Þar sem enginn hefur gefið sér tíma í að svara þessari grein (nema Elli) almennilega þá fór ég og athugaði málið aðeins. Þetta er út frá þessari síðu sem Elli sýndi hér fyrir ofan:
http://www.bmwe34.net/e34main/maintenance/electrical/capacitors.htm >
http://home.online.no/%7Est-arhol/enge32speedo.htm
Mér sýnist maður þurfi að opna mælaborðið til að skipta um perur og að þær séu þrjár en ekki tvær eins og í E30.
Þar sem rauðu hringirnir eru opnar maður mælaborðið. Á E30 væri þetta aðeins ofar og mjög svipaðar skrúfur eru í raun perustæðin. Líta nánast alveg eins út.
Hins vegar þegar búið er að opna mælaborðið þá blasir þetta við:
Þarna eru þrjú perustæði á hvíta hlutanum, þau líta alveg eins út og á E30, athuga samt að þetta er opið
E32 mælaborð en sjálfsagt mjög svipað E34 borðinu ef ekki eins.
Þarna sést svo hvar skrúfurnar fyrir mælaborðið eru.
Spurning hvort það séu skrúfur undir eða hvort þetta fellur bara í innréttinguna en þú ættir að vera mjög nálægt þessu ef þú ferð eftir þessum myndum. Ef það er listi yfir stýrinu (undir mælaborðinu) eins og í E30 þá var mér sagt að maður spennir hann bara af. Á E30 eru tvær skrúfur þar á bakvið, sitt hvoru megin.
Vona að þetta hjálpi.