Úfff þetta verður frekar langur listi ef ég man þetta allt
Sko ég er búinn að hafa bílprófið í tæp 6 ár og hef átt:
MMC Colt 1.6 GLX '93, Svartur, 5gíra, ágætis japanadolla sem dugði vel fyrsta hálfa árið eftir að ég fékk bílprófið, alltaf að rúnta niðrí bæ með dökku afturljósin og krómstútinn
Ford Mustang '67, svartur, þetta var litla barnið mitt í mörg ár eða þangað til ég seldi hann fyrir 2 árum
Síðan féll ég gjörsamlega fyrir BMW og þá sérstaklega E21 og keypti mér þá einn slíkan.
BMW 323i E21 '81, blár, 5gíra, læst drif, spoilerkitt allan hringinn, þvílíkt skemmtilegur bíll, á þessum smá ryðgaða eðalbimma var ég slide-andi útum allan grafarvog og annarstaðar í rvk. Þetta er einn sá skemmtilegasti bíll sem ég hef átt, sakna hans ennþá. Eftir að hann var orðinn soldið mikið ryðgaður og vélin ekkert alltof góð skipti ég á honum og
318i E30 '83 sem ég gaf kærustunni. Hann var svartur, smá ryðgaður og átti nú ekki mikið eftir, við seldum hann á 20.000 kall.
BMW 323i E30 '85 var næsti bíll sem ég átti, hann var grænn með M dogleg gírkassa, M spoilerkitti, rafdrifnum rúðum, topplúgu, aksturstölvu og fl. Þetta var snilldar bíll sem svíííííínvirkaði, sé alltaf eftir að hafa sett hann uppí þetta Camaro FJÓS!
Síðan átti ég
Camaro RS '89 sem ég málaði fjólubláann og seldi síðan þegar vélin átti voða lítið eftir. Þennan bíl átti ég í eitt ár eða svo að mig minnir. Þetta var fjós, en það var nú soldið gaman að honum
BMW 320 E21 '82, blár, 4gíra, keypti hann á uppboði hjá Tryggingu hf, það var nú frekar lélegur bíll og skipti ég á honum og felgum undir Camaroinn.
Humm næsta sem ég man eftir var
BMW 323i E21 '81, grár með volgum ás, topplúgu og ónýtu pústi

Þetta var snilldar bíll sem ég gat leikið mér mjööööög mikið á en hann var svo ryðgaður að ég gaf Ella Val hann þegar ég ákvað að ég nennti ekki að laga hann, núna sé ég eftir því ohhh.
Mazda 626 '87 eða eitthvað. Þennan bíl tók ég uppí Camaroinn. alltílagi bíll sem ég átti í 2 vikur eða svo.
Ég setti svo Mözduna uppí
BMW 730ia E38 '95, svartur. Þetta var frábær bíll sem ég átti í eitthvað um ár minnir mig. Þetta var eðal krúser, hefði mátt vera kraftmeiri
Keypti af vini mínu
MMC Lancer station 4x4 '87, rústaði gírkassanum í honum eftir 2 mánuði eða svo og hennti honum.
Síðan keypti ég
750ia E32 '93 sem hann Gummi á núna, eyddi fullt af peningum í hann en nennti þessu ekki lengur og seldi hann.
Á svipuðum tíma og ég keypti 750ia bílinn keypti ég mér
BMW 318is E36 '98, á nokkuð góðu verði. Þetta var alveg þrælfínn bíll
Ég seldi síðan móður minni 318is bílinn og tók uppí hann
Subaru Impreza '98 sem ég á ennþá. Það er ágætis bíll svosem en ekki alveg fyrir minn smekk
Tók uppí 750ia bílinn
BMW 520ia E34 '91, svartur. Þetta var alveg rosalega heill og góður bíll þrátt fyrir mikinn akstur! Seldi Sigga hann.
Keypti á svipuðum tíma og ég seldi 750ia bílinn
BMW 525ia E34 '90, svartur. Hann keypti ég með ónýtu heddi og er Halli búinn að skipta um vél í honum, breyta honum í beinskiptann og er að skipta um drif í honum, einnig verður sett læsing í drifið. Hann er með leðri, topplúgu, 17" álurum og fl.
Keypti á tjónauppboði hjá Sjóva
BMW 325ia E36 '94, svartur. Hann var notaður í varahluti og síðan lét ég Halla fá hann uppí vinnu.
Ég er nú nokkuð viss um að ég sé búinn að eiga einhverja fleiri bíla, bæti bara inn ef ég man alltí einu eftir þeim
