Bílskúr - opnari og gólfefni

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Jónas » Fri 26. Oct 2012 04:53

Held að epoxy sé úr myndinni - sendi fyrir spurn á epoxygolf.is og hann talaði um 330k fyrir 20fm bílskúrsgólf :thup:
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby ANDRIM » Fri 26. Oct 2012 12:05

sumar físar er mjög veikar og bortna léttilega ef þú missir eitthvað á þær en mæli með hinnu
Andri Már
andri_mar@simnet.is


-BMW E46 323ic Daly
-BMW E36 325is Drifter
-Pocket bike Winter beater
-BMW E34 525ix Daly (SELDUR)
Image
Auglýstu varahlutina þína á http://PARTALISTINN.IS
ANDRIM
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Wed 06. Apr 2011 16:46

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Thrullerinn » Fri 26. Oct 2012 20:27

ANDRIM wrote:sumar físar er mjög veikar og bortna léttilega ef þú missir eitthvað á þær en mæli með hinnu


Þetta veltur allt á því að öll flísin sé jöfn sett á límið og engin holrúm undir.
Ef passað er upp á það þá þola flísarnar nánast það sama og steinsteypt gólf.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Maggi B » Mon 18. Mar 2013 23:16

Jæja, ég ætla að loksins láta verða af checkered gólfi, eru þetta flísar sem maður þarf að sérpanta eða fæst þetta hér, veit ekki einusinni hverjir fleiri en húsa og byko erum eð flísar, öll hjàlp vel þegin
User avatar
Maggi B
Getawaybílstjóri
 
Posts: 952
Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Location: í hjólförum

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby sopur » Tue 19. Mar 2013 16:54

Byrjaðu á því að fara með 2 metra réttskeið yfir gólfið, sjáðu hvort það séu lægðir í gölfinu
ef það er niðurfall í þá þarf hallinn á gólfinu að halla 2-3 metra frá niðurfallinu, misjafnt.
Ef þú sérð lægðir á gólfinu þá skaltu leggja réttskeiðina á gólfið og mæla hversu þykkt flotið þarf að vera
ef þú ert með málið á hreinu hvað flöturinn er stór og djúpur þá geta starfsmenn á þeim vinnustað sem selja þér flot sagt þér til um hvað þú þarft mikið af floti.
Svo er líka til sparslflot, sem myndi henta þér betur þar sem þú býrð sennilega ekki yfir þeim tækjum til þess að flota
þá sparslar maður gólfið rétt eins og sparsla veggi, muna samt að grunna ALLTAF undir flot og flísar!

Eftir það þá skaltu hugsa dæmið út til enda, best er að mæla skúrinn nákvæmlega og skipta svo málinu í tvennt svo þú náir flísabrotunum jöfnum við veggji (það eru margir sem mæla ekki sem gerir flísalögnina bara ljóta)
Eftir að þú ert búinn að finna rétta málið fyrir miðju gólfsins, þá skaltu merkja málið á gólfið og leggja spónar réttskeið á gólfið þeim megin sem þú ætlar að byrja (notaðu stálnagla til þess að negla þær fastar)
Best er að flísalegja í tveimur eða þremur pörtum, byrja semsagt á öðrum helmingnum og láta renninga mæta afgangs.

Þegar maður hrærir límið þá á það að vera létt í notkun, ekki þungt. besta límið að mínu mati er CM18 svo er alltaf fínt að eiga CM24 (hraðlím) þegar þú ferð í renningana nálægt veggjum, einnig er Nano Light algjör snilld.
Númer eitt tvö og þrjú er að passa að vera svoldið skipulagður þegar þú ert að líma, líma á ekki of stóran flöt í einu, fyrir byrjendur getur það klúðrast því þeir eru kannski lengur að dúndra og jafna flísunum við gólfið heldur en vanir menn.
Merktu línu í það sem þú ætlar að líma, ef þú ætlar út í 30x30 flísar merktu þá línu 30cm frá réttskeiðinni
En ef þú ferð á undan þér í líminu þá yfirborðsþornar límið sem þýðir minni viðloðun og vesen seinna
best er að leggja handabakið á límið áður en þú setur flísina á gólfið, ef það kemur ekki lím á handabakið á þér þá er límið yfirborðsþurrt og þá þarftu að taka það upp og hræra það upp í fötunni.

Best er að vera með svamp í fötu upp á það að hreinsa allt lím sem myndast í fúgunni því að það sparar mikinn tíma fyrir fúgun, sumir sleppa því og enda með að þurfa að fara með dúkahnífinn eftir að límið er þurrt sem tekur örlítið lengri tíma.

Áður en fúgað er þá skaltu vera viss um að engir krossar standi upp úr, sumir dýfa krossunum alveg ofan í fúguna sumir tylla þeim og taka þá síðan aftur upp
En það borgar sig að ryksuga vel undir því það er rosalega pirrandi að vera með ryk á gólfinu þegar maður er að fúga.

