E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að klárast

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Postby bimmer » Fri 28. Apr 2006 12:43

Nei er ekki kominn með bílinn og fæ hann á hádegi á morgun.

Þetta er farið að verða ansi langdregið :roll:

Þeir voru komnir með kassann í í gær og ég hélt að ég væri að fá símtal þar sem mér væri sagt að ná í bílinn en..... "Wir haben ein problem".

Þeir fóru prufurúnt og þetta var ekki kassinn. WTF!!!

Hann hélt áfram og sagði að málið væri brotin lega í drifinu.

Nú var mér eiginlega öllum lokið. Hvernig þeir gætu fokkað bilanagreiningunni svona. Ok, en það var ekkert um annað að ræða en að panta nýtt unit og það kemur í fyrramálið. Þeir ræsa út gaura klukkan 6 til að byrja á þessu.

Mér fannst þetta mál allt hið skrýtnasta og Frank hóteleiganda líka. Ég spurði hann hvort þessir gaurar væru competent og hann vildi meina það _EN_ honum fannst þetta mál ekki í lagi.

Þannig að við fórum í dag Frank og ég yfir í umboð til að hann gæti fengið söguna frá fyrstu hendi og fullvissað sig um að það væri ekki eitthvað ripoff rugl í gangi. Það var farið yfir stöðuna og þeir voru voða aumir yfir þessum mistökum með kassann og buðust til að taka hann aftur úr og setja gamla í á sinn kostnað.

Eftir mikið japl jaml og fuður þá varð útkoman sú að ég fæ kassann með afslætti og borga ekki fyrir ísetninguna.

Þannig að eins og ég sé þetta þá voru 2 bilanir í bílnum þegar ég kom hingað (þe. kassinn með skiptivesen í 1-2 og ískur í átaki og svo drifskaftsupphengjan með slátt í léttu átaki) og svo brotnaði legan í átökunum á sunnudaginn. Þannig að það voru margir hlutir sem voru að rugla kallagreyin.

Þannig að nú er kvikindið að verða eins og nýtt, amk. drifrásin.

Hér eru nokkrar myndir frá því í dag. Fyrst er Frank (til hægri) að tala við Eckhart (vinstri) sem er contactinn hjá umboðinu. Þetta er eftir að Frank var að grilla hann og hann farinn að brosa aftur:
Image

Skiptingin, drifið og fleira úr bílnum út um allt gólf:
Image

Image

Bifvélavirkinn að sýna Frank steikina í drifinu:
Image

Hér er svo closeup en þetta sést ekki nógu vel:
Image

Frank sagði mér eftirá að þetta umboð er að keppa og að þeirra bíll, M3 með S62 vél hefði verið stúderaður ansi mikið af verkfræðingum frá BMW áður en þeir komu með sinn M3 GTR. Honum fannst sniðugt að svona lítið umboð gæti kennt stórfyrirtækinu.

Annars hefur maður nóg að gera hérna, get unnið í gegnum síma og tölvutengingu og er að fara á eftir á hringinn sem farþegi í þessum:

Image

Image

Image

Image

Mér finnst það reyndar ekkert rosalega traust að driverinn sé á hækjum en ætla samt að taka sénsinn :)
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby IvanAnders » Fri 28. Apr 2006 12:51

ussss.... leiðinlegt með greininguna, kemur fyrir á bestu bæjum og það lítur út fyrir að þeir hafi verið sanngjarnir :) Gott að bíllinn sé að koma á ról aftur.

Djöfull ertu hrikalega heppinn með að fá hringi í hinum og þessum öfgatólum :P
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby e30Fan » Fri 28. Apr 2006 12:54

samhryggist með leiðindin... enn fyrst að þetta varð að gerast þá er nú öruglega aðeins betra að þetta skeði í heimalandinu hefur sparað þér nokkra aura þar...

endilega haltu áfram að dæla myndunum inn :!: þetta er hin besta skemmtun fyrir okkur hina á klakanum :)
e30Fan
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 348
Joined: Sat 11. Sep 2004 15:33

Postby Eggert » Fri 28. Apr 2006 13:31

e30Fan wrote:samhryggist með leiðindin... enn fyrst að þetta varð að gerast þá er nú öruglega aðeins betra að þetta skeði í heimalandinu hefur sparað þér nokkra aura þar...

endilega haltu áfram að dæla myndunum inn :!: þetta er hin besta skemmtun fyrir okkur hina á klakanum :)


...what he said. :P En hvernig er það, ertu þá bara búinn að kaupa nýjan kassa í ONNO og átt annan (heilan?) for spare?
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Arnar » Fri 28. Apr 2006 14:26

Rosalega gaman að fá að fylgjast með þér. Þú skemmtir þér greinilega vel.
Virkilega góðar myndir hjá þér !

Á hvaða tíma varstu sirka að klára hringinn, áður en þú braust leguna ?
Arnar
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Wed 19. May 2004 12:59

Postby fart » Fri 28. Apr 2006 15:19

Arnar wrote:Rosalega gaman að fá að fylgjast með þér. Þú skemmtir þér greinilega vel.
Virkilega góðar myndir hjá þér !

Á hvaða tíma varstu sirka að klára hringinn, áður en þú braust leguna ?


Það er rosalega erfitt að taka nákvæman tíma þar sem brautin er slitin í sundur með vegtolli.. Þórður var að fara mjög hratt yfir miðað við fyrstu tilraun, en ég veit með mig að eitt sinn fór ég út á brautina á eftir Ringtaxi og hún hefur klárað hringinn svona 20-25 sek á undan mér, allavega missti ég hanan ekki það mikið frá mér.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby fart » Fri 28. Apr 2006 15:19

Arnar wrote:Rosalega gaman að fá að fylgjast með þér. Þú skemmtir þér greinilega vel.
Virkilega góðar myndir hjá þér !

Á hvaða tíma varstu sirka að klára hringinn, áður en þú braust leguna ?


Það er rosalega erfitt að taka nákvæman tíma þar sem brautin er slitin í sundur með vegtolli.. Þórður var að fara mjög hratt yfir miðað við fyrstu tilraun, en ég veit með mig að eitt sinn fór ég út á brautina á eftir Ringtaxi og hún hefur klárað hringinn svona 20-25 sek á undan mér, allavega missti ég hanan ekki það mikið frá mér.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby hlynurst » Fri 28. Apr 2006 16:00

Það er búið að vera virkilega gaman að lesa um þetta ferðalag hjá þér og félgunum. Endilega að halda áfram að pósta svo lengi sem þú verður þarna. :)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Fri 28. Apr 2006 17:51

Eggert wrote:...what he said. :P En hvernig er það, ertu þá bara búinn að kaupa nýjan kassa í ONNO og átt annan (heilan?) for spare?


Jamm, nýr kassi kominn í og sá gamli með sína galla er kominn hingað í skúrinn á hótelinu. Frank ætlar að tékka fyrir mig hvað það kostar að laga hann hjá vini sínum hjá Getrag - þarf ekki að vera rosa dýrt þar sem hann er ekkert í rúst - væntanlega syncro mál.

Svo tókum við líka drifið með okkur því hann þekkir líka gaura sem taka svona drif og endurbyggja sterkari.... :naughty:
Þarf ekki að vera rosa dýrt ef þetta er bara þessi lega og hefur ekki skemmt meira útfrá sér.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Fri 28. Apr 2006 17:57

Arnar wrote:Rosalega gaman að fá að fylgjast með þér. Þú skemmtir þér greinilega vel.
Virkilega góðar myndir hjá þér !

Á hvaða tíma varstu sirka að klára hringinn, áður en þú braust leguna ?


Fyrst þegar ég var að spá í að fara á hringinn þá var maður að spá í svona hlutum eins og hringtíma.

Eftir að hafa lesið mig til á www.nurburgring.org þá (sem betur fer) hætti ég alveg að hugsa um það og ákvað að fara rólega fyrst og vinna mig svo hægt og rólega upp.

Það er beinlínis stórhættulegt að vera að spá í hringtíma í sinni fyrstu heimsókn.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Arnar » Fri 28. Apr 2006 18:43

Já skiljanlega og erfitt ef brautin er slitin í sundur eins og fart segir.

Hvernig er tryggingarmálum háttað hjá þér þarna úti og sérstaklega á brautinni, ertu á eigin ábyrgð eða færðu tjón borgað ef þú klessir ?
Arnar
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Wed 19. May 2004 12:59

Postby bimmer » Fri 28. Apr 2006 19:07

Arnar wrote:Já skiljanlega og erfitt ef brautin er slitin í sundur eins og fart segir.

Hvernig er tryggingarmálum háttað hjá þér þarna úti og sérstaklega á brautinni, ertu á eigin ábyrgð eða færðu tjón borgað ef þú klessir ?


Það er svolítið loðið mál. Það fer mikið eftir tryggingafélögum.

Lestu smáa letrið í tryggingasamningnum þínum - sjáðu hvað þeir segja um kappakstur eða æfingar fyrir kappakstur.

Samt er brautin skilgreind sem venjulegur tollvegur í Þýskalandi þannig að það væri sjálfsagt hægt að rífast svolítið.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Bjarkih » Fri 28. Apr 2006 19:49

Það eru svör við flestum spurningum á síðunni sem Þórður benti á að ofan. Hérna er tryggingakaflinn: http://nurburgring.org.uk/insurance.html
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby bimmer » Fri 28. Apr 2006 22:17

Jæja, hér kemur smá framhald af myndunum sem ég sendi inn um daginn. Þetta er semsagt dagur 2 af þjálfuninni sem bílablaðið var með.

Þegar ég mætti þennan dag sá ég að þetta yrði góður dagur því þetta blasti við á leið út á hringinn:
Image
Ekki beint á hverjum degi sem maður sér svartan Carrera GT.

