bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 20:25

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 13:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Ok pungar. Er með E30 325i. 05/1989.

Var aðeins á verkstæði með brumma áðan og núna spyr ég.

Nú er þetta minn fyrsti bíll og ég er ekkert allt of vel inni í þessu svo endilega ekki koma með skítkast heldur frekar uppbyggileg svör fyrir mig eða þá sem vilja læra.

Hversu mikið hitnar bíllinn hjá ykkur ? Minn er bara að hitna upp í fyrsta strik en hjá vini mínum upp í helming. Við vorum að skipta um vatnslás þannig að vatnskassinn væri mögulega að stríða mér ?

Það eru tvær pakkdósir sem maður ætti að skipta um þegar maður skiptir um tímareim, þ.e. sveifaráspakkdós og knastásapakkdós ? Ég var bara afgreiddur með eina í TB. Hums.

Það er alveg örugglega bara einn strekkjari fyrir tímareim sem maður skiptir um þegar maður skiptir um tímareim ? Fékk eitt stk. svoleiðis.

Eru ekki undirlyftur í þessu apparati ? Væri ekki sniðugt að skipta um það ef maður er að heyra ventlabank og ventlastilla í leiðinni ?

Hafa bílarnir ykkar eitthvað verið að leka olíu ? Hvað hefur það verið sem hefur verið að ?

Það er svona helst í bili, þið megið bæta við helstu slitflötum ef þið nennið. Hvað er MUST á þessum bílum ?

Með fyrirfram þökk, Geiri.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 14:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Geirinn wrote:

Hiti :
Það er vel eðlilegt að hann hitni ekki uppað helming, en eina sem gerir það er stífur eða ekki virkandi vatnslás,

Pakkdósir : Sú sem lekur einna helst er sú sem er aftann á vélinni , en það þarf að taka þá gírkassann af til að laga það,
Almennt myndi ég segja að ekki skipta um nema þess þurfi,
pakkdósir geta enst mótorinn og því fínt að treysta á þær þangað til að þær klikka. Annars er það hvers manns álit að stunda fyrirbyggjandi viðhald.

Strekkjari : Það er bara einn og á alltaf að skipta um hann þegar er skipt um tímareim, hann endist í raun styttra en tímareim,

Ventlakerfi : Það eru ekki undirlyftur þar sem að þetta er eins ás vél,
og því ventlar báðum meginn í heddinu, það eru rocker armar sem "lemja" ventilinn niður og leyfa honum svo að koma til baka,
Þetta þarf að stilla allaveganna á 10.000km fresti, eitthvað sem hefur gleymst á svo mörgum M20 vélum í gegnum tíðina, illa stilltar vélar eyða meira og virka ver.
0.25mm þegar er kalt.
0.3mm þegar vélin er heit minnir mig.

Þær M20 vélar sem leka almennt hafa verið að leka með heddpakningunni, þetta er svona almennt það sem lekur, en auðvitað getur hvað sem er lekið, ef ástæðan er ekki eld gömul heddpakkning sem er mikið slitin þá er það mögulega illa gert heddpakninga skipti.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 14:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Takk fyrir skjót og góð svör.

gstuning wrote:
Hiti :
Það er vel eðlilegt að hann hitni ekki uppað helming, en eina sem gerir það er stífur eða ekki virkandi vatnslás,

Sá sem við tókum úr var mjög stífur. Hitastigið breyttist samt ekkert.

gstuning wrote:
Þær M20 vélar sem leka almennt hafa verið að leka með heddpakningunni, þetta er svona almennt það sem lekur, en auðvitað getur hvað sem er lekið, ef ástæðan er ekki eld gömul heddpakkning sem er mikið slitin þá er það mögulega illa gert heddpakninga skipti.

Þetta er pottþétt það sem er að leka. Þvílíkt subbulegt hjá mér og ég fer að fara að gera við þetta.

Hvað er það sem tengist þessu sem þarf að hafa í huga og kaupa þegar maður fer í þetta ?

Ég get þetta ekki sjálfur en ég þarf að versla í þetta.

Svo er annað sem ég er forvitinn um. Ég veit að það vantar þreifara fyrir bremsurnar hjá mér og því lýsir ljós í mælaborðinu. Eru þetta ekki bara tveir þreifarar að aftan ?

Og þarf maður að plugga bílnum í tölvu til að sjá hvaða ABS skynjari er dauður ? ABS virkar ekki hjá mér og það lýsir ljós í mælaborðinu.

Svo er laust box í húddinu sem stendur að mig minnir GKAT eða álíka á. Hvað er þetta eiginlega ?

