru þá bara að fara eftir fyrirmælum.

_________________
Siggi

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:15 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 19:51
Posts: 50
Location: Reykjavík
Halló ... hérna er quote frá Mr Hung sem lenti í þessu;
Quote:
" var að heyra í varðstjóra áðan og þetta var víst aðgerð ríkislögreglustjóra og voru þeir með dómsútskurð um leit í þessum bíl "

Skv. þessu voru þessir blessuðu lögregluþjónar að vinna vinnuna sína. Ég myndi einmitt segja að návkæmlega svona ætti að meðhöndla svona mál.

Að gagnrýna lögregluna fyrir þetta er í lagi en að kalla hana einhverjum ónefnum og vera með skítkast er bara barnalegt.

Held samt að það þurfi fyrst og fremst að gagnrýna þann sem tilkynnti þetta til lögreglu.

Kærðu og farðu með þetta alla leið en slepptu skítkasti á þá sem eru að gera það sem þeir eiga að gera.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
basten wrote:
IvanAnders wrote:
Gefum okkur það að löggan hafi haft vel rökreistan grun um vopn í bílnum (hefði nú haldið að það þyrfti til að fá dómsúrskurð :roll: ) Að þá er náttúrulega ekkert óeðlilegt við það hvernig þeir stoppuðu hann og fengu hann til að fara útúr bílnum, en eftirleikurinn er alveg út í hött!!!!! :shock: :evil: Handjárn og soninn í annan bíl og læti er bara bull og þess vegna segi ég: Nonni- farðu ALLA leið með þetta og enn lengra með viðkomandi sem að varð valdur af þessu! :twisted:

Var það ekki málið? Skildist á þessu að löggan hefði verið með dómsúrskurð.
Ef svo er þá er náttúrulega ekki hægt að fara í mál við þá lögreglumenn sem voru á vettvangi vegna afglapa í starfi, þar sem þeir voru þá bara að fara eftir fyrirmælum.

wha...? Jú skil þig ekki alveg, ég var ekki að halda öðru fram :hmm:
En ég veit svosem ekki hver ber lokaábyrgð á þessari aðgerð en sonur hans mun að miklum líkindum bera skaða af þessu og ég hef enga trú á því að hann muni nokkurn tíma gleyma þessu og annað, maðurinn er á auðþekkjanlegum bíl með nokkuð spes einkanúmeri og þarna verður nonni fyrir því sem að mér finnst verst við leitir í bílum, að þetta er gert fyrir framan alla sem að leið eiga hjá og eins og fart benti réttilega á að þá búum við á Íslandi og kjaftasögurnar eru ekki lengi af stað.

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:34 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
Þetta er bara svo kjánalegt......

Meina, það getur hver sem er komið með einhverja ábendingu og það eru margir svo illa lyktandi og heimskir að þeir gætu reynt að klína hverju sem er á einhvern sem þeim er illa við.

Meina....ef ég hef eitthvað á móti borgarstjóranum, er þá ekki bara upplagt að hringja í lögguna og segja þeim að þarna sé kona með ak47 milli lappanna....og löggan tekur bara mark á því og fer og handtekur hana..............

Auðvitað verða að vera forsendur fyrir því sem er gert........ ég er mjög ánægður þegar löggan er að reyna að stöðva glæpamenn, en þeir eiga ekki að reyna að búa til glæpamenn!

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 13. May 2006 18:53 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 20. Mar 2006 01:40
Posts: 53
Lindemann wrote:
Meina, það getur hver sem er komið með einhverja ábendingu og það eru margir svo illa lyktandi og heimskir að þeir gætu reynt að klína hverju sem er á einhvern sem þeim er illa við.

en það skiptir ekki máli, ef löggunni er bent á e-ð ólöglegt verða þeir að tékka á því, þó að mér finnist þeir hafa geta höndlað þetta ákveðna mál mun betur

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 141 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 10  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group