Phoenix wrote:
gunnar wrote:
Ég tel bara einfaldlega að íslendingar séu ekki hæfir til þess að reka þetta land
Þar gæti ég ekki verið meira sammála, það hefur allaveganna sýnt sig alveg frá því að við öðluðumst sjálfstæði að flokkadrættir og fjölskyldutengls virðast yfir lög og almennt siðferði hafið.
Úff úff, er fólk ekki farið að verða dálítið dramatískt hérna - að við séum óhæf til að reka þetta land og ég veit ekki hvað og hvað.
Það er kreppa, hún er erfið og það sumir eru ábyrgari fyrir henni en aðrir og auðvitað er rétt að skoða það mál ofan í kjölinn. En á sama tíma hefur okkur tekist að halda lífsgæðum fáránlega háum í töluverðan tíma (nenni ekki að hlusta á raus um hátt verðlag og eitthvað slíkt kjaftæði - hvar annarsstaðar í heiminum hefur meðal fjölskyldan getað keypt sér nýjan Land Cruiser á þriggja ára fresti?). Það má einnig horfa á þetta þannig að ef það væri eitthvað vit í okkur sem búum hérna og ef við hugsuðum líkara fólkinu á meginlandinu þá ættum við geysilega mikinn uppsafnaðan sparnað þar sem vextirnir hafi verið með eindæmum háir og gætum þannig mætt þessu ástandi með stóískri ró. Við gerðum það ekki og þannig má eins halda fram að við séum ekki hæf til að búa hérna þar sem við erum svo vitlaus - og þá er dramatíkin komin í efstu hæðir.
Og þegar ég heyri fólk sem hefur kappkostað við að greiða sem minnstu skatta með því að vinna svart og/eða lifa í gegnum skúffufyrirtæki hneykslast á spillingu meðal stjórnmálamanna langar mig til að æla - hræsnin er svo ofboðsleg!
P.S. Þessi molotov umræða er líklega það vitlausasta sem ég hef heyrt inni á þessu spjalli sem mér finnst alla jafna vera alveg þrælgott.