by sopur » Tue 19. Mar 2013 16:54
Byrjaðu á því að fara með 2 metra réttskeið yfir gólfið, sjáðu hvort það séu lægðir í gölfinu
ef það er niðurfall í þá þarf hallinn á gólfinu að halla 2-3 metra frá niðurfallinu, misjafnt.
Ef þú sérð lægðir á gólfinu þá skaltu leggja réttskeiðina á gólfið og mæla hversu þykkt flotið þarf að vera
ef þú ert með málið á hreinu hvað flöturinn er stór og djúpur þá geta starfsmenn á þeim vinnustað sem selja þér flot sagt þér til um hvað þú þarft mikið af floti.
Svo er líka til sparslflot, sem myndi henta þér betur þar sem þú býrð sennilega ekki yfir þeim tækjum til þess að flota
þá sparslar maður gólfið rétt eins og sparsla veggi, muna samt að grunna ALLTAF undir flot og flísar!
Eftir það þá skaltu hugsa dæmið út til enda, best er að mæla skúrinn nákvæmlega og skipta svo málinu í tvennt svo þú náir flísabrotunum jöfnum við veggji (það eru margir sem mæla ekki sem gerir flísalögnina bara ljóta)
Eftir að þú ert búinn að finna rétta málið fyrir miðju gólfsins, þá skaltu merkja málið á gólfið og leggja spónar réttskeið á gólfið þeim megin sem þú ætlar að byrja (notaðu stálnagla til þess að negla þær fastar)
Best er að flísalegja í tveimur eða þremur pörtum, byrja semsagt á öðrum helmingnum og láta renninga mæta afgangs.
Þegar maður hrærir límið þá á það að vera létt í notkun, ekki þungt. besta límið að mínu mati er CM18 svo er alltaf fínt að eiga CM24 (hraðlím) þegar þú ferð í renningana nálægt veggjum, einnig er Nano Light algjör snilld.
Númer eitt tvö og þrjú er að passa að vera svoldið skipulagður þegar þú ert að líma, líma á ekki of stóran flöt í einu, fyrir byrjendur getur það klúðrast því þeir eru kannski lengur að dúndra og jafna flísunum við gólfið heldur en vanir menn.
Merktu línu í það sem þú ætlar að líma, ef þú ætlar út í 30x30 flísar merktu þá línu 30cm frá réttskeiðinni
En ef þú ferð á undan þér í líminu þá yfirborðsþornar límið sem þýðir minni viðloðun og vesen seinna
best er að leggja handabakið á límið áður en þú setur flísina á gólfið, ef það kemur ekki lím á handabakið á þér þá er límið yfirborðsþurrt og þá þarftu að taka það upp og hræra það upp í fötunni.
Best er að vera með svamp í fötu upp á það að hreinsa allt lím sem myndast í fúgunni því að það sparar mikinn tíma fyrir fúgun, sumir sleppa því og enda með að þurfa að fara með dúkahnífinn eftir að límið er þurrt sem tekur örlítið lengri tíma.
Áður en fúgað er þá skaltu vera viss um að engir krossar standi upp úr, sumir dýfa krossunum alveg ofan í fúguna sumir tylla þeim og taka þá síðan aftur upp
En það borgar sig að ryksuga vel undir því það er rosalega pirrandi að vera með ryk á gólfinu þegar maður er að fúga.
Með fúguna, þá er best að byrja á litlum fleti til þess að kynnast efninu, sumar fúgur eru mjög hraðþornandi og það er ekkert jafn slæmt og að missa heilt gólf í þurrki.
Maður verður að vera svoldi snöggur að fúga nudda og þrífa ef fúgan á að heppnast vel, passa líka að fara yfir gólfið til þess að athuga hvort það vanti í hana eitthverstaðar
E46 320D 02 í notkun
E60 545i 04
E39 540i 02
E36 325i 95
E34 525IX 93