bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 06:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 15  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 00:46 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
Gott svar grettir!

En afhverju eru allir að pissa í sig útaf þessum mótmælum?
Er ykkur kannski alveg sama hvernig er farið með ykkur?
Það er bara búið að margsanna sig að friðsamleg mótmæli gera ekkert, meira segja bara núna undanfarið hér á landi.
Mér sýnist þessi sem var tekinn i viðtal vera frekar mikill api, veit ekkert hvað hann á segja, reynir að svara öllu eins og mótmælendur séu hryðjuverkamenn þó það geisli af honum lygin, sést bara að hann þykist eitthvað vera upptekinn í símanum og veit ekkert hvað hann á að segja.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 01:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Ég hafði allt aðra hugmynd af þessum mótmælendum áður en ég horfði á þetta í dag, þar sá ég að þetta fólk er ekki með skrílslæti, heldur er það reitt, þetta er fólk sem hefur tapað miklu undanfarið. Þó svo að ungt fólk sé að mótmæla þá held ég að það sé fólkið sem "þorir"

Ég er stoltur að vera íslendingur í dag, hættum að láta vaða yfir okkur!
Í mótmælum verður alltaf einhver eignarskaði, mér finnst bara ótrúlegt hvað hann er orðinn lítill hingaðtil.

Snilld með jólatréið samt, bara brennt :lol:
Ætli við fáum annað Oslóartré fyrir næstu jól
hehe.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 03:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
sá sem kallar þetta skírílslæti veit bara ekki um hvað hann var að tala, ég var þarna í kvöld fram á nótt,
og þetta var ekkkert í líkingu við nein mótmæli sem ég hef séð hérna áður, þetta var venjulegt fólk öskuillt, það var engin meiðandi neinn þarna, það tók harðfullorðið fólk þátt í að bera oslóartréð á brennuna.. svo var sungið(mótmælt) og fólk á öllum aldri trommandi á bókstaflega allt.. ég sá fullorðnar konur með sleifar berjandi taktinn í marga klukkutíma,
skemmdirnar sem slíkar eru náttúrulega óafsakanlegar, en hvað á samt að gera, hlujtirnir eru bara allls ekki í lagi, og almenningur gjörsamlega hafður að athlægi, það er bara staðreynd,
ég hef aldrei séð meiri samhug eða samstöðu með fólki grínlaust, ég er nú bara ánægður með að hafa upplifað þetta með eigin augum

þegar ég var þarna get ég reyndar ekki sagt annað en að lögreglan hafi sýnt þroskaða framkomu að langflestu leyti, lögregluþjónar hunsuðu greinilega og sýnilega menn sem voru að reyna espa þá upp, mér fannst þeir reyndar dáldið glöð á mazeinu í fullri alvöru, þeir meizuðu stelpu fyrir framan mig sem ég hef svosum ekki minnstu hugmynd um hvað hún gerði,
ég var þó akkurat inní þvöguni að horfa á eldinn þegar skjaldarliðið gerði áhlaup, og það var nú bara vel brútal, þeir komu bara alltíeinu af fullum krafti inn í þvöguna og maður mátti bara þakka fyrir að verða ekki undir í kaosinu, bara gripið í konuna og hlaupið..

svo var reyndar annað sem var náttúrulega út í hött og það var lið sem sprengdi a.m.k tvær MJÖG öflugar sprengjur e-h á austurvelli, það flöpsuði á mér kinnarnar undan högginu frá þessu, svo sprengdu þeir upp ruslafötu og sendu upp mjög stóran flugeld inn í mannþvöguni,
þetta er náttúrulega bara stórhættulegt og heimskulegt, sprengjur eins og þessar tvær sem ég sá hefðu auðveldlega getað grandað einhverjum ef þær hefðu verið nær,

ég fór klukkan rúmlega 3 um nóttina, og þá var lögreglan að reyna drepa þetta niður, en það var ennþá töluvert af fólki og trommuslátturinn ennþá í gangi, fyrr um kvöldið og fram á 2 í nótt var lögreglan einfaldlega of fáliðuð,
ég fór nú bara þangað sem áhorfandi, og þetta var klárlega þess virði að sjá

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 08:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
KristoferK wrote:
grettir wrote:
KristoferK wrote:
Ég fordæmi með öllu mótmælendur (skríl) sem beita ofbeldi og þvílíkri villimennsku. Þessir aðilar hylja andlit sitt eins og hinar verstu rottur og beita síðan ofbeldi, skemma eigur almennings og ráðast svo gegn lögreglumönnum sem eru nú bara að sinna starfi sínu... Og það ekki fyrir álitlegt kaup.

