Bára
Danni wrote:Ég myndi segja miðað við þessa lýsingu að það er að öllum líkindum farin heddpakkning. Hann hefur ofhitnað og sprengt heddpakkninguna og jafnvel heddið líka. Þá smitast vatnið í olíuganginn og svona gerist, olían verður full af vatni kælivatnið hverfur af honum.
Hvernig BMW er þetta?
*Edit: Miðað við notendanafnið þá er þetta 320i sjálfskiptur árgerð 1995, stemmir það?
JonHrafn wrote:Já hedd eða heddpakkning er það fyrsta sem manni dettur í hug. Pústar hann hvítum reyk?
Annars væri byrjunin bara að láta hann á lyftu og reyna koma auga á leka.
Danni wrote:Ég misskildi aðeins þegar ég las þetta fyrst, þegar þú sagðir að það var fyllt á olíuna og vatnið þá las ég sem að olían væri full af vatni.
Hversu hratt tæmir hann vatnið af sér og var alveg pottþétt loftæmt rétt þegar það var fyllt á?
Er einhverstaðar smit að sjá á vélinni eða í kringum vatnskassann? Ef vatnið er ekki að hverfa mjög hratt getur verið lítill leki sem er svo hægur að vatnið nær að þorna áður en það byrjar að dropa undan honum, það getur verið mjög óþægilegt ef að lekinn er á einhverjum stað sem sést ekki.
En fyrst að það er búið að leka eitthvað vatn af honum, í þetta eina skipti (ef ég skildi þetta rétt) þá hlýtur bara að vera að það er leki einhverstaðar á kerfinu.
Users browsing this forum: No registered users and 11 guests