Með fyrirfram þökk, Geiri.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 14:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
bókað að setja hann í tölvu til að tala við ABS tölvuna,

G-kat er aftermarket tölva til að viðhalda minni mengun,

þegar þú skiptir um heddpakninug ættiru að skipta um tímareim og strekkjara nema það sé mjög mjög nýtt,
auðvitað heddbolta

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 15:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Jám, einmitt, á strekkjara og tímareim og reyndar viftureimar og eitthvað fleira.

Er að fara að troða ýmsu nýju drasli í. En góður pointer með heddboltana.

En hvað með hjólabúnað og svoleiðis. Hvað er must þar ?

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 16:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Allar fóðringar og endar, bara sama og allir bílar..

Ef að þú ætlar að skipta um allar fóðringar eru poly fóðringar algjört möst !

Getur fengið þær hjá GStuning !

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 17:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég m,yndi nú ekki segja að polyurethan fóðringar séu möst, engann veginn, fer bara eftir hvað þú ætlar þér með bílin,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 17:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 07. Dec 2003 17:36
Posts: 4044
Location: undir bíl eða ofaná kellingu..
Angelic0- wrote:
Allar fóðringar og endar, bara sama og allir bílar..

Ef að þú ætlar að skipta um allar fóðringar eru poly fóðringar algjört möst !

Getur fengið þær hjá GStuning !

Poly er sko EKKERT must heldur þú að einhver aftermarket gæjar búi til betri fóðringar en framleiðandinn sjálfur :idea:

ég skipti um fóðringar að aftan hjá mer tók þær orginal og er mjög sáttur, þetta með hitann á vélinni er mjög sennilega viftukúplinginn hún er sennilega of stíf prufaðu að setja aðra kúplingu ef þú kemst í það, við þurfum ekki eins stífar kúplingar hér á ÍSlandi :wink:

_________________
Aron Jarl Hillerz
1987 BMW e30 M-tech I Turbo (400+hp / 600+nm)
1990 Civic EF B18C6 (190hp)
1997 Subaru Legacy (winter)
1973 Malaguti Bolognia 49cc (2hp)
Go-Kart Rotax 125cc

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
aronjarl wrote:
Angelic0- wrote:
Allar fóðringar og endar, bara sama og allir bílar..

Ef að þú ætlar að skipta um allar fóðringar eru poly fóðringar algjört möst !

Getur fengið þær hjá GStuning !

Poly er sko EKKERT must heldur þú að einhver aftermarket gæjar búi til betri fóðringar en framleiðandinn sjálfur :idea:

ég skipti um fóðringar að aftan hjá mer tók þær orginal og er mjög sáttur, þetta með hitann á vélinni er mjög sennilega viftukúplinginn hún er sennilega of stíf prufaðu að setja aðra kúplingu ef þú kemst í það, við þurfum ekki eins stífar kúplingar hér á ÍSlandi :wink:

Heldurðu virkilega að enginn geti búið til neitt til að bæta BMW??
UUC er nú bara eitt gott dæmi um það.

Poly er ekki must en ef þú setur svoleiðis í þarftu ekki að skipta aftur um,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Og fyrst þið eruð byrjaðir.

Hvað heita þessar fóðringar sem þið eruð að tala um og hvað er fólk að borga fyrir svoleiðis ?

Eruð þið með svoleiðis í bílunum ykkar og hvert er markmiðið með að hafa sérstakar fóðringar ?

Minn bíll er t.d. drullustífur miðað við aðra E30 sem ég hef prófað, er það markmiðið ?

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
fóðringar eru mikið um Ride comfort og poly eru endalaust endingameiri en þessar orginal gúmmí fóðringar!

og Gunni endilega PM-aðu á mig verði á poly stólpúðafóðringum

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:26 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
316i wrote:
fóðringar eru mikið um Ride comfort og poly eru endalaust endingameiri en þessar orginal gúmmí fóðringar!

og Gunni endilega PM-aðu á mig verði á poly stólpúðafóðringum

Og stífari ekki satt?

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
jú aðvitað! þessvegna endast þær svona mikið lengur ;)

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 19:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Poly urathane eru mjög stífar fóðringar ... ef þú ætlar þér að vera með stífann bíl þá myndi ég mæla með því .... en ef þú ert pirraður á að finna fyrir öllu sem bílinn keyrir yfir að þá myndi ég taka orginal ;)

Ég ætla skipa um allar fóðringar hjá mér og fá urathane :)

_________________
Fullt af CF sem rúllar

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 14. Jan 2006 20:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
ég hef verslað mínar hjá Ireland Engineering en er víst með byrgja í þýskalandi sem er líka með powerflex fóðringar.

ég valdi race fóðringar að aftann í subframið,
það er eina poly sem ég er með enn sem komið er ,
en verð með poly mótor púða og gírkassa púða bráðum sem eru einnig frá IE.

svo kannski swaybar fóðringar þegar mínar gúmmí verða slappar.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group