Finnst það hreinlega til skammar að þetta fólk haldi því fram að það sé að tala fyrir "hönd þjóðarinnar" - Fyrr skal ég hundur heita. Þessir ónytjungar og spillvirkjar tala ekki fyrir mig og réttast væri að spara piparúðan og ráðast á þessi óargadýr með kylfum, og leyfa þeim svo að sofa úr sér reiðina í köldum, gráum fangaklefa.

Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.

Þú ert eitthvað að misskilja þetta. Skríllinn var allur innandyra. Eyðileggjandi eigur almennings og þykjast tala fyrir hönd þjóðarinnar. Hvers vegna gerir lögreglan ekki neitt í því?


Ég veit nú ekki til þess að þessi umræða snúist um ríkisstjórnina beint og skoðanir okkar á henni koma þessu máli ekkert við. Einnig er það engin afsökun sem réttlætir aðgerðir skrílsins niðrí bæ í dag að segja "en ríkisstjórnin er svo glötuð sklru!?"

En það er hinsvegar pistill í allt aðra umræðu. Því verður hinsvegar ekki breytt að þessar aðgerðir mótmælenda eru með öllu fáránlegar, ólöglegar og bera ekki svo mikið sem vott af siðmenningu. Þarna eru menn með það eitt í huga að brjóta og bramla, maður veit ekki einu sinni alveg hverju er verið að mótmæla... Það er bara þúst verið að mótmæla dæminum og þúst gaurnum sem er bara eitthvað klikk. Það var viðtal ekki fyrir all löngu við einn mótmælenda þar sem hann var spurður útí þetta; Eftir að hafa tekið það mjög skýrt fram að hann var GÍFURLEGA "ósáttur" við stöðuna í landinu þá lagði hann til að Ísland myndi bara fara undir Norðmenn... Hvað er svona fólk að gera þarna, ef ekki bara til að vera með læti og fá einhvern hasar?

Að horfa á þessa apaketti reyna að "mótmæla" fær mig til þess að vona að ríkisstjórnin stígi ekki niður við þessar aðstæður. Ekki vil ég að þessi múgur haldi að hann hafi "unnið"... Ég tek Geir framyfir þessa hryðjuverkamenn.



Það er búið að halda siðsamlega mótmæli í marga laugardaga í röð og ekkert hefur gerst! enginn sagt af sér eða viðkennt alvarleg mistök

Finnst í fínu lagi að vera með svona mótmæli eins og í gær, ég er sömu skoðunar og einn úr fréttunum í gær "ég er bara brjálaður" (útí ríkisstjórnina og að þau ætli að reyna "humma" þetta fram af sér)

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:06 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þetta er ansi vandmeðfarið.

Mótmæli sem slík hef ég ekkert við að athuga en það er tvennt þarna sem bara má ekki gerast. Alþingi er friðheilagt og það er ekki af ástæðulausu. Það er stjórnarskrár brot að ráðast á Alþingi og hindra störfs þingsins.

Stjórnarskráin er samansafn af algjörum grundvallar reglum sem ekki má ráðskast með og þeir sem að telja sig geta gert það tala ekki í mínu nafni. Það að koma einhverjum frá með ofbeldi mun bara leysa núverandi stjórnvöld af með öðrum enn fastsetnari. Það eru mörg dæmi um það.

Þetta er algjörlega ónauðsynlegt framferði. Það situr á þingi voldugur þingmeirihluti. Það er miklu nær að krefjast þess að samstarfinu verði slitið með því að láta samfylkingu eða sjálfsstæðisflokk heyra það, t.d. í gegnum starfið þar (baklandið) heldur en að fara fram með ofbeldi gegn þinginu.

Í öðru lagi finnst mér ömurlegt að sjá gengið svona að lögreglunni, þeir eru grýttir þarna stanslaust allan daginn fyrir að sinna vinnunni sinni. Ég held að fólk þurfi almennt að reyna setja sig í þeirra spor, svívirtir, skyrpt á þá, grýttir og standandi andspænis fjölda fólks sem er afar reitt.

Það sem ofbeldi af þessu tagi stuðlar að er bara failed state...

Áfram með mótmælin þangað til menn og konur axla sína ábyrgð, en virða stjórnarskránna og láta lögguna í friði.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:08 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
KristoferK wrote:
grettir wrote:
KristoferK wrote:
Ég fordæmi með öllu mótmælendur (skríl) sem beita ofbeldi og þvílíkri villimennsku. Þessir aðilar hylja andlit sitt eins og hinar verstu rottur og beita síðan ofbeldi, skemma eigur almennings og ráðast svo gegn lögreglumönnum sem eru nú bara að sinna starfi sínu... Og það ekki fyrir álitlegt kaup.

Finnst það hreinlega til skammar að þetta fólk haldi því fram að það sé að tala fyrir "hönd þjóðarinnar" - Fyrr skal ég hundur heita. Þessir ónytjungar og spillvirkjar tala ekki fyrir mig og réttast væri að spara piparúðan og ráðast á þessi óargadýr með kylfum, og leyfa þeim svo að sofa úr sér reiðina í köldum, gráum fangaklefa.

Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.

Þú ert eitthvað að misskilja þetta. Skríllinn var allur innandyra. Eyðileggjandi eigur almennings og þykjast tala fyrir hönd þjóðarinnar. Hvers vegna gerir lögreglan ekki neitt í því?


Ég veit nú ekki til þess að þessi umræða snúist um ríkisstjórnina beint og skoðanir okkar á henni koma þessu máli ekkert við. Einnig er það engin afsökun sem réttlætir aðgerðir skrílsins niðrí bæ í dag að segja "en ríkisstjórnin er svo glötuð sklru!?"

En það er hinsvegar pistill í allt aðra umræðu. Því verður hinsvegar ekki breytt að þessar aðgerðir mótmælenda eru með öllu fáránlegar, ólöglegar og bera ekki svo mikið sem vott af siðmenningu. Þarna eru menn með það eitt í huga að brjóta og bramla, maður veit ekki einu sinni alveg hverju er verið að mótmæla... Það er bara þúst verið að mótmæla dæminum og þúst gaurnum sem er bara eitthvað klikk. Það var viðtal ekki fyrir all löngu við einn mótmælenda þar sem hann var spurður útí þetta; Eftir að hafa tekið það mjög skýrt fram að hann var GÍFURLEGA "ósáttur" við stöðuna í landinu þá lagði hann til að Ísland myndi bara fara undir Norðmenn... Hvað er svona fólk að gera þarna, ef ekki bara til að vera með læti og fá einhvern hasar?

Að horfa á þessa apaketti reyna að "mótmæla" fær mig til þess að vona að ríkisstjórnin stígi ekki niður við þessar aðstæður. Ekki vil ég að þessi múgur haldi að hann hafi "unnið"... Ég tek Geir framyfir þessa hryðjuverkamenn.


Tja, ef þú rústar hagkerfi heillar þjóðar - eða horfir á einhverja vildarvini þína gera það án þess að gera neitt í því, þá geturðu ekki pantað einhverja eina tegund af mótmælendum.

Fólk er reitt og um næstu mánaðarmót eru flestir að klára sinn uppsagnarfrest sem misstu vinnuna í kjölfarið á hruninu svo ég á ekki beint von á því að þetta eigi eftir að batna eitthvað sérstaklega nema síður sé.

Ég er að reyna að átta mig á því hvort þú ert lögreglumaður eða eitthvað annað. Ég get vel skilið að lögreglan sé þreytt á því að slatti af fólki mæti á svæðið til að ná sér í hasar, brjóta og bramla.

En ég get ekki skilið hvernig menn geta ennþá tekið upp hanskann fyrir Geir og hans "skríl" svo við höldum okkur við það orð.

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Undir engum kringumstæðum er ástæða fyrir mótmælendur að lenda á móti lögreglu eins og þarna.

Það er hægt að halda öflug mótmæli eins og Íbbi lýsir þeim enn alveg tilgangslaust að stofna til vandamála við lögreglu.

Afhverju er fólk ekki fyrir utan heima hjá Geir að mótmæla?

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:41 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38
Posts: 1035
Aron Fridrik wrote:
vááá.. er hægt að væla meira..


36. grein

Alþingi er friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi.


ekki eins og það sé ekki verið að brjóta lög :roll:


en frelsið okkar? :lol:
og börninn okkar...

ég er að segja það ... það er verið að hóta setja mig í fangelsi fyrir 15 þusund í hraðasekt? hvað stálu þessir gaurar mikil pening af landinu?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Astandid hefur bara versnad, og mun enn versna. Thad finnst nyr kukur a hverjum degi og thad er bara edlilegt ad thjodin lati i ser heyra. Kveikjum bal, berjum a trommur og kokudosir, holdum havær motmæli fyrir utan Althingi og gerum allt vitlaust.
Mer er andskotans sama tho einhverjum finnist thad skitt ad folk missi sig i "reidinni", sokkvandi skip elsku vinir....og nuna er timinn til a gripa ararnar og roa af djofulskap i land. Audvitad tharf ad losa sig vid byrdar a leidinni, stærsta byrdin er klarlega rikisstjornin og stjornendur bankanna.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
JonFreyr wrote:
Astandid hefur bara versnad, og mun enn versna. Thad finnst nyr kukur a hverjum degi og thad er bara edlilegt ad thjodin lati i ser heyra. Kveikjum bal, berjum a trommur og kokudosir, holdum havær motmæli fyrir utan Althingi og gerum allt vitlaust.
Mer er andskotans sama tho einhverjum finnist thad skitt ad folk missi sig i "reidinni", sokkvandi skip elsku vinir....og nuna er timinn til a gripa ararnar og roa af djofulskap i land. Audvitad tharf ad losa sig vid byrdar a leidinni, stærsta byrdin er klarlega rikisstjornin og stjornendur bankanna.


word!

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Þetta er ansi vandmeðfarið.

Mótmæli sem slík hef ég ekkert við að athuga en það er tvennt þarna sem bara má ekki gerast. Alþingi er friðheilagt og það er ekki af ástæðulausu. Það er stjórnarskrár brot að ráðast á Alþingi og hindra störfs þingsins.

Stjórnarskráin er samansafn af algjörum grundvallar reglum sem ekki má ráðskast með og þeir sem að telja sig geta gert það tala ekki í mínu nafni. Það að koma einhverjum frá með ofbeldi mun bara leysa núverandi stjórnvöld af með öðrum enn fastsetnari. Það eru mörg dæmi um það.

Þetta er algjörlega ónauðsynlegt framferði. Það situr á þingi voldugur þingmeirihluti. Það er miklu nær að krefjast þess að samstarfinu verði slitið með því að láta samfylkingu eða sjálfsstæðisflokk heyra það, t.d. í gegnum starfið þar (baklandið) heldur en að fara fram með ofbeldi gegn þinginu.

Í öðru lagi finnst mér ömurlegt að sjá gengið svona að lögreglunni, þeir eru grýttir þarna stanslaust allan daginn fyrir að sinna vinnunni sinni. Ég held að fólk þurfi almennt að reyna setja sig í þeirra spor, svívirtir, skyrpt á þá, grýttir og standandi andspænis fjölda fólks sem er afar reitt.

Það sem ofbeldi af þessu tagi stuðlar að er bara failed state...

Áfram með mótmælin þangað til menn og konur axla sína ábyrgð, en virða stjórnarskránna og láta lögguna í friði.


Sammála Bebe,

Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.

En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.

Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:29 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Þessir bresku hagfræðingar sem hafa komið hafa talað um að næstu vikur og mánuðir séu crucial fyrir Ísland. Viljum við fara að eyða þessum vikum og mánuðum í kosningar og stjórnarmyndun og allt það sem því fylgir?

Ég bara spyr..

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:43 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Schulii wrote:
Þessir bresku hagfræðingar sem hafa komið hafa talað um að næstu vikur og mánuðir séu crucial fyrir Ísland. Viljum við fara að eyða þessum vikum og mánuðum í kosningar og stjórnarmyndun og allt það sem því fylgir?

Ég bara spyr..


Þessi sömu hagfræðingar hafa líka sagt að nauðsynlegt sé að forsætisráðherra, seðlabankastjóri, yfirmenn fjármálaeftirlitsins, fjármálaráðherra o.s.frv. segi af sér til að skapa aftur smá traust og trúverðugleika á íslensku efnahagslífi. Eins og staðan er í dag er trúverðugleikinn ENGINN.
Það er einfaldlega spurning um beinan fjárhagslegan ávinning upp á tugi milljarða á ári að Íslendingar sýni að þeir ætli að laga til hjá sér og það verður bara gert með því að þeir sem bera höfuðábyrgðina axli þá ábyrgð.
Ef okkur tekst að endurreisa trúverðugleika og traust þá hefur það bein áhrif á vaxtakjör okkar og þar sem við erum stórskuldug þá er hér um að ræða tugi milljarða.
Fyrsta skrefið í því ferli er að ráðamenn axli ábyrgð.
Útlendingar hreinlega botna ekki í því að sömu menn fái að halda áfram störfum sínum, sömu menn og hafa lifað í afneitun allt fram að hruninu.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:46 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Schulii wrote:
Þessir bresku hagfræðingar sem hafa komið hafa talað um að næstu vikur og mánuðir séu crucial fyrir Ísland. Viljum við fara að eyða þessum vikum og mánuðum í kosningar og stjórnarmyndun og allt það sem því fylgir?

Ég bara spyr..


Því miður þá erum við tilneydd til að gera það ef engin er látinn segja af sér. Það er það sem er svo ömurlegt í þessu. Ríkisstjórnin hefði mjög líklega fengið frið til að vinna úr málunum ef þeir sem bera ábyrgð á því að hafa ekki aðhafst neitt þegar í óefni stefndi hefði verið látnir segja af sér. Það eru allir sammála sýnist mér um að það verði að skipta út ráðherrum sem bera ábyrgð á þeim málaflokkum sem hrunið varð í, auk FME, seðlabanka (sem er krafa erlendis frá og verður að verða við hvort eð er) og í raun ættu formenn flokkanna að segja af sér líka. En nú stöndum við frammi fyrir því að þurfa að skapa tiltrú á endurreisninni innanlands SEM utanlands.

Þetta er skalinn:

Ábyrgð--------------------------------o----kosningar

Ríkisstjórnin færist nær því að verða að boða til kosninga eftir því sem hún færist fjær því að taka ábyrgð á ástandinu. Ef menn hefðu sagt af sér, þá væri hringurinn (ríkisstjórnin) nær ábyrgðinni og fjær því að þurfa að boða til kosninga.

Þetta vita allir pólitíkusar í þroskuðum lýðræðisríkjum og ef menn segja ekki af sér sjálfir þá er það formannsins/forsætisráðherrans að beita þrýsting.

Hinsvegar, þá verður að fara lýðræðislegar leiðir til að beita stjórnvöld þrýsting.... ofbeldi mun bara festa ríkisstjórnina í sessi því ef hún lætur undan þrýstingi af völdum ofbeldis þá er Ísland bara failed state.

Að auki, þá finnst mér það nú bara ógeð að hugsa til þess að ný ríkisstjórn sæti í umboði ofbeldis. Neyðarstjórn og kosningalögin skoðuð frá grunni - það er eitthvað sem þarf að ná sátt um (án þess að þrýstingi sé beitt með ofbeldi). Ég held að flest allir hljóti að geta fellt sig við það fyrirkomulag.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Last edited by bebecar on Wed 21. Jan 2009 10:49, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:47 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 13. Jul 2006 12:08
Posts: 292
KristoferK wrote:
Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.


Jæja herra lögga, og hvaða lausn telur þú líklegri til árángurs en þessar í gær? Það er búið að reyna löglegu leiðina og ekkert breytist! Taktu hausinn útúr afturendanum á þér og reyndu að ímynda þér hvernig er að missa allt sem þú átt bara af því að nokkrir kallar ákváðu að fara á fyllerí!

jonthor wrote:

Sammála Bebe,

Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.

En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.

Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.


Ertu að reyna að segja að við komum bara sæmilega útúr þessu? Ekki vera heimskur! Hvaða löglegu aðgerðir ert þú að tala um sem þrýstir á stjórnvöld? Senda tölvupóst eða? Fólkið þarna á Austurvelli á ekki rassgat allt Sjálfstæðisflokknum að þakka sem þú greinilega dýrkar!


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 15  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group