bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 00:00

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 91 posts ]  Go to page Previous  1 ... 3, 4, 5, 6, 7  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. May 2007 21:21 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Posts: 354
Location: Skagaströnd
Ég á eina góða.

Þetta var á þeim tíma er ég bjó í sollinum í Reykjavík og átti e32 735.
Ég hafði verið að spila á Amsterdam þessa nótt og klukkan var að verða sex þegar ég ræsti út kærustuna mína og fékk hana til að sækja mig.

Ég veit ekki hvort pirraði hana meira, að vera vakin kl sex til að sækja kærastan sinn niður í bæ í 15 gráðu frosti eða það að ég var svo blindfullur að ég rétt komst inní bílinn.

Svo var ekið heim, og viti menn ég steindó áfengisdauða á leiðinni.
Á planinu heima reyndi konan árangurslaust að vekja mig og koma mér inn en allt kom fyrir ekki og endaði sú tilraun með því að hún strunsaði inn og hugsaði með sér að ég hliti að ranka við mér fljótlega og koma mér inn sjálfur.

Tveimur tímum seinna vaknaði ég við það að ég var kominn með fyrstu einkenni ofkælingar, skalf eins og hrísla og var svo hálf þunnur að ég hélt að ég dræpist. Taldi ég þann kostinn vænstan að hafa mig inn áður en ég frysi í hel en þá kom í ljós að kella hafði læst bílnum með mig inní honum og ekkert þýddi að reyna að toga í læsingartakkana. Það virtist vera sem svo að ef að bílnum var læst utanfrá þá komst þú hvorki út né inn.

Nú voru góð ráð dýr.
Ég var með símann minn með mér en var gjörsamlega inneignarlaus og þetta var fyrir tíma þessara sos láns aðgerða hjá símanum.
Ég tók sem sagt á það ráð að hringja í Neyðarlínuna og segja þeim alla sólarsöguna. Þeir gáfu mér samband við lögguna og kallinn sem svaraði þar var mjög skeptískur á þessa sögu mína. Eftir 30 mínútur af fáránlegum spurningum um hvernig mér tókst að koma mér í þessar aðstæður, féllst hann loks á að hringja í kærustuna mína og láta hana opna bílinn fyrir mig en fyrst tók við önnur eins spurningalota hjá henni. Það var því eftir þrjá klukkutíma í 15 stiga frosti á bol og þunnum jakka sem mér var hleypt útúr blessuðum bílnum.

Þetta er eitt það fáránlegasta sem komið hefur fyrir mig í bíl.

_________________
Þetta er bara blær, blíður og vær.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. May 2007 21:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
bwahahahahaha :lol:

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. May 2007 22:12 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
:lol2: :rofl: ](*,) :rollinglaugh: :slap: :owned:

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 00:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
hahaha.. þessi var geggjuð :lol:


ég er svo sem með eina..


þannig var mál með vexti að ég átti 316 hérna um árið og var snjó season í gangi og því allt á kafi í snjó.. ég fer út á RWD bílnum í snjóinn og svo skemmtilega vildi til að fóðringarnar að aftan voru HANDÓNÝTAR þannig að bílinn var með four wheel steering.. indipendent að aftan :lol:

ég gat náttúrulega slide-að eins og ég væri á ONNO í blautu og bíllinn fór hverja einustu beygju í slidei hvort sem ég vildi það eður ei..

ég skelli mér þá inn á nýjungsplanið og set bílinn í slæd og slæda hring í kringum WRX imprezu og eigandinn var með þennan svip :shock: ég svo keyri í burtu og hugsa með mér að það sé best að hætta þessu slide veseni þar sem ég átti að mæta í vinnu eftir smá.. nei nei þá tek ég eina beygju.. bíllinn fer í slide og ég hamra á bremsuna (ABSið bilað) og hann gerir þá ekkert annað nema halda sömu stefnu frekar og fer á nánast engum hraða utan í staur.. ég býst við smá rispum.. nei nei þá er ljósastaurinn alveg inn í brettinu og sér ekki rispa á staurnum..


frekar aulalegt.. imprezu guttinn hló allavegana :lol:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 01:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Það asnalegasta er þegar ég lenti í 4sæti á 325i með 2.0vél

:lol: :lol:

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 01:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
gstuning wrote:
Það asnalegasta er þegar ég lenti í 4sæti á 325i með 2.0vél

:lol: :lol:


:hmm:

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 01:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Var að rúnta með Gunna félaga á laugardags kvöldi á 325i sennilega 1998
Drapst á bílnum á miðjum rúntinum á austurstræti, bíllnn steindauður setti hann í gír og startaði honum áfram í stæði, húkkuðum svo far til systir í minnarí garðarbæ, fengum bíl hjá henni til kef fórum á pabba bil til blaka í rvk og drógum bílinn heim, enduðum heima um 7 eða 8 um morguninn.
Bilunin var að tölvan í bílinum var ónít.

Annað ativik á rúntinum, var með kærustu minni að runta í stórum hóp bíla, svona hittingur á AK inn þegar það var og hét. Var á laugarveginum þegar byrjar að rjúka uppúr húddinu hjá mér all svakalega.
Ég opnaði húddið, þá sé ég að vírinn í altenatorinn er rauðglóandi og er að bræða upp alllt lúmið á bílnum, ég reyni að rífa pólana af geiminum, brenni mig á pólunum við að reyna,, (( annað hvort var rafgeimirinn minn að fara að klára út af sér, eða það vara að fara að kvikna í bílnum mínum,))
Sem betur fer var ég á laugarveginum, því það komu kallar hlaupanid ut af næsta bar, með slökkvitæki og hinn með ledderman sem hann gat notað til að taka pólinn af geiminum hjá mér.
Ég kúkaði næstum því á mig þetta kvöld,
Sæmi gamli kom svo og bjargaði mér dróg mig heim til sín og lánaði mér og konuni bíl til að komast heim á , takk fyrir það Sæmi þú átt skilið að fá Thule.


Svo svona einn sem maður á kanski ekkert að vera að segja en fokit.
Ég Gunni og Óskar fórum til Borgarnes til að ná í einhvern búðing sem Gunni fékk nánast gefins.
Auðvita var hann ekkert í ökuhæfu ástandi en bíllin var fastur í bakkgír. Komumst við félagarnir af þeirri niðurstöðu að það væri best bara að stiga á kúplinguna og draga bilinn heim
:roll: :roll: :roll: :roll:

Mikið svakalega vorum við sniðugir , smeltum spotta í og keyrðum af stað, allt eins og í sögu, komnir yfir brunna á leið til RVK skælbrosandi,
Svo læsist gírkassinn í búðingnum, enda ekki gott að vera að draga bílinn í bakkgír áframm á 70 kmh gírkassinn er auðvita á miljón,

Gunni var í búðingnum ég og Óskar í Hinum bilnum, sé ég gunna alveg þversum á veginum með aftrudekkin læst og það kemur ótrúlegur kippur í bílinn minn, hann nær að stýra bínum hinumeginn þá er hann kominn alveg þversum í hina áttina svo kippist i spottan ´þá er bíllin hjá honum að fara að renna alveg hálf hring og þá smella beit í hliðina á minum bíl, ég er að horfa á gunna við hlið mér hann stefnir með rassin til rvk og er að fara að kyssa hliðina á bílnum hjá mér þá slitnar helvíts spottin og gunni afturábak útaf á röngum vegarhelmin

Ég þakka fyrir það að það kom ekki bíll úr gastæðri átt, það var frekar mikil umferð þetta kvöld og ég vill ekki einusinni hugsa út i það ef það hefði komið bíll á okkur á versta tima.

En allavega bílli var skilin eftir í vegkandinum og við fórum heim með hjartað í buxunum .

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 01:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Já, það VAR ROSALEGT........

bara djöfulli ánægður að geta hlegið að því. :lol:

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 02:13 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Posts: 444
Location: RVK
Ætli það hafi ekki verið þegar ég var að krúsa á Corollu druslunni minni og ég kem auga á eitthvað lið þarna nærri svo ég ákveð að vera eitursvalur og ætlaði að taka þessa rosalegu handbremsubeygju í 90° beygju en það tókst bara ekki betur en svo að ég var á alltof mikilli ferð svo bíllinn snerist þvílíkt og afturhlutinn slengdist í ljósastaur :oops:
Went from cool to fool :cry:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 03:58 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sat 11. Sep 2004 18:09
Posts: 445
Location: Nesk.
vá hvað ég er búinn að skemmta mér við að lesa sögurnar frá ykkur :rollinglaugh:

_________________
mussi bubbi slappi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 08:00 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
Ég var með vini mínum á rúntinum á corolludruslu, sem við fengum gefins.
vorum á þessum klassíska miðbæjarrúnt, þegar ég ætlaði að stytta mér leið og taka svona SWEET handbremsubeygju
inná Laugarveginn :oops: Misreiknaði mig aðeins og hendi druslunni uppá kant og hjó í sundur
hægra afturdekkið :oops: :oops: FULLT af fólki í kring sem benti á mig og hló :oops:
Pínlegri rúnt hef ég ekki reynt :oops: og keyrði á sprungnu uppí grafarvog til að skipta um dekk :oops:

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. May 2007 23:25 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Thu 20. Apr 2006 18:52
Posts: 901
Location: cruizin on 540 8)
Er með tvær í viðbót fyrir ykkur, reyndar af tvemur félugum mínum.

Skellti mér á rúntinn með off-topic kóngi Kraftsins :lol: vorum á GMC jeppanum hanns í vetur fljúgandi hálka og fun. Hann var stanslaust að tæta á þessu dóti sínu og var í korter í minnsta hringtorginu á hafnargötunni nonstop. Brunaði síðan inná Ný-Ungsplanið tók smá drift þar en tók ekki eftir kyrrstæðum bíl sem var þarna fyrr en við vorum komnir 10 metra að honum, hann neglir jeppanum niður en asnast einhvernegin til að standa bensíngjöfina líka, hann var alveg við það að stoppa hann þegar hann rétt potar í rassgatið á kyrrstæða bílnum :lol: hefði hann verið lagður cm lengra þá hefði þetta sloppið :lol:

Þegar ég var nýlega búinn að fá Escortinn þá fórum við félagi minn að leika okkur á bílunum bakvið Hafnargötuna ( huge malarplan, og hann btw á escort líka ) ég stend tíkina og stefni útaf planinu og hann á eftir mér og ætlar að taka framúr en tekur ekki eftir smá ramp sem er þarna, hann þrumar á hliðina á rampnum og stekkur ca einn til einn og hálfann meter upp og skellur niður með frammendan á undan og stútar stuðaranum sem hann var nýlega búinn að skifta um :lol: :lol:

_________________
Kv.Gissur

Dótakassinn
E39 '96 540i - SS200
Honda CBR600 F4i '06

Seldir
E39 '97 528i
E39 '98 540i
E36 '95 325i
E28 '81 520i
E34 '93 525i
E46 '02 325i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 11. May 2007 02:17 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 03. Jun 2004 22:09
Posts: 457
Location: Reykjavík
Eitt skipti var ég á E30 316i á leið upp í ghetto-ið, Breiðholt. Þetta var leiðin frá Árbænum og yfir stífluna. Þegar ég er komin yfir ljósin skipti ég niður og rembast eins og ég get að taka framúr jeppa á leiðinni upp brekkuna og reyni að komast nógu langt frá honum til að geta driftað í beyjunni fyrir ofan. Maður varð að nýta rigninguna til að leika sér má. Þegar ég kem í beyjuna cluchdroppa ég eins og venjulega en gef aðeins of mikið í og sný bílnum þversum og fer yfir umferðareyjuna. Næsta sem ég sé er jeppakallinn horfandi á mig eins og ég sé hundur undir stýri.. Mér leið svolítið kjánalega þannig ég brosi hinu breiðasta og við það skall hann svona líka rosalega uppúr. Svo held ég bara áfram og keyri í hina áttina og rúnta eitthvað. Kom ekkert fyrir bílinn... Breiðhyltingar hafa ekki efni á að gera kanta. =)

