bebecar wrote:
Ertu búin að fá bílinn tilbaka Þórður og fórstu fleiri hringi?
Neibb, málið var meira en leit út fyrir í fyrstu.
Það þurfti að skipta um gírkassa
Það hafa náttúrulega verið að koma allskonar óhljóð úr drifrásinni (kassi eða kúpling) sem ég hef verið að reyna að losna við og þeir snillingarnir hjá TB voru búnir að hlusta kassann og sögðu að það væru óhljóð úr honum. Svo náttúrlega hefur verið vesen í 1-2 skiptingunni.
Þannig að ég hef svosem átt von á því að kassin færi fyrr en seinna en var nú að vona að hann færi ekki svona fljótt en Nurburgring hefur verið náðarhöggið.
Var búinn að skoða hvað það var mikið mál í $$$ heima og það góða er að það er helmingi ódýrara hér úti
Þeir fá kassann í fyrramálið og ef allt gengur eftir þá kemst ég af stað seinnipartinn.
Snillingurinn Frank hérna á Ringhaus hótelinu ætlar síðan að fá vin sinn hjá Getrag til að græja gamla kassann þannig að ég get annaðhvort átt varakassa eða selt hann á ebay.
Annars má alveg hugsa sér verri staði til að vera fastur á

Búinn að eyða deginum í að mynda og skoða góða myndatökustaði við brautina.
Fékk ekki fleiri ride því að það kom hellidemba snemma í Touristfahren í dag og allt rennblautt. Fer ekki út á þessa braut í bleytu

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...