Fór á Norðurslaufuna í dag..
til að nota viðeigandi orðalag þá var þetta ,,,,,,,,,BARA,,,,,,, í lagi!
Brautin er akkúrat 60mín frá mér ef ég keyri svolítið stíft. Þessi braut og þetta svæði er monster. Risa stórt, og vel skipulagt.
Það var rigning þegar ég kom og fáir á brautinni. En fljótlega lét einn vaða, og ég fór á eftir. Hann endaði svona:
Hann var svona 30sek á undan mér þegar þetta gerðist. Greyjið maðurinn var frá UK og þarf að fara heim á einhvern annan hátt. Stuttu seinna keyrði ég framhjá R32 Golf sem hafði farið afturábak útaf og stútað rassgatinu. Eftir það varð ég hræddur.. virkilega hræddur en lét samt vaða áfram.
Ég tók 2 hringi með toppinn uppi og fór í pásu. Hugsaði um brautina og hætturnar í smá stund, og fór svo aftur út og núna TOP DOWN. Á undan mér var E36 M3 með veltibúri. Ég náði að halda í hann í begjunum og á beinu köflunum hefði ég geta tekið framúr, en ég ákvað að halda í mér.
Við tókum á því í tvo hringi, tókum t.d. framúr rally prepped EVO. Taldi mig vera að ná tökum á þessu þegar að 330cabrio kom og tók framúr mér, og E36 gaurnum.
Anyway.. ég á eftir að fara aftur og aftur og aftur.. frábært. Brautin á lítið sameiginlegt með þeirri sem maður keyrir í Playstation GT4. Elevations eru miklu meiri. Mér fannst brautin ekki eins hólótt og ég hafði heyrt um, kanski vegna þess að ég var ekki að keyra nógu hratt. Ég reyndi nokkur crowd pleasing drift i S begjunum.. tókst ágætlega.
Myndir
Hér