Þetta er farið að verða ansi langdregið
Þeir voru komnir með kassann í í gær og ég hélt að ég væri að fá símtal þar sem mér væri sagt að ná í bílinn en..... "Wir haben ein problem".
Þeir fóru prufurúnt og þetta var ekki kassinn. WTF!!!
Hann hélt áfram og sagði að málið væri brotin lega í drifinu.
Nú var mér eiginlega öllum lokið. Hvernig þeir gætu fokkað bilanagreiningunni svona. Ok, en það var ekkert um annað að ræða en að panta nýtt unit og það kemur í fyrramálið. Þeir ræsa út gaura klukkan 6 til að byrja á þessu.
Mér fannst þetta mál allt hið skrýtnasta og Frank hóteleiganda líka. Ég spurði hann hvort þessir gaurar væru competent og hann vildi meina það _EN_ honum fannst þetta mál ekki í lagi.
Þannig að við fórum í dag Frank og ég yfir í umboð til að hann gæti fengið söguna frá fyrstu hendi og fullvissað sig um að það væri ekki eitthvað ripoff rugl í gangi. Það var farið yfir stöðuna og þeir voru voða aumir yfir þessum mistökum með kassann og buðust til að taka hann aftur úr og setja gamla í á sinn kostnað.
Eftir mikið japl jaml og fuður þá varð útkoman sú að ég fæ kassann með afslætti og borga ekki fyrir ísetninguna.
Þannig að eins og ég sé þetta þá voru 2 bilanir í bílnum þegar ég kom hingað (þe. kassinn með skiptivesen í 1-2 og ískur í átaki og svo drifskaftsupphengjan með slátt í léttu átaki) og svo brotnaði legan í átökunum á sunnudaginn. Þannig að það voru margir hlutir sem voru að rugla kallagreyin.
Þannig að nú er kvikindið að verða eins og nýtt, amk. drifrásin.
Hér eru nokkrar myndir frá því í dag. Fyrst er Frank (til hægri) að tala við Eckhart (vinstri) sem er contactinn hjá umboðinu. Þetta er eftir að Frank var að grilla hann og hann farinn að brosa aftur:
Skiptingin, drifið og fleira úr bílnum út um allt gólf:
Bifvélavirkinn að sýna Frank steikina í drifinu:
Hér er svo closeup en þetta sést ekki nógu vel:
Frank sagði mér eftirá að þetta umboð er að keppa og að þeirra bíll, M3 með S62 vél hefði verið stúderaður ansi mikið af verkfræðingum frá BMW áður en þeir komu með sinn M3 GTR. Honum fannst sniðugt að svona lítið umboð gæti kennt stórfyrirtækinu.
Annars hefur maður nóg að gera hérna, get unnið í gegnum síma og tölvutengingu og er að fara á eftir á hringinn sem farþegi í þessum:
Mér finnst það reyndar ekkert rosalega traust að driverinn sé á hækjum en ætla samt að taka sénsinn

