Að skipta um perur í mælaborði á E34

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Að skipta um perur í mælaborði á E34

Postby D@BBI » Thu 27. Apr 2006 23:02

Er erfitt að skipta um perurnar hjá hitamælinum og sjálfskiptingunni,
kannski eitthver veit um einhvern 'Link' sem hann getur gefið upp um þetta??
Camaro árg.96
Yamaha V-star. 06
Citroen C-4 06
D@BBI
Kassabílstjóri
 
Posts: 152
Joined: Mon 10. Apr 2006 20:55
Location: Kópavogur

Postby Geirinn » Thu 27. Apr 2006 23:40

Ef að þetta er eins og í E30 sem ég tel vera góðar líkur þá er ein pera sem lýsir upp bensínmælinn og hraðamælinn og önnur sem lýsir upp snúningsmælinn og hitamælinn.

Ef maður losar plastið sem er yfir pedulunum þá eru þetta tvö perustæði sem sjást sem líta c.a svona út ( / ) sem maður snýr. Það er ekki skrúfgangur heldur er nóg að snúa eins og hálfan hring eða svo.

Hin ljósin eru þarna líka, nema þau eru aðeins öðruvísi, þá er vír sem liggur í perustæðið að mig minnir.

Sé þetta öðruvísi þá lýsum við hér með eftir lýsingu á því :)
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby D@BBI » Sat 29. Apr 2006 01:17

ég er góður að taka hluti í sundur, enn þegar það er komið að þvi að setja þá aftur saman þá bara ??? Ennfremur ég ætla að grúska aðeins í þessu.
Camaro árg.96
Yamaha V-star. 06
Citroen C-4 06
D@BBI
Kassabílstjóri
 
Posts: 152
Joined: Mon 10. Apr 2006 20:55
Location: Kópavogur

Postby elli » Sat 29. Apr 2006 12:03

Þessi er ágætur
http://www.bmwe34.net/E34main.htm

Síðan er þessi flottur neðarlega hægramegin er fullt af E34 og E32 (mikið sama dótið) linkum
http://www.e38.org/e32

kv.

elli
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Geirinn » Sat 29. Apr 2006 12:17

Þar sem enginn hefur gefið sér tíma í að svara þessari grein (nema Elli) almennilega þá fór ég og athugaði málið aðeins. Þetta er út frá þessari síðu sem Elli sýndi hér fyrir ofan:

http://www.bmwe34.net/e34main/maintenance/electrical/capacitors.htm > http://home.online.no/%7Est-arhol/enge32speedo.htm

Mér sýnist maður þurfi að opna mælaborðið til að skipta um perur og að þær séu þrjár en ekki tvær eins og í E30.

Image

Þar sem rauðu hringirnir eru opnar maður mælaborðið. Á E30 væri þetta aðeins ofar og mjög svipaðar skrúfur eru í raun perustæðin. Líta nánast alveg eins út.

Hins vegar þegar búið er að opna mælaborðið þá blasir þetta við:

Image

Þarna eru þrjú perustæði á hvíta hlutanum, þau líta alveg eins út og á E30, athuga samt að þetta er opið E32 mælaborð en sjálfsagt mjög svipað E34 borðinu ef ekki eins.

Þarna sést svo hvar skrúfurnar fyrir mælaborðið eru.

Image

Spurning hvort það séu skrúfur undir eða hvort þetta fellur bara í innréttinguna en þú ættir að vera mjög nálægt þessu ef þú ferð eftir þessum myndum. Ef það er listi yfir stýrinu (undir mælaborðinu) eins og í E30 þá var mér sagt að maður spennir hann bara af. Á E30 eru tvær skrúfur þar á bakvið, sitt hvoru megin.

Vona að þetta hjálpi.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby elli » Sat 29. Apr 2006 12:55

þetta er flott svar hjá þér hér að ofan.

Mér finnst að við sem erum búnir að vera hérna á spjallinu lengi verðum að passa svoldið og gefa okkur tíma í að svara þeim sem sem eru nýrri hér á spjallinu með því að benda þeim á síður og svo framvegis. Þó svo þetta séu kanski síður sem við erum búinir að þekkja lengi þá er ekki víst að allir viti um þær og þær hafa oft að geyma nytsamlegar upplýsingar.

Flott svar hjá þér Geirinn.

kv. elli
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Geirinn » Sat 29. Apr 2006 23:28

:)

Reif E30 borð úr bíl í dag. Eini munurinn á greininni minni væri þá þessi:

Listinn sem er fyrir ofan stýrið, undir mælaborðinu er festur með tveimur handskrúfuðum boltum sitt hvoru megin, maður kemst að þeim ef maður tekur spjaldið fyrir ofan pedalana af.

Annars er þetta pretty much straight forward. Rifum reyndar stýrið úr til að auðvelda vinnuna, það var 1x22mm ró ef maður spennir flautulokið af með skrúfjárni (mjööög mismunandi eftir stýrum þó hvernig maður kemst undir þetta allt saman).

Rafmagnsleiðslurnar eru dáldið tricky. Það eru svört hlíf yfir snúrunum sem maður fer með skrúfjárn undir og kippir upp. Þá getur maður unpluggað tengjunum auðveldlega. Svarta stykkið losnar btw. ekki frá heldur helst fast við hausinn á snúrunni.

Svo er bara spurning hvort þetta sé eins í E34 :)
Last edited by Geirinn on Wed 03. May 2006 08:50, edited 1 time in total.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby D@BBI » Tue 02. May 2006 22:59

Ég þakka fyrir upplýsingarnar,þær eru eftir að koma sér að notum :D
Camaro árg.96
Yamaha V-star. 06
Citroen C-4 06
D@BBI
Kassabílstjóri
 
Posts: 152
Joined: Mon 10. Apr 2006 20:55
Location: Kópavogur

Postby Svingur » Wed 03. May 2006 00:58

Jabb sömuleiðis takk :wink:
BMW 530i 1988
to be 535i+

MIG LANGAR SVO....
Svingur
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Fri 31. Mar 2006 00:18
Location: Grafarvogur

Postby max_ice » Wed 03. May 2006 17:06

fann alveg ágætis lýsingu á því hvernig á að skipta um perur í mælaborðinu http://www.bimmernut.com/~billr/images/airBagAndBulbs_files/airBagAndBulbs.html
vona að þetta hjálpi
Lalli S: 8926622
Image
E32 750i "91
Volvo S70 2.4l "00
User avatar
max_ice
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 54
Joined: Mon 15. Nov 2004 10:52


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests