bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 17:19

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 59 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next
Author Message
 Post subject: Bílaeign
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 11:24 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Posts: 600
Location: Í aftursæti lögreglubíls
Ég nenni ekki að telja upp aðra bíla en Bmw sem ég hef átt með tveimum undantekningum, Toy Landcruiser 80 4.2 diesel árg 1991 og MMC Pajero DID 3.2 árg ´00 báðir frábærir jeppar.

En hér koma Bmw bílar sem ég hef átt í réttri röð.

Bmw 520 árg 1977

Bmw 732i E- 23 árg 1981 beinskiptur, alger snilld þegar maður var 18 ára

Bmw 316 árg 1995

Bmw 318i árg 1982

Bmw 315 árg 1982

Bmw 745i E-23 árg 1981 Algjör snilld, 252 hestöfl, turbo inrtercooler, einn skemmtilegasti bill sem ég hef átt.

Bmw 325i E-36 árg 1992 Frábær bíll

Svo liðu nokkur ár þangað til maður komst á draumabilinn

Bmw 750i E-38 árg 1996 SNILLD !!!!!!!! 330 hestöfl, steptronic með rúmlega öllum aukabúnaði, eyðslugrannur og hrikalega öflugur bíll með frábæra akstureiginleika.

Annað sem má taka fram (bifhjól)
Suzuki Xn 85 Turbo
Kawasaki Rx-1000
Suzuki Gsx-R 1100 ´87
Suzuki Gsx-R 1000 ´91
Suzuki Gsx-R 600 ´02
Ktm 200

Topp 10 listinn í bílum sem ég hef átt.
1. Bmw 750 E-38
2. Bmw 325 E-36
3. Bmw 745 E-23
4. Toy Landcr 80
5. Mmc Pajero DID
6. Nissan Almera Luxury (kemur á óvart)
7. Mercedes Benz E240
8. Isuzu Trooper 3,0 d
9. Mercedes Benz SL 300
10.Nissan Terrano II se Diesel

_________________
Tommi camaro fanclub member no. 03


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 12:37 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
1. MMC Colt 1.6 GTi : 125 hö og virkaði ágætlega... eyddi aðeins meira en hollt var eða um 12 lítrar á hundraðið. Átti hann í c.a. ár og selda hann síðan og var hann klesstur stuttu eftir það.

2. Nissan Sunny GTi: 143 hö og var miklu skemmtilegri bíll heldur en Coltinn en eyddi um 14 l á hundraðið, keyrði á honum í c.a. ár og seldi hann en sá svo eftir því seinna meir. Þurfti smá aðhald og t.d. dempararnir kostuðu 80þ kr hjá Í.H.!!!!!! Keypti reyndar Sachs á 40þ...

3. Honda Civic VTi: "160 hö" ekki næstum því jafn skemmtilegur bíll og sunny-inn en eyddi minni en hann. 10 l á hundraðið og virkaði ágætlega. Snilldar vélar en vantaði allt tog! Keypti þennan bíl nýjan árið 2000 og átti hann í 2 ár.

4. BMW E36 328i: 193 hö og án efa skemmtilegasti bíll sem ég hef keyrt! Eyðir minna en Sunny-inn og er miklu skemmtilegri og betri en Hondan þá hann hafi verið 6 árum eldri en hún! Hafði hugsað mér að eiga hann áfram nema að ég sjái M3 sem er á góðu verði þá verður hann keyptur!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 12:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Ég hef átt.
Ég eignaði mér dæjaran 1000cc 52hp hennar mömmu þegar ég fékk prófið ´96 keirði hann 45000 km á einu ári, ég var rúnt sjúkur.
keypti 325i ´86 nóvember 1997 og á þann yndislega bíl enn
einig átt ´88 320i 2 dyra og 528i ´84

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 14:38 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Úfff þetta verður frekar langur listi ef ég man þetta allt :?

Sko ég er búinn að hafa bílprófið í tæp 6 ár og hef átt:

MMC Colt 1.6 GLX '93, Svartur, 5gíra, ágætis japanadolla sem dugði vel fyrsta hálfa árið eftir að ég fékk bílprófið, alltaf að rúnta niðrí bæ með dökku afturljósin og krómstútinn :)

Ford Mustang '67, svartur, þetta var litla barnið mitt í mörg ár eða þangað til ég seldi hann fyrir 2 árum :(

Síðan féll ég gjörsamlega fyrir BMW og þá sérstaklega E21 og keypti mér þá einn slíkan. BMW 323i E21 '81, blár, 5gíra, læst drif, spoilerkitt allan hringinn, þvílíkt skemmtilegur bíll, á þessum smá ryðgaða eðalbimma var ég slide-andi útum allan grafarvog og annarstaðar í rvk. Þetta er einn sá skemmtilegasti bíll sem ég hef átt, sakna hans ennþá. Eftir að hann var orðinn soldið mikið ryðgaður og vélin ekkert alltof góð skipti ég á honum og 318i E30 '83 sem ég gaf kærustunni. Hann var svartur, smá ryðgaður og átti nú ekki mikið eftir, við seldum hann á 20.000 kall.

BMW 323i E30 '85 var næsti bíll sem ég átti, hann var grænn með M dogleg gírkassa, M spoilerkitti, rafdrifnum rúðum, topplúgu, aksturstölvu og fl. Þetta var snilldar bíll sem svíííííínvirkaði, sé alltaf eftir að hafa sett hann uppí þetta Camaro FJÓS!

Síðan átti ég Camaro RS '89 sem ég málaði fjólubláann og seldi síðan þegar vélin átti voða lítið eftir. Þennan bíl átti ég í eitt ár eða svo að mig minnir. Þetta var fjós, en það var nú soldið gaman að honum :)

BMW 320 E21 '82, blár, 4gíra, keypti hann á uppboði hjá Tryggingu hf, það var nú frekar lélegur bíll og skipti ég á honum og felgum undir Camaroinn.

Humm næsta sem ég man eftir var BMW 323i E21 '81, grár með volgum ás, topplúgu og ónýtu pústi :) Þetta var snilldar bíll sem ég gat leikið mér mjööööög mikið á en hann var svo ryðgaður að ég gaf Ella Val hann þegar ég ákvað að ég nennti ekki að laga hann, núna sé ég eftir því ohhh. :roll:

Mazda 626 '87 eða eitthvað. Þennan bíl tók ég uppí Camaroinn. alltílagi bíll sem ég átti í 2 vikur eða svo.

Ég setti svo Mözduna uppí BMW 730ia E38 '95, svartur. Þetta var frábær bíll sem ég átti í eitthvað um ár minnir mig. Þetta var eðal krúser, hefði mátt vera kraftmeiri :)

Keypti af vini mínu MMC Lancer station 4x4 '87, rústaði gírkassanum í honum eftir 2 mánuði eða svo og hennti honum.

Síðan keypti ég 750ia E32 '93 sem hann Gummi á núna, eyddi fullt af peningum í hann en nennti þessu ekki lengur og seldi hann.

Á svipuðum tíma og ég keypti 750ia bílinn keypti ég mér BMW 318is E36 '98, á nokkuð góðu verði. Þetta var alveg þrælfínn bíll

Ég seldi síðan móður minni 318is bílinn og tók uppí hann Subaru Impreza '98 sem ég á ennþá. Það er ágætis bíll svosem en ekki alveg fyrir minn smekk :)

Tók uppí 750ia bílinn BMW 520ia E34 '91, svartur. Þetta var alveg rosalega heill og góður bíll þrátt fyrir mikinn akstur! Seldi Sigga hann.

Keypti á svipuðum tíma og ég seldi 750ia bílinn BMW 525ia E34 '90, svartur. Hann keypti ég með ónýtu heddi og er Halli búinn að skipta um vél í honum, breyta honum í beinskiptann og er að skipta um drif í honum, einnig verður sett læsing í drifið. Hann er með leðri, topplúgu, 17" álurum og fl.

Keypti á tjónauppboði hjá Sjóva BMW 325ia E36 '94, svartur. Hann var notaður í varahluti og síðan lét ég Halla fá hann uppí vinnu.

Ég er nú nokkuð viss um að ég sé búinn að eiga einhverja fleiri bíla, bæti bara inn ef ég man alltí einu eftir þeim :D

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Last edited by Djofullinn on Mon 07. Apr 2003 15:57, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 15:05 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 16. Mar 2003 17:55
Posts: 18
Fyrsti bíllinn mín var Renault Clio 16V ´92 árg keyptan í sumarið ´99, og þvilikur kraftur!! 1.8 137 hö!! :twisted: setti K&N cone filter og "sér hannað" púst hjá BJB tveir kútar og enn þeirra var volvo turbo kútur og var með græjur yfir 200þús kall!! sprækasti bíll sem ég hef átt.


Næsti var Peugeot 605 SV 3.0 ´92 goður crusari ágættis kraftur en skiptingin var alltof slöpp, stor og rúmgoður, á hann ennþá bara vélin er eitthvað "biluð" veit ekki hvað það er ennþá og hann er til sölu.


Og sá þriðji er Mercedes-Benz 230E ´88 í frábæru ástandi besti bíll sem ég hef keyrt hingað til er á 16" benz álfelgur, og það er gott tog þrátt fyrir að vera 4 cyl 2.3 og ég ætla að breytta hann aðeins meria púst, filter osfr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 15:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Púha

Honda Civic 88
Honda Accord exi 86
BMW 728ia 82
MMC Lancer 85
Mazda 323 85
BMW 316i Bavaria 89
MMC Lancer 89
BMW 323i 78
VW Golf Gti 16v 87
BMW 320i 87
BMW 520i 88 (2.5L turbo)
Renault Megane 97
BMW 325 92
Volvo V40 98
BMW 523 96
BMW 523 97
BMW 525ix Touring 92
BMW 733 78
BMW 530 94 V8

Þetta er alla vega það sem ég man

Sv.H


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 15:55 
Sá að sennilega þessi: BMW 316i Bavaria 89 er til sölu.

Hvað er Bavaria !? :)


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 16:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Posts: 2837
Location: Reykjavík
Fyrsti bíll sem ég átti er Land Rover 72 árgerð ágætis byrjunarbíll því það var ekki hægt að taka mann fyrir ofhraðan akstur þannig að hann var alltaf keyrður í botni, ég átti hann í sirka 2 ár og á hann ennþá, ekki á nummerum samt.
Annar bíllinn sem ég átti var 728ia bmw 82 árgerð var á honum í sirka 2 ár en það voru líka keyftir nokkrir varahluta bílar til að halda honum gangandien svo endaði hann sem varahlutabíll líka.
3 bíllinn var 735ia bimmi 84 árgerð ég var á honum í næstum því ár því að ég seldi hann.
4 bíllinn minn var corolla Gti eitt sjúskaðasta drasl sem ég hef átt en það kom mér á óvart hvað hun lá furðu vel en hun var á einhverjum iow profile dekkjum, hana átti ég í 2 mánuði og seldi hann svo.
5 bíllinn er bmw 745 turbo nema hann var ekki með turbo vélinni og ég ætlaði að koma honum á götuna en það náði ekki lengra en það að ég notaði hann í varahluti í nyja bimmann.
6 bíllinn er bmw 732i 83 árgerð einn besti bíll sem ég hef átt og minst keyrður og mjög vel með farinn þannig að ég er bara mjög ánægður með þaennan bimma sem ég er á nuna

_________________
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 16:04 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Mar 2003 22:43
Posts: 103
Location: akranes / rvk
Ég er búnað eiga 6 bíla , einn fyrir hvert ár með próf 8)
Fyrst var það toyota corolla ´88 , keypti hann af pabba '97og átti hann i 3 1/2 mánuð þá fór eg yfir á rauðu ljósi í rvk :shock: og klessti i hliðiná á BMW 53* :cry: Og greyjið maðurinn á bimmanum var að koma af verkstæði í skeifunni eftir að einhver hafði keyrt á hann :? Bíllinn minn var metinn á rúmlega 300k en fékk bara 65k fyrir hann á partasölu :x átti eg það kannski skilið eftir að hafa skemmt bimman?! :lol: Biminn fór illa út úr þessu , fékk mig i hliðina og snjérist 180 gráður og bakkaði niður götuljós sem var komið innað aftur rúðu :?

Stuttu seinna keypti ég mer Ford Sierra ´84 RS. Stór skemmtilegur bíll , fyrri eigandi var bifvélavirki og var búnað fikta vel í honum , og hann svín virkaði. Hann bilaði rosalega mikið hja mer og viðgerðarkostaður fór vel yfir kostaðarverð 8) Var samt alveg þess virði , þvi þarna fékk eg fílinginn fyrir afturhjóladrifnum bílum 8) Svo um vorið ´98 bræddi eg úr honum og seldi hann fyrir 15k og 5 lítra af vodka 8)

Svo kaupi eg mér Ford Fiesta XR2i ´91. Þótti mjög vænt um þennan bíl og hafði mjög gaman af þvi að eiga hann. :lol: Reyndar ekki skráður nema 104 hö og um 900kg samkvæmt skoðunarvottorði en virkaði ótrúlega vel. Það er ekkert til af varahlutum í þessa bíla og þurfti að panta allt að utan sem mér vannaði , t.d. loftsíu , mótorpúða , vatnskassa og eina hliðarrúðu eftir innbrot :( Ég seldi þenna bíl til rvk ´99 og sá hann nýlega á l2c síðunni en svo hvarf hann aftur þaðan.

Þá kaupi eg mer Fiat Uno 1.1 ´93 .. 53 hö og rúm 700 kíló 8) Var rauður en var upplitaður og eiginlega bleikur þegar ég átti hann hehe :P Setti undir hann 15" álfelgur 195/45/15 hann kom mjög vígalega út , enda meira í gríni gert :P Það var fínt að snúast á þess , eyddi sama og engu og maður gat lagt í ótrúlegustu stæði :lol:
Svo kaupi eg mer Cherokee Laredo 4.0 ´91 170hö. Beinskiptur og Bensínhákur af guðs náð :) Það var virkilega gott að keyra þennan jeppa og sé ekkert eftir öllum lítrunum sem fóru í hann 8) Nokkrum mán seinna seldi eg Fiatinn til rvk og átti áfram Cherokeeinn.

Farinn að halda að þessar dagsettingar hja mer sé ekki réttar but who cares :)
Átti jeppan fram eitthvað fram á árið 2001 svo seldi eg hann til málara i rvk.
Svo varð eg bíllaus i nokkurn tíma og keypti mer svo í byrjun síðasta árs BMW 318 is sem eg á núna 8) 136 hö ... geti séð eitthvað nánar i "bíla meðlima" :P Stefni á að eiga þennan bíl áfram og reynað gera ýmisslegt fyrir hann.

_________________
kv. Siggi
Subaru Impreza 1.6 GL ´98
Honda CBR600RR ´04


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 17:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þeir bílar sem ég er búinn að eiga

Fyrst ég átti engann bíl fyrr en 18ára, var bara með stefáni á hans,

Labbaði alltaf framhjá E30 318i ´83 þegar ég var að fara í skólan, sendi bréf á alla í 4býlinu um að hvort að ég mæti eiga hann, og svo hringdi maður og gaf mér hann,

Hann þurfti geymir og bensín og fór svo í gang

Seldi hann á 80þús

Keypti svo pínu ryðgaðan E30 318i ´85 árið ´98 hann var ekinn 119.000km var fínn á meðan ég keyrði hann, seldi hann á 140þús, en keypti svo aftur þegar hann bilaði á 40þús, seldi hann svo eftir langan tíma að reyna að gera við, á 25þús

Var búinn að kaupa blæjunna þá og á enn

Svo ´89 325is nýjasti bíllinn sem ég hef átt

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 19:03 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Posts: 167
Location: Hér og Nú
einhverju gleymir maður en listinn er ca :

nokkrar VW bjöllur
Ford Taunus 12M '67
Mazda 323 '78
Willys CJ-5 '67
Ford Mustang '79 var 2.8 V6, setti 351C í staðinn
Volvo 144 '71
Nissan Micra '88 sem ég keypti nánast nýjan
Ford Sierra '87
Subaru 1800 '88
Toyota Tercel '88
Chrysler LeBaron '79
3x Range Rover '78 '79 og '82
Saab 96 '78
Peugeot 505 '87
Jeep Grand Wagoneer '91 360 stóri bílinn

og svo bílar sem ég á núna :

BMW 520 '97
MMC Pajero 3500 '96
Buick Electra '73

_________________
ozeki@simnet.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 19:14 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Tjáh!

