oskar9 wrote:
Allveg er maður að fá gubbuna af þessum "SUV" tilraunum hjá BMW, hvað gerir þessi bíll sem 530D gerir ekki ? Afi átti 2011 X5 og þetta var einhver versti bíll sem ég hef keyrt ef maður fór útaf þjóðveginum, og við skulum ekki einusinni tala um hvernig hann lét ef hann byrjaði að festast í snjó

, X1 er fáranlegur, X3 er ljótur, X5 er flottur og X6 er useless bíll.
X5 er samt það eina sem meikar eitthvað sens í þessum jeppalínum hjá BMW, frekar stór og rúmgóður fjölskyldu bíll með medium ground clearance, hitt eru allt einhverjar inkaupakerrur með einhverju plat 4x4 kerfi, allavegna eftir að hafa prufað Cayenne og RR í bæði miklum snjó og utanvegar drullu og grjótakstri þá sér maður hvað þetta er mikið platkerfi hjá BMW hehe
Ættu að beefa X5 aðeins upp og gera hann meira jeppalegan, stækka svo X3 og gera hann líkari því sem X5 er í dag, svo má losa sig við restina
Ja, hér er ekki skafið utan af því. Átt E53 4,4 og á nú E70 3,0si. Báðir eru frábærir akstursbílar en verð að segja að akstursánægjan var mun meiri með 4,4 velina undir húddinu! E70 liggur vel, góður í hálku og snjó (á réttum dekkjum), rýmri en E53. Myndi kaupa allt annað ef ég væri að leita mér að torfærutæki - þá vil ég bíl með millikassa og lágt drif en það býður BMW ekki uppá. En E61 Touring 530xi sem ég á einnig slær þessum bílum gersamlega við varðandi aksturseiginleika; fjórhjóladrifið, lágur þyngdarpunktur, léttarien X5 = Snarpur og Límdur við veginn!!! Snilldarvagn.
PS: Já nýi ML Bensinn er hræðilega ljótur; hélt þetta væri einhver illa heppnaður Kóreujeppi (Norður-Kóreu kannski?) er ég sá hann fyrst

_________________

BMW X1, 18d, 2014 (E84)
BMW X5, 4,8i, 2007 (E70)
BMW 635CSi,1986 (E24)
BMW 316,1987 (E30)
BMW 530Xi Touring, 2006 (E61), seldur
BMW X5, 2007, (E70), seldur
BMW X5 4,4i, 2004 Seldur