Geirinn wrote:
Ok pungar. Er með E30 325i. 05/1989.
Var aðeins á verkstæði með brumma áðan og núna spyr ég.
Nú er þetta minn fyrsti bíll og ég er ekkert allt of vel inni í þessu svo endilega ekki koma með skítkast heldur frekar uppbyggileg svör fyrir mig eða þá sem vilja læra.
Hversu mikið hitnar bíllinn hjá ykkur ? Minn er bara að hitna upp í fyrsta strik en hjá vini mínum upp í helming. Við vorum að skipta um vatnslás þannig að vatnskassinn væri mögulega að stríða mér ?
Það eru tvær pakkdósir sem maður ætti að skipta um þegar maður skiptir um tímareim, þ.e. sveifaráspakkdós og knastásapakkdós ? Ég var bara afgreiddur með eina í TB. Hums.
Það er alveg örugglega bara einn strekkjari fyrir tímareim sem maður skiptir um þegar maður skiptir um tímareim ? Fékk eitt stk. svoleiðis.
Eru ekki undirlyftur í þessu apparati ? Væri ekki sniðugt að skipta um það ef maður er að heyra ventlabank og ventlastilla í leiðinni ?
Hafa bílarnir ykkar eitthvað verið að leka olíu ? Hvað hefur það verið sem hefur verið að ?
Það er svona helst í bili, þið megið bæta við helstu slitflötum ef þið nennið. Hvað er MUST á þessum bílum ?
Með fyrirfram þökk, Geiri.
Hiti :
Það er vel eðlilegt að hann hitni ekki uppað helming, en eina sem gerir það er stífur eða ekki virkandi vatnslás,
Pakkdósir : Sú sem lekur einna helst er sú sem er aftann á vélinni , en það þarf að taka þá gírkassann af til að laga það,
Almennt myndi ég segja að ekki skipta um nema þess þurfi,
pakkdósir geta enst mótorinn og því fínt að treysta á þær þangað til að þær klikka. Annars er það hvers manns álit að stunda fyrirbyggjandi viðhald.
Strekkjari : Það er bara einn og á alltaf að skipta um hann þegar er skipt um tímareim, hann endist í raun styttra en tímareim,
Ventlakerfi : Það eru ekki undirlyftur þar sem að þetta er eins ás vél,
og því ventlar báðum meginn í heddinu, það eru rocker armar sem "lemja" ventilinn niður og leyfa honum svo að koma til baka,
Þetta þarf að stilla allaveganna á 10.000km fresti, eitthvað sem hefur gleymst á svo mörgum M20 vélum í gegnum tíðina, illa stilltar vélar eyða meira og virka ver.
0.25mm þegar er kalt.
0.3mm þegar vélin er heit minnir mig.
Þær M20 vélar sem leka almennt hafa verið að leka með heddpakningunni, þetta er svona almennt það sem lekur, en auðvitað getur hvað sem er lekið, ef ástæðan er ekki eld gömul heddpakkning sem er mikið slitin þá er það mögulega illa gert heddpakninga skipti.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
