SteiniDJ wrote:
Hvernig gerðirðu þetta?! Ég á PS2 sem er _aldrei_ notuð og væri feitt til í svona mix.

Heitir skjárinn okkar ekki annars MkIII og sá stærri MkIV?
Ég er ekki alveg klár á hver munurinn er á milli MK1,2,3,4 en ég held samt að MK2 og ofar séu 16:9 skjáirnir, en mismunandi kynslóðir navigation. En eins og ég segi, ekki alveg með þetta á hreinu.
Hvernig tengdi ég PS2 ? Skítlétt!
1. Keypti þetta:
http://www.toysinyourcar.com/acatalog/bmw_av.html2. Tengdi við TV tækið í skottinu, skítlétt, fer þar sem hvíti plöggurinn (minnir mig, eða blái) fer og virkar sem millistykki.
3. Þræddi RCA snúru fyrir vídeó og mono audio úr skottinu, fram í bílstjóramegin, bakvið miðstöðina og meðfram þarna "miðjunni" á milli sætanna og út undir farþegasætinu þar sem tölvan er staðsett.
4. Keypti þetta:
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-Auxi ... 516wt_11675. Tengdi í hanskahólfinu ásamt PS2 straumbreyti fyrir bíl og kom fyrir í hanskahólfinu (nota það hvort eð er aldrei).
6. Þræddi niður úr hanskahólfinu og á bakvið allt shittið þar til ég tók út við hliðina á farþegasætinu þar sem RCA snúran kemur. Það fer undir sætið og tengist við tölvuna.
7. Útvegaði mér þráðlausri PS2 fjarstýringu og viola! Fer í Television í sjónvarpinu og vel AUX rásina, virkar perfectly!
Ég skal taka myndir af þessu við tækifæri en ekki núna því bíllinn er megaskítugur að innan jafnt sem utan og mikil óreiða vegna tímaleysis.
-----
ps. er að vinna í að laga 18" felgurnar. Ætla að þrífa mjög ítarlega, hreinsa allt af þannig að aðeins álið stendur eftir, spastla, pússa það upp, grunna sprauta og lakka. Ég hafði hugsað mér að hafa þær ekki eins bjartar og þær eru heldur svona reyklitaðar, en ekki of dökkar samt sem áður.
Lélegar símamyndir en felgan til vinstri lítur talsvert betur út þrifin en sú hægra megin, óþrifin! Þessar sem standa ennþá eru ósnertar í bili.