Ég driftaði oft þarna eftir þetta. :P

_________________
M. Benz E320 Sportline '94 Svart Metallic
M. Benz E420 '94 Vínrauður
BMW 530iA '94 Diamondschwarts Metallic - Seldur
BMW 525iA E34 '94 Orientblau Metallic - Seldur
M. Benz 220E W124 '93 Ljósgrár - Seldur
BMW 316i E30 '90 Gletscherblau Metallic - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 11. May 2007 14:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Ég var eitt sinn að spyrna við einn kunningja sem var á AE86. Þá var ég á Escort XR3i sem virkaði ekki rassgat en samt var gaman og maður reyndi. Við vorum hlið við hlið á ljósum einhversstaðar á Bústaðaveginum og þegar kemur gult þá er tætt af stað með látum. Twincaminn sígur framúr ég skifti í annan en ekkert gerist. Það var bara eins og vélin færi ekki tengd við drifrásina. Sama hvaða gír ég valdi.

Ég varð að láta bílinn renna út í kant og þurfti svo að labba dágóðan spöl til að komast í síma og hringja eftir hjálp um miðja nótt. Já þetta var fyrir tíma GSM.

Bifvélavirkinn sagðist aldrei hafa séð kúplingu jafn illa farna. Ég man þó ekki eftir því að hún hafi snuðað áður, hún bara steindó í þessari örlagaríku föstudagsspyrnu.

------------------
Svo vorum við strákarnir einu sinni að rúnta fyrir framan eitthvað menntaskólaball og þá ákveður löggimann að stoppa mig. Ég hafði keypt næstum ónotuð nagladekk rétt áður en tímabilið byrjaði og ætlaði bara taka sénsinn. Hann setur út á naglana eins og eðlilegt er og rekur okkur heim með hótun um sekt.

Við brunum heim, inn í skúr, finnum skrúfjárn og plokkum alla helv. naglana úr. 40 mínútum síðar mættir til baka svellkaldir. Sem betur fer mættum við sama löggubíl aftur og ég keyrði extra hægt framhjá til að leyfa þeim að heyra ekki í nöglunum.

ps. þetta var í fyrsta og síðasta skipti sem ég hef sett nagla undir bíl í minni eigu, algjört krapp að keyra á þessu drasli.

------------------
Ég man enn númerið á þessum löggiman, 9111. Sá kútinn nokkrum vikum síðar á Laugaveginum, skrúfaði niður rúðuna og setti 911 is a joke með Public Enemy í botn. Langharðastur :lol:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 11. May 2007 18:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Sá vinkonu mína vera stoppaða fyrir að hafa verið að tala í símann. Ég ákveð auðvitað að vera svala hetjan á 1400 Golf dósinni sem að ég átti (var reyndar með mjög öflugar græjur) og set þetta lag; http://www.rokk.is/mp3/2/230_get_low_(remix).mp3 (þar sem að í laginu er sagt "allar löggur haldið kjafti, allar löggur fokk jú) í botn og rúnta nokkrum sinnum framhjá. Þegar að ég síðan átta mig á því að ég er enga athygli að fá hjá löggunni tók ég mig til og stillti bílnum mínum við svona plasthraðahindrun og tók eitt stykki gott "burnát" og kveikti bókstaflega í dekkjunum mínum. Þarna var ég að spóla í dágóða stund svo lengi að ég var hættur að sjá út úr bílnum, þá verð ég alltíeinu var við blá ljós inni í reyknum og auðvitað reyndi ég að stinga af en dekkin voru komin í vírana og ekkert grip eftir í þeim og þar af leiðandi rann ég út úr beygju og beint á götukant, þaðan valt bíllinn á hliðina inn á gras og ég náði ásamt einum félaga mínum að velta bílnum aftur á rétta hlið áður en að löggan kom. Fékk sekt fyrir dekkin, þurfti að borga nýja hraðahindrun og svo var pústið víst í ólagi og þar af leiðandi fékk ég ákæru fyrir hávaðamengun líka.

held að þetta hafi slagað í 150.000kr í heildina, dýrir töffarastælar.

Meðfylgjandi er þessi frétt um atvikið;
http://www.vf.is/numer/18521/default.aspx

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 91 posts ]  Go to page Previous  1 ... 3, 4, 5, 6, 7  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group