Angelic0- wrote:Jæja strákar, þetta var nú kannski fullgróft!
En rétt skal vera rétt, 11-12ltr á hundraðið er ekki fræðilegur nema þú komist alla leið í hfj án þess að lenda á rauðu og án þess að lenda í umferðarteppu!
Ég ætla formlega að biðja þig afsökunar fyrir hönd kraftsins (og auðvitað sjálfs míns) og biðja þig að setja auglýsinguna aftur inn!
Vonandi tekuru afsökunarbeiðnina gilda.
Ég vil koma því á framfæri að Angelico hefur ekkert umboð til þess að gera eitt né neitt fyrir hönd kraftsins.
BMWKraftur hefur ekki ekki ennþá séð ástæðu til að biðja þennan aðila formlega afsökunar. Ef svo verður, þá gerist það ekki á þann hátt að óbreyttur meðlimur kraftsins geri það, það verður þá stjórnin sem gerir það og meðlimur hennar setur það þá inn.
Varðandi þetta og önnur dæmi þess að höfundar greina séu ósáttir og taki í fússi út auglýsingar sínar, þá finnst mér það miður.
En það er ekki þar með sagt að það sé við okkur notenda kraftsins að sakast. Ef fólk getur ekki tekið þeim ummælum sem koma fram og eru byggð á reynslu og rökum, þá getum við ekki tekið á okkur að við okkur sé að sakast að viðkomandi gefist upp.
Það er ekkert særandi í þessum skrifum sem voru höfð þarna frammi, ekkert verið að fara illa með viðkomandi osfrvs. Meirihlutinn á ekki að hrökkva til þó einn aðili segi Böhhh. það er meirihlutinn sem ræður og hann segir að það sé ekki eðlilegt að ná svona bíl í eyðslu niður í 11-12 ltr. á hundraðið.
Ég ætla ekki að rengja ÞENNAN aðila með eyðslu á ÞESSUM bíl. Það má vera að með ótrúlegum hætti hafi honum tekist þetta. En það er þá ekki keyrslumáti sem er ekki eðlilegur.
Ég persónulega átti svona bíl í 1 1/2 ár og þekki það af eigin raun. Bæði að hafa kvenmann sem hefur engan áhuga á að gefa í á honum og einnig mig að nota hann í langkeyrslu. Svona bíll er í 10 lítrum á 120 í langkeyrslu og því skil ég ekki að hægt sé að koma honum í það sama í innanbæjarakstri.
EN... ókei allt í lagi að viðkomandi haldi því fram. Hann má það alveg án þess að verða hent út af þessu spjallborði, hér má alveg hafa sínar skoðanir! En það er líka hluti af því sem meðlimir kraftsins eru ánægðir með, að hér er öll vitleysa ekki tekin góð og