"refurbishing" á felgum - lýsi eftir íslensku orði

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Djofullinn » Wed 16. Oct 2002 16:36

Bjarki wrote:Það kostar 41þ á mann í Norrænu ef tveir fara með einn bíl og gista í 4 manna káettu með vaski. Þá er ég að tala um að sigla út til Hanstholm í DK og heim frá Bergen í Noregi. Það tekur stystan tíma að fara þannig, því það er engin bið í Færeyjum. Það er ekkert voðalega mikið ef maður er að fara í sumarfrí á annað borð, þetta er ekki leiðinlegt frí.
Ég kom heim með bíl í norrænu fyrir 2 árum og ég var með svo mikið af drasli í bílnum að það var ótrúlegt skottið troðið, allt fullt afturí og líka í farþegasætinu framí!! Það eina sem tollverðirnir gerðu var að láta hund lykta inn í skottið og inn í bílinn. Ef maður raðar bara rétt í bílinn þá held ég að maður geti komist með eitt og annað heim, bara að það sér ekki eiturlyfjalykt af draslinu!!! :lol:

Það er alls ekki dýrt!! Flug til evrópu kostar um 30-40 þúsund á manninn :)

Hvernig raðaðir þú í bílinn svo maður geri þetta nú rétt?
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Bjarki » Wed 16. Oct 2002 19:27

Málið er bara að setja þetta í töskur og jafnvel poka og ekki láta allt liggja saman. Var með svona hlaupahjól með mótor tók mótorinn af og hafði hann annarsstaðar, var með 4 vetrardekk þau voru bara í skottinu og farþegarýminu var með vetrarmottur og drullusokka tók það úr umbúðunum svo var maður með fullt af varningi. Láta bara sjást í venjulegan farangur í skottinu, ef þú ert með kassa af bjór ekki láta hann liggja allan saman eins með annað vín :D , bara dreifa þessu vel. Ekki þannig að þetta líti út eins og þú sért að koma úr verslunarleiðangri.
Það kemur slatti mikið af bílum í hvert skipti og það sem þeir eru aðallega að tékka eru eiturlyfin, svo auðvitað sjá þeir alveg ef menn eru kósveittir og flóttalegir. Það er náttúrlega enginn glæpur að hafa smá bíladót með sér heim!!
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Djofullinn » Wed 16. Oct 2002 19:39

En hvernig er það, þarf maður ekkert að tryggja bílinn sérstaklega?
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby GauiJul » Wed 16. Oct 2002 19:45

Djofullinn wrote:
bebecar wrote:Ég kveikti á hlutföllunum ;) þær eru verulega flottar þessaar felgur, mér finnst mjög opnar felgur ekki fara BMW bílum vel.


Já ég er sammála, helvíti flottar felgur. Það skiptir mig samt eiginlega engu máli hvort felgur séu opnar eða lokaðar, ég vill bara hafa felgur á BMW nógu andskoti djúpar og helst með póleruðum kanti :P

Þetta finnst mér t.d. rosalega flott:
Image
Image


VAAaaaaáááá ég vill svona á minn takk, þessar er bara geggjaðar, ekki það að ég mundi alveg sætta mig við 17" hans Sæma skohh en þetta kostar allt $$$ og það er svona spurning hvort maður bíði ekki bara og skelli sér með norrænu næsta sumar í innkaupaleiðangur :P
GauiJul
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 59
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:21
Location: Kópavogur

Postby Djofullinn » Wed 16. Oct 2002 19:49

Þetta eru Rondell R72 felgur fyrir þá sem vilja vita það :D
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Bjarki » Wed 16. Oct 2002 19:56

Maður þarf ekkert endilega að tryggja bílinn, tryggingarnar þínar hérna heima eru náttúrlega alþjóðlegar. Spurning hvort þú viljir altjónstryggja bílinn með hann er í skipinu og svo kannski fá sér kaskó meðan þú ert úti ef þú ert ekki með það, ég ætla að gera það. Kannski líka sniðugt að tryggja sig fyrir þjófnaði innbroti og svo náttúrlega bara ef bílnum er stolið.
Hvað myndu svona Rondell R72 felgur kosta? Væntanlega mikið.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Djofullinn » Wed 16. Oct 2002 19:59

Ég hef nú bara rekist á þær í USA og þar kosta þær ca. 20.000 kr stykkið.

Hérna er önnur mynd af þeim:
Image
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

flottar felgur

Postby DXERON » Thu 17. Oct 2002 23:34

Já, Djofullinn, finnst mér svona djúpar felgur flottar...... :lol:
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91
User avatar
DXERON
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Location: Mosó

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests