316i wrote:Þetta er Shortshifter
Málið með þennan er.. að ég er hræddur um að það verði ansi erfitt að koma bílnum í gíra með þessarri stöng. Það er svo lítið eftir af efri partinum að það þarf svo ofboðsleg átök til að skipta um gír. Það þarf að vera svolítill partur fyrir ofan til að hafa nægilegt vogastangarafl til að koma bílnum í gírana!
Hefur þú prufað þetta?? Það er nógu erfitt fyrir mig að skipta um gír með þessarri stöng sem ég er með í sexunni minni. Ég myndi alls ekki vilja hafa stöngina styttri né skiptinguna styttri. Fyrir utan hvað ég efast um að hún sé nógu löng til að koma gírhnúðnum fyrir á stönginni!!