Svo er ég helvíti hrifinn af þessum - held að þetta sé að vísu ekki M3 (ekki oo oo) en verulega agressíft look á honum:
Image
Image
Image
Image

Síðan kemur sá svarti aftur inn:
Image
Image
Image
Nú er farþeganum skipt út og svo fer bíllinn aftur út á braut - þessi í rauðu úlpunni stjórnar þessu - komum að honum síðar... :
Image
Þegar hann fer út á brautina þá heyrir maður lítið meðan hann fer út fyrir 30km/h svæðið og út fyrir keilurnar en svo kemur alveg hrikalegt öskur sem hljómar eins og beint frá kölska sjálfum. Þessi bíll býr til flottasta sound ever, punktur. Menn hafa verið að segja að minn bíll búi til djöfullegt sound en hann er bara pínu púki miðað við þennan.

Hér er einn fallegur Porsche breyttur af Cargraphic, þeim sömu og ég ætlaði að versla felgur af fyrir M5inn:
Image

Skömmu seinna kemur sá svarti aftur en gerir sér lítið fyrir og fer í burtu mér til mikilla vonbrigða:
Image
Image
Image
Image

Þrátt fyrir skiltið að neðan þá kíkti ég inn fyrir grindverkið við brautina og nú var beini kaflinn opinn og menn voru að blasta framhjá á fullum hraða. Hér skipti ég líka yfir í stóru linsuna, Canon 70-200IS:
Image
Image
Image

Hér er keppnis Honda sem söng hátt í:
Image

Carrera GT bíllinn kominn aftur, greinilega verið að taka bensín þegar hann fór. Hér er verið að skipta um farþega. Búinn að komast að því að þeir sem tóku þátt í þjálfuninni fá hring í bílnum með professional driver:
Image

Ákvað að labba meðfram brautinni og mynda á sömu stöðum og deginum áður en nota nú stóru linsuna enda fannst mér myndirnar of víðar sem ég tók áður. Hér er ég kominn við fyrstu brúna:
Image
Image

Nú voru menn að keppa á fullu innbyrðis og hörku barátta í brautinni:
Image
Image

En það átti enginn breik í þennan, hvorki í hraða, looki eða soundi :)
Bara bilun þegar hann blastaði framhjá á fullri gjöf og raðaði inn gírunum:
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Slagur í gangi:
Image
Image

Hér er ég kominn á armco bekkinn flotta:
Image
Image
Image
Image
Image

M6 í skóginum:
Image

Kominn lengra upp í Tiergarten:
Image
Image
Image

Hér má sjá tilfæringarnar við að koma linsunni í gegnum girðinguna - notaði ónýtan stól sem ég fann þarna til að spenna gaddavírinn upp og beyglaði toppinn á vírnetinu. Tókst samt að rispa mig á helv. gaddavírnum:
Image

Hér er ég svo kominn rétt fyrir kröppu hægri beygjuna yfir brúna og það er ruddalegi þristurinn enn og aftur:
Image

Vel blandaður hópur:
Image

GT3 - svolítið "race" leg mynd svona í gegnum öryggisnetið:
Image

Svo kom þessi náttúrulega öskrandi:
Image
Image
Image

Eftir þetta labbaði ég til baka og á leiðinni fór ég að spá í að maður yrði að reyna að fá hring í kvikindinu. Fór síðan og talaði við kappann sem stjórnaði og hann bara tók vel í það og sagði mér að koma svona hálftíma áður en Touristfahrt byrjaði. Úje.

En fljótlega skipast veður í lofti - í orðsins fyllstu:
Image

Hellirigning og ég fékk ónotatilfinningu um að þetta hefði einhver áhrif á að ég fengi rúnt:
Image
Image
Image
Image

Þetta reyndist rétt hjá mér. Ökumaðurinn sagðist hafa átt scary moments í bleytunni og sá sem stjórnaði sagði að þeir væru bara tryggðir vegna þeirra sem væru á námskeiðinu og hann gæti ekki tekið séns með að láta mig fara hring í þessu færi. FUCK!!!! Held að ég hafi aldrei hatað rigningu eins mikið og þarna. Hefði hann hangið þurr væri ég nú búinn að fara hring á Nurburgring með pro driver á Carrera GT :shock:

Annars virtist þessi ökumaður vera einhver stjarna þó að ég þekkti hann ekki, það hneigðu sig allir og buktuðu. Bíllinn var fenginn frá Porsche þannig að hann er ekki eigandinn.
Image

Annars létu menn rigninguna ekki stoppa sig og keyrðu á fullu blasti:
Image

Menn ekki lengi að tjakka Honduna upp :)
Image


Síðan sá ég þá parkera þeim svarta og fór og skoðaði hann nánar - afsakið myndafjöldann en ég bara get skoðað þennan bíl endalaust:
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Þannig að þrátt fyrir að veðrið væri ekki sem best þá var þetta bara ágætis dagur :)
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Aron Andrew » Sat 29. Apr 2006 00:36

Úff, maður fær bara fýlingin beint í æð :)

Ég held að túr eins og þessi sé nauðsynlegur fyrir alla bílaáhugamenn og konur.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests