Hvern á að kjósa?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvern á að kjósa?

Poll ended at Sat 25. Apr 2009 09:35

xB - Framsókn
9
6%
xD - Sjálfstæðisflokkur
37
25%
xF - Frjálslyndir
3
2%
xP - Lýðræðishreyfingin
4
3%
xO - Borgarahreyfingin
18
12%
xS - Samfylkingin
21
14%
xV - Vinstri grænir
6
4%
Skila auðu
23
16%
Óákveðinn
26
18%
 
Total votes : 147

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Astijons » Mon 20. Apr 2009 12:50

http://www.mbl.is/mm/frettir/kosningar/compass.html
haha ég hakaði við allt Hvorki né og skiptir engu máli
Lýðræðishreyfingin (P) 98%
Samfylkingin (S) 92%
Borgarahreyfingin (O) 91%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 90%
Sjálfstæðisflokkur (D) 88%
Framsóknarflokkur (B) 88%
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 88%

haha 98% :P
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Re: Hvern á að kjósa?

Postby gardara » Mon 20. Apr 2009 13:01

Hvað með X-C ? :lol:

Image

Jón Ragnar wrote:
bebecar wrote:Voðalega finnst mér samfylkingin sleppa ódýrt frá hruninu og sinni ábyrgð á því...


Djöfull er ég sammála


Get samt ekki sagt neitt því að ég ætla að kjósa D

Allt annað en fokking vinstri stjórn!!! :argh:



:clap: :clap:
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby jens » Mon 20. Apr 2009 13:21

Skila auðu.

Hef aldrei skilað auðu og hélt ég myndi aldrei skila auðu í alþingiskostningum en svona er nú bara komið.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: Hvern á að kjósa?

Postby ValliFudd » Mon 20. Apr 2009 13:32

Merkilegt...

http://www.visir.is/article/20090420/FRETTIR01/412598124/-1
VG stærsti stjórnmálaflokkur landsins


Í okkar könnun fá þeir 1 atkvæði af 42 :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Einarsss » Mon 20. Apr 2009 13:37

mér finnst bara ótrúlegt að fólk ætli að kjósa sjálfstæðisflokkinn eftir hvernig þeir fóru með völdin síðast ... ekki furða þó hlutirnir breytast hægt og illa á þessu landi.

Spilling ofan á spillingu og þvílíka klíkan sem er búin að koma sínum í góða stöðu á kostnað almennings!

Ég myndi skila auðu frekar en að kjósa þennan flokk
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Hvern á að kjósa?

Postby íbbi_ » Mon 20. Apr 2009 13:41

ég er með öllu óáhveðinn,

fyrir mér er þetta þannig..

sjálfstæðisflokkurinn.. NEI. þeir eru svo gjörsamlega búnir að drulla upp á bak að það er til skammar, svo neita þeir öllu og kannast ekkert við neitt, ennþá óskeindir. og ef einhver hefur fylgst með alþingi yfir daginn síðustu vikur þá hefur sjálfstæðisflokkurinn bókstaflega verið til skammar, standandi fyrir töfum og óþarfa málþófi, og feiti ræningin úr eyjum syngjandi í pontuni.. hvað er að?

samfylkingin, NEINEI.. samtýningurinn ætti þetta að heita, var í ríkistjórn, hefur engin sjálfstæð málefni, flokkast á milli eftir hentugleika, og er að sleppa alltof vel út úr þessu. þeir ættu að sæta mun meiri ábyrgar. afglöp ingibjargar sólrúnar og flr ættu með réttu að vera búin að salta flokkinn í nokkur ár, ekki stórefla hann eins og raunin virðist vera. finnst

vinstir grænir, NEI. hvernig getur sjálfstætt þenkjandi hugur kosið slíkan flokk,

frjálslyndir. WTF segi ég bara, eru menn að grínast.? þvílíkt samansafn afdala vitleysinga ætti frekar að setja á safn svo fólk geti velt þeim fyrir sér. ekki falið þeim valdið yfir landinu.

framsókn.. af hverju er þessi flokkur ennþá til?

lýðræðishreyfingin.. ef þjóðin kýs þennan andskota yfir sig þá getur hún sjálfum sér um kennt.

borgarahreyfingin, á eftir að kanna hana betur, lýst eitthvað takmarkað á rithöfund með enga stjórnmálareynsluí 1sta sæti, og eitthvað skáld á næsta sæti. finnst stefna þeirra og yfirlýsingar tengjast einhverju allt öðru en því sem maður vill vita.


eins og ég segi.. ég veit ekki hvern andskotan ég á að kjósa.. mér lýst ekkert á neinn aðilana. og autt atkvæði skilar engum árangri öðru en áliti
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bimmer » Mon 20. Apr 2009 14:03

einarsss wrote:Spilling ofan á spillingu og þvílíka klíkan sem er búin að koma sínum í góða stöðu á kostnað almennings!


Losnar ekki við þetta böl með því að kjósa Samfylkinguna :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Jón Ragnar » Mon 20. Apr 2009 14:22

Athugið það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið í gegnum miklar mannabreytingar núna..

komið fullt af góði fólki sem ég hef trú á :)

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Geirinn » Mon 20. Apr 2009 14:27

Íslendingar eru svo fljótir að gleyma.....

Ég vissi í hvað stefndi þegar fólkið tók pottana og sleifarnar niður á Austurvöll. Þjóðin á eftir að kjósa yfir sig skítinn enn og aftur.

Það er hins vegar engin góð lausn á málinu...
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Mon 20. Apr 2009 14:57

Ég skil mjög vel að fólk vilji skila auðu eða kjósa eitthvað alveg nýtt (það getur varla verið verra nefnilega!)

Ég skil jafnframt mjög vel að fólk skuli ekki kjósa D núna, flokkurinn á það virkilega skilið að fá skell!

Ég get hinsvegar MEÐ ENGU MÓTI skilið hvernig einhverjum dettur í hug að kjósa Samfylkingu eftir það sem hér hefur gerst. Sá flokkur ber RÍKA ábyrgð á hruninu, rétt eins og sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn, t.d. í gegnum viðskiptaráðuneyti og ekki gleyma UTANRÍKISRÁÐUNEYTI þar sem ákveðið var að lúffa fyrir Icesave þrýstingi til að ýta Íslandi nær ESB (gegn loforði um stuðning frá Icesave löndunum í staðinn) og þá eru ótalin tögl og haldir flokksins á Bessastöðum (fjölmiðlafrumvarpið - sem er líkleg ástæða þess að gagnrýni skorti á hvað var að gerast, vegna blóðtöku þeirra miðla sem áður höfðu tíma og peninga til að kafa í hlutina) og verndarvængur flokksins yfir útrásarvíkingum síðastliðin 5 ár í það minnsta.

Nú er ég ekki sérlega hrifin af ESB (skrifræði og lýðræðishalli eru einkennismerkin) þó ég telji að við getum alveg haft það ágætt þar innanborðs líka - en svona aðgerðir eru bara svakalega grófar, að skuldsetja land og þjóð til að hafa möguleika á að ná einu af stefnumálum flokksins!

Vinstri grænir eru þokkalega saklausir af þessu hruni öllu saman - það verður að segjast eins og er, EN vinstri grænir eru hinsvegar sekir um að ýta undir óeirðir og mótmæli gegn lýðræðislega kosinni ríkisstjórn í landinu, nokkuð sem er svo ótrúlega ólýðræðislegt og bananalegt að fólk verður virkilega að velta því fyrir sér hvort það sé hreinlega siðferðilega rétt að veita þeim atkvæði. Hefðu VG látið það eiga sig að blanda sér í búsáhaldabyltinguna þá væru þeir með nokkuð hreinan skjöld fyrir kosningar.

Það er rétt að D hefur heldur betur blásið út báknið en þeim hefur þó tekist að auka frelsi og það er kannski helst það sem maður óttast að fari forgörðum því það má 100% stóla á forsjárhyggjuna hjá SJS.

Það er því fátt um fína drætti, held svei mér að borgarahreyfingin sé skynsamlegasti kosturinn eins og staðan er. Meira að segja skil ég fólk sem kýs Ástþór :lol: - erfiðast finnst mér samt að skilja að einhver vilji kjósa Samfylkinguna eftir það sem á undan er gengið. Það getur varla verið út af öðru en Jóhönnu og ESB (annað eins hefur nú svosem gerst með D þegar fólk kaus D út af Davíð eingöngu) en aðstæður eru þannig nú að það finnst manni hreinlega ekki rétt, að verðlauna einhvern sem klárlega ber ábyrgð líka á þessu hruni.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Dóri- » Mon 20. Apr 2009 15:28

ég hef engan áhuga á að kjósa neitt, en ég verð að kjósa eitthvað til þess að taka atkvæði frá VG!
VG er engin lausn, bara forræðishyggja og skattahækkanir!


