Bjarki wrote:Það kostar 41þ á mann í Norrænu ef tveir fara með einn bíl og gista í 4 manna káettu með vaski. Þá er ég að tala um að sigla út til Hanstholm í DK og heim frá Bergen í Noregi. Það tekur stystan tíma að fara þannig, því það er engin bið í Færeyjum. Það er ekkert voðalega mikið ef maður er að fara í sumarfrí á annað borð, þetta er ekki leiðinlegt frí.
Ég kom heim með bíl í norrænu fyrir 2 árum og ég var með svo mikið af drasli í bílnum að það var ótrúlegt skottið troðið, allt fullt afturí og líka í farþegasætinu framí!! Það eina sem tollverðirnir gerðu var að láta hund lykta inn í skottið og inn í bílinn. Ef maður raðar bara rétt í bílinn þá held ég að maður geti komist með eitt og annað heim, bara að það sér ekki eiturlyfjalykt af draslinu!!!
Það er alls ekki dýrt!! Flug til evrópu kostar um 30-40 þúsund á manninn
Hvernig raðaðir þú í bílinn svo maður geri þetta nú rétt?





