Sælir. Ég vaknaði upp við þann slæma draum í hádeginu í dag að bíllinn minn fór ekki í gang fyrr en í 3. tilraun. sama sagan var þegar ég var búinn í vinnunni. ég kíkti á Halla og hann potaði í eitthvað og fann það út að þetta væri loftflæðimælirinn (dótið sem er við hliðina á loftsíuboxinu) sem væri eitthvað grillaður. ég hringdi í TB og hann sagði að þetta gæti passað og loftflæðimælirinn kostaði 15þúsund hjá honum. Svo hringdi ég í B&L og hann sagði mér fyrst verð uppá einhvern 30þúsund kall og svo sagði hann að ef þetta væri mælirinn/skynjarinn þá væri þetta 7000 og eitthvað.
spurningin er hvort það sé í lagi að keyra bílinn svona eða ekki ??
hann fer í gang alltaf í svona 3. tilraun. hann gengur alveg venjulega og er alveg eðlilegur í akstri, eina sem er að hann fer ekki strax í gang.
ef einhver er fróður um þessi mál má hann endilega leggja orð í belg, því ég þori ekki að keyra hann nema fá að vita hvort það sé í lagi
kveðja, Gunni