Hugsa að ég kjósi annaðhvort samfylkinguna eða sjálfstæðisflokkinn, mér lýst ágætlega hvað hún jóhanna? er að gera í samfylkingunni.
Hugsa samt að með því að kjósa samfylkinguna stuðli það á samstarfi með VG... :roll:

bara mín skoðun :)

edit: fór svo að hugsa um leiðinleg lög eins og hækkanir sekta við umferðalagabrota og aukaskatt á bifreiðaeigandur í formi sekta við að skoða ekki bílinn strax, er þetta ekki sjálfstæðisflokkurinn sem stóð fyrir því?
Einnig hugsa ég til þess að ég beið í 8 mánuði eftir að komast í aðgerð á öxl og það var á meðan sjálfstæðisflokkurinn var.

kýs ekki sjálfstæðisflokkinn :x

samfylkingin fær mitt atkvæði
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Aron Fridrik » Mon 20. Apr 2009 16:03

mætti á framboðsfund fyrir nemendur í skólanum..


Allir fulltrúar flokkana voru þarna fyrir svörum nemenda.. VG byrjuðu á þvi að tala um að fólk sem væri með hærri laun á frekar að borga brúsann þvi þau geta það frekar og að þau höfðu lækkað laun þingmanna og tekið aftur ellilífeyrisfrumvarp þingmanna..

manneskja XD grillaði smá og benti á að XD og XS lækkuðu laun þingmanna á sínum tíma ekki VG og að VG hafi stutt eillilífeyrisfrumvarpið á sínum tíma..

VG setti á svið leikhús og lét manneskju sem er á þeirra framboðslista (ekki einu sinni nemandi í skólanum) reyna að grilla fulltrúa annara flokka.. á endanum bað ræðustjóri hana um að spyrja eftir að hún var búinn að tala í 5 mínutur um stefnu VG.. og síðan fór hún að dreifa út áróðri sem var bara beindur að einum flokki og var mynd af Bjarna Ben í N1 t.d. á einni smellunni þarna..

og svo lauk fundinum og engu var svarað..


ef einhver kýs þetta.. verði honum á því.. ég verð mættur með potta og sleifar fyrir utan Alþingi..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Jónas » Mon 20. Apr 2009 16:24

Já, maður þarf að vera ansi vitgrannur til að setja X við VG
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Mon 20. Apr 2009 17:12

Svona hefur þetta alltaf verið í kosningabaráttu hafa alþýðubandalagið og svo VG í dag alltaf spilað eftir öðrum leikreglum.

Ég man vel eftir því í menntaskóla þegar öllum flokkum var boðið að hafa kynningarefni á einu borði í skólanum. Þeir þáðu það allir, nema hvað alþýðubandalsfólkið bar út hina bæklinga og brenndi þá úti á plani og skyldi svo bara sitt efni eftir á borðinu :!:

Hinsvegar, þá hefur VG fært nokkuð kröftuga stjórnarandstöðu síðustu árin og þvílíkt sem það er þarft (alltaf þarft auðvitað!!!)! Þeir fá plús fyrir það hjá mér... en ég treysti ekki þeim sem eru tilbúnir að svífast einskis til að komast til valda og þá skiptir engu í hvaða flokk það fólk er.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby siggir » Mon 20. Apr 2009 17:43

Mig langar að benda mönnum á eitt: Það að kjósa samfylkinguna er að kjósa vinstri græna og öfugt. Þessir flokkar ganga ekki óbundnir til kosninga og þessar kosningar virðast eingöngu ganga út á það að festa þessa stjórn í sessi sem alvöru meirihlutastjórn án framsóknarhækjunnar.

Sjálfstæðisflokkurinn á alls ekki skilið að ráða lengur, allt of mörg stór klúður sem þeir skilja eftir sig, t.d. mistök við einkavæðingu bankanna. Ríkisábyrgð bankanna var ekki afnumin sem þýddi að eigendur þeirra höfðu einskonar "get out of jail, free" spil.

,,Hey erum við ekki að taka svoldið mikla áhættu með þessu?"
-,,Pff... skiptir engu máli, ríkið reddar þessu ef þetta fokkast."

Ég er ekki búinn að ákveða neitt nema það að þessir fjórir fá ekki minn stuðning.
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests