Bara vörubílar sem borga vegatolla í Þýskalandi, flestallir landflutningar á meginlandinu norður/suður austur/vestur sem fara í gegnum Þýskaland......mjög pirrandi!
HPH wrote:
réttlátt að ég borgi fyrir það sem ég nota.
þeir sem nota meira bensín => keyra meira / aka þyngri bílum þeir borga meira.
Mér finnst allt í lagi að minnka vægi opinberra gjalda í eldsneyti og rukka vegatolla en það væri óþarfa kostnaður og umsýsla að mínu mati.
Jarðgöng eru oft mjög þjóðhagslega hagkvæm, allt í lagi að borga fyrir það að keyra í gegnum Hvalfjarðargöngin enda ekki há upphæð.
EN það verður að gæta jafnræðis, það þýðir ekki að aðhyllast einkaframkvæmd á einum stað en ekki á öðrum stað. Ef göng fyrir vestan eru 1000 ár að borga sig upp eða vegagjaldið þyrfti að vera 20þús til að göngin myndu borga sig upp á jafnmörgum árum og t.d. Hvalfjarðargöngin þá er það ekki forsvaranlegt að ráðast í þá framkvæmd. Þá er þessvegna betra að kaupa bara upp plássið!
nú spyr ég samt bara.. getur fólkið á þeim stöðum þá bara sjálfum sér um kennt að búa þarna og á ekki sjálfkrafa rétt á sömu fríðindum og fólk á suðurlandinu?