Okey, takk fyrir þessa punkta bebecar/ Hr Ingvar Örn. Akkurat svona hlutir sem mig langar til að vita. Og bara endilega meira svona.
En samt please take it easy. Í sambandi við að ég nefndi annann klúbb þá átti það bara að vera létt grín sem greinilega sumir taka dálítið alvarlega svo við skulum bara sjúga uppí nef, taka chillpill, gleyma því, stroka það út og ekki nefna það frekar. Allir happy þá?
Í sambandi við þessa hugmynd þá er þetta bara hugmynd. Ég er enginn sérfræðingur um þetta svæði. Ég er bara gaur sem bý í bænum og hef bara nokkrum sinnum farið þarna frammhjá og aldrei tekið eftir þessu áður eða pælt í þessu svæði. Það var ekki fyrr enn síðasta sumar sem ég frétti af þessari flugbraut vegna þess að ég fór að spyrjast fyrir um hvort það væri til eitthvað svona svæði. Semsagt annaðhvort yfirgefin flugbraut, atvinnusvæði eða annað nýtilegt.
Ég í rauninni veit voða lítið um þetta svæði. Við svæðið eru nokkur svona skilti sem vara við sprengjuhættu. Afhverju ætti ég sem veit svona lítið í raun um þetta svæði að fara ignora þau skilti?
Svo annað, hver á svæðið í dag? Tilheyrir það varnarliðinu eða á Reykjanesbær það eða einhver annar?
Það eru greinilega fleyri en ég sem þekki fólk sem vinnur og hefur unnið á og/eða nálægt þessu svæði og veit miklu meira en ég ...og aðrir. Please bara gera þennan þráð frekar að information þráð í stað einhvers rifrildis.
Ein spurning þá til bebecar. Hver er Friðþór?
Ég er ekki að reyna vera neinn smarte-pants hérna, og ég er ekki í neinu spurningarliði, en mín Íslandssaga segir að Bretinn hafi komið hingað fyrstur þann 10. Maí 1940 og meira að segja að nóttu til, og þegar flestir voru um 60.000 hermenn á meðan Íslendingar töldu aðeins um 100.000. Bretar fóru ári seinna vegna stíðsins í evrópu, Bretar þurftu á öllum sínum hermönnum að halda. Ég þekki það ekki alveg hvernig það var, hvort það var á milli breta og bandaríkjamanna eða íslendinga og bandaríkjamanna að bandaríkjamenn komu hérna þegar bretarnir fóru 1941, og hafa verið alla tíð síðan. Flugvellirnir í Keflavík Patterson og Meeks var fljótlega byrjað á. Patterson fór strax í notkun sumarið 1942 sem bráðarbyrðaflugvöllur á meðan Meeks eða semsagt forrveri núverandi Keflavíkurflugvallar var í smíðum. Mér skilst að Patterson hafi ekki verið í notkun sem fluvöllur nema i 1 ár og var Meeks tekinn í notkun 1943. Þótt þetta hafi ekki verið dýrasta, þá var þetta með dýrari herframkvæmdum á þessum tíma. Lítið meira veit ég um þetta.
Mér finnst bara alveg hrikalega sorglegt og lame að það sé ekki til ein einasta almennileg aksturbraut á landinu. Og í hvert skipti sem þessi umræða kemur upp þá fara menn að dreyma um að fá upphitaða Formula 1 hingað til lands. Það eru bara því miður draumur uppí skýjunum. Og hvað eigum við líka að gera við fúllbúnar braut sem stenst allar kröfur Formúla 1. Við höfum nákvæmlega ekkert við það að gera. Okkur vantar bara einfalda braut.
Ég kom með þessa hugmynd, tja, í sannleika sagt, aðeins til að kveikja í mönnum. En semsagt, svona við fyrstu sýn þá sýnist mér voða lítið í raun þurfa að gera við svæðið til að byrja og búa til lítinn hring. Þetta layout sem ég teiknaði sem braut er bara ein af mínum hugmyndum, alveg hægt að búa til öðruvísi layout og alveg örugglega sem eru álíka góð eða jafnvel betri en mín hugmynd.
Hérna er ein smá hugmynd í viðbót.
Gefum okkur það að svæðið fengist afhent undir þetta, öll leyfi komin og einhverjir smá peningar til í spilinu. Hver er að segja að það þyrfti að malbika allt svæðið á einu bretti?
Bláa bogalínan til vinstri er Hafnarvegurinn sem er til partýbæjarins Hafnir og mest allt vinstra megin við hann er innan girðingar hjá varnarliðinu. Rauða skálínan til hægri er að ég held heitavatns-stokkurinn fyrir Keflavík/Reykjanesbæ.
Ef svæðið yrði gert í skrefum þá er þetta mín hugmynd, og aftur segi að þetta er bara hugmynd sem ég fékk.
Stage 1, gula línan. Þetta væri fín byrjun. Væri um 2,7 km að lengd. Hægt væri að leggja bifreiðum hjá húsinu sem er á miðri mynd eða grænu stuttu línunni sem er á milli gulu línunnar og bleiku. Einnig hægt að nota Vestur/Austur flugbrautina sem kvartmílubraut.
Stage 2, græna línan. Svona gæti brautin verið orðinn allt að 3,6 km að lengd. Græni kassinn væri malbikað svæði sem mögulegt væri að nota í drift keppnir, auto-x, og sem æfingarsvæði fyrir unga fólk sem er að læra eða nýkomið með réttindi.
Stage 3, bleika línan. Einfaldur hringur sem gæti verið um 4,4 km að lengd. Hægt að búa til undirgöngin undir brautina að norðaverðu.
Stege 4, hvíta línan. Þarna er brautin sem ég bjó til komin og tilbúin. 6,5 km löng braut! En bara þessi hvíta lína væri um 1 km að lengd. Ég veit svosem ekki hvernig undirlendi er þarna en ég held að undir þennann kafla þyrfti að búa til alveg nýtt undirlag. Þannig þetta er ekki ódýr kafli.
Ef þið horfið á þetta með þessu hugarfari, er þetta þá svo klikkað? Er það?
Enginn að segja að mínar hugmyndir séu eitthvað heilagar, endilega komið með ykkar hugmyndir.
Ef uppi eru hugmyndir með uppbyggingu á þessu svæði. Gera þetta að her-sögu-safni/safngrip. Ekki hleypa fólki inn á þetta vegna “mikillar” sprengjuhættu. Eða eitthvað annað. Þá hefði ég áhuga á að vita það, og þá nær þetta bara ekki lengra.
Fyrir áhugasama þá eru þessar loftmyndir teknar úr Earth Google og ef maður ýtir á Ctrl+6 fær maður mælingardót sem er nokkuð nákvæmd. Ég veit nákvæma lengd á nokkrum stöðum og er búinn að sannreyna þessa mælistyku og það er ekki nema um sirca 5% skekja í henni af minni reynslu.