Með fúguna, þá er best að byrja á litlum fleti til þess að kynnast efninu, sumar fúgur eru mjög hraðþornandi og það er ekkert jafn slæmt og að missa heilt gólf í þurrki.
Maður verður að vera svoldi snöggur að fúga nudda og þrífa ef fúgan á að heppnast vel, passa líka að fara yfir gólfið til þess að athuga hvort það vanti í hana eitthverstaðar
E46 320D 02 í notkun
E60 545i 04
E39 540i 02
E36 325i 95
E34 525IX 93
sopur
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Fri 18. Mar 2011 06:28

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby jens » Tue 19. Mar 2013 22:07

Verulega flottar leiðbeiningar :thup: þetta bíður mín í vor þegar bíllinn minn fer út.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby lulex » Wed 20. Mar 2013 23:20

BMW 325i
User avatar
lulex
Getawaybílstjóri
 
Posts: 682
Joined: Sun 26. Dec 2004 23:35

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Thrullerinn » Thu 21. Mar 2013 08:46

jens wrote:Verulega flottar leiðbeiningar :thup: þetta bíður mín í vor þegar bíllinn minn fer út.


Tek undir það, ekkert smá flott.
Setti taflborð á skúrinn hjá mér í vetur, þarf að drullast til að taka myndir.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby jens » Thu 21. Mar 2013 10:45

Já væri gaman að fá myndir af flottum bílskúrum meðlima. Ég er að skipuleggja hvernig skúrinn á að vera hjá mér, langar að láta smíða innréttingar og fl.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby HAMAR » Sun 24. Mar 2013 14:34

Ég er með epoxy á skúrnum mínum og það er ekki að gera sig (allt farið að flagna og lítur illa út),
ætla að skipta því út fyrir flísar.
Er svo að spá í svipað look og þetta á veggina þegar flísalögn er búin:

Image
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Thrullerinn » Thu 28. Mar 2013 06:53

Þetta er ekki alveg klárað hjá mér, t.d. er þakið ónýtt og það vantar helminginn af lýsingunni.
Það er allt þarna inni á hjólum. Skáparnir eru gamlir skápar frá varnarliðinu, kom svolítið á óvart hvað þeir eru að reynast vel.
Er búinn að endurnýja allt þarna inni í vetur, hitaveita, heitt, kalt, rafmagn, vinnuborð o.fl. o.fl. Síðan er auðvitað karlkyns salernisskál, sem er nauðsynleg í húsakynnum sem þessum.

Image

Image
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Giz » Thu 28. Mar 2013 07:11

Thrullerinn wrote:Þetta er ekki alveg klárað hjá mér, t.d. er þakið ónýtt og það vantar helminginn af lýsingunni.
Það er allt þarna inni á hjólum. Skáparnir eru gamlir skápar frá varnarliðinu, kom svolítið á óvart hvað þeir eru að reynast vel.
Er búinn að endurnýja allt þarna inni í vetur, hitaveita, heitt, kalt, rafmagn, vinnuborð o.fl. o.fl. Síðan er auðvitað karlkyns salernisskál, sem er nauðsynleg í húsakynnum sem þessum.


Þetta er dásamlegt hjá þér alveg! Svona langur og mjór skúr eins og minn virðist vera, hvað er hann stór? Minn er minnir mig um 24fm, gólfið ónýtt.

Djöfull þarf ég að gera þetta nkl svona!
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Maggi B » Thu 28. Mar 2013 07:34

Gætiru verið svo vænn að gefa það upp hvar þú verslaðir flísarnar, eru þetta ekki glerjaðar flísar, ekki gegnheilt.
User avatar
Maggi B
Getawaybílstjóri
 
Posts: 952
Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Location: í hjólförum

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Viggóhelgi » Thu 28. Mar 2013 09:25

Hvar fékkstu skápana góðu (grænu) :) fékk gefins 15 stk af þessu :)
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Postby Thrullerinn » Thu 28. Mar 2013 11:26

Flísarnar fékk ég í Álfaborg, Turin Blanco 31,6x31,6 & Turin Antracita 31,6x31,6 glerjuð.
Þetta eru svona sæmilega dýrar flísar. Ekki gegnheilar. Þetta er heimili 911 og ég stefni ekki á iðnað þarna inni, svona dund hobby arcade stemming þarna. Merkilegt að það skuli ekki vera spilakassi þarna inni nú þegar.

Bílskúrinn er 27fm og stækkaði alveg massíft við að flísaleggja, lykillinn er líka fólgin í lýsingunni og að reyna að nýta plássið sem best, t.d. að stinga verkfæraskápnum undir borðið, einnig stakk ég risa pottofni sem ég fékk gefins þarna út í horn og opnaði fyrir hann í gegnum borðið. Þessi grænu skápar eru minni en maður heldur, sem er betra í bílskúr sem þessum þar sem þeir éta ekki upp allt plássið. Ætla að fara í bauhaus og versla nokkur plastbox sem passa í hólfin til að ná betri nýtingu. Verslaði króka í IKEA og er að hengja allan fjandann utan á þessa skápa, þá sérstaklega hliðarna.
Skápana fékk ég hjá stelpu í kef city, 15 þús kall stykkið, hjólin undir þá einhver 3 þús kall í byko.
Er með ýmsar hugmyndir um hvernig veggirnir verða, eflaust arcade dótarí af ýmsum toga.
Það sést nú ekki á myndunum en ég heilspartslaði veggina, kannski óþarfa pjatt, en finnst það bara miklu snyrtilegra.

Keypti þennan netta vask og pissuskál í bauhaus á undir 30 kall, auðvitað fylgdi ekki helvítis botnventillinn í vaskinn þannig önnur ferð þarna út í rassgat.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests

cron