Maður er farinn að hallast að því að það séu flestir hérna töluvert eldri en ég, því að minn listi er nú eitthvað styttri en þeir sem á undan hafa komið! :)

1) Fyrsti bíllinn minn var Toyota Corolla GTi '88 árgerð.
Eins og það eru nú umdeildir bílar þá var ég samt alltaf mjög hrifinn af þeim og fannst þeir kraftmiklir, en það er sennilega af því að ég hafði bara ekki prufað neitt annað! :)
Ég klessti það grey tvisvar sinnum, í fyrra skiptið hafði ég bara átt bílinn í þrjá daga!! Í seinna skiptið nennti ég ekki að standa í viðgerðum og seldi hana fyrir slikk.

2) Næsti bíll var öllu stórtækari, ný Honda Civic VTi útúr umboðinu.
Það var þá 2001 árgerð. Hún var eins og hlynur sagði um sína, mjög skemmtilegur bíll og eyðir fáranlega litlu miðað við þó sæmilegan kraft. Það vantar hinsvegar allt tog í hana!

3) Ég seldi Honduna, og tók uppí hana Mazda Miata MX-5.
Hún er rauð og það er sá bíll sem ég keyri um á í dag. Fyrir þá sem ekki vita er það blæjubíll og hefur sá bíll gert mig að algerum blæjufíkli :)

4) Nýjasta uppátækið er síðan BMW E30 320i. Hann er reyndar ógangfær, enda fékk ég hann fyrir lítið. Hann er býsna fallegur finnst mér, lítið ryð og vesen á honum. Þessi bíll á að verða tilvonandi "project car" hjá mér, þó svo að ekki sé búið að ákveða í hverju "project"-ið felst. Hvort það verður engine swap M50, eða 2,5L M20, túrbo eða jafnvel M3 vél verður allt að koma í ljós seinna.


:)

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 20:23 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Posts: 589
Location: Grafarvogur
Ef maður telur bílana með sem maður keypti sér áður en maður fékk bílpróf og lék sér á og rústaði auðvitað , þá er ég búinn að eiga 5.

Skoda Favorit 92' keypti á 5000 kall , spreyjuðum hann krómlitaðan og svartan. hann valt á rallykrossbrautinni !

Volvo gamall haugur sem við keyptum á 5000 kall líka. hel gaman á þeim bíl áður en bremsurnar fóru. hann var skotinn og sprengdur :twisted: .

BMW 316i 88' Keyptur á 13 þús. og komust við svo síðar að því að miðstöðvar elementið var ónýtt og fylltist bíllin af gufu og heitt vatn lak á fæturna á manni. helvíti gaman á þeim bíl. hann var hyrtur af vöku og hvarf.....

BMW 325i E30 Svartur núverandi bíll en er að ganga í gegnum töluverðar breytingar.

BMW 320i E30 Grár? :roll: Vélarlaus e30 í góðu ástandi ( útlitslega séð ) og fer vélin úr hinum bílnum þar ofaní.

_________________
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 20:57 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Posts: 521
Location: Reykjavík(Selás)
Já þetta er bara helvíti gott hjá ykkur en nú kemur minn listi.

BMW E34 '91 518i. Keyptur des 2001.
Saga þessa bíls er ekki lengri en sú að ég keypti hann af ökukennaranum mínum sem plataði mig alveg stórkostlega og ég svo blindur af fegurð bílsins og bara hvað hann var glæsilegur borgaði 500 þúsund krónur fyrir bílinn en aftur á móti þá varð þessi bíll alltaf að vera í topp standi vegna þess að þetta var kennslu bíll sem veldur því að hann á mjög góða þjónustu sögu og smurður helmingi oftar en til er ætlast og það er víst tvívegis búið að taka vélina í gegn og skifta um alla slitfleti.
Keyrður í dag 346þúsund og á nóg eftir.

_________________
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 07. Apr 2003 21:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
morgvin wrote:
ég keypti hann af ökukennaranum mínum.....þetta var kennslu bíll


Ertu með pedala farþega meginn??? :lol:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 59 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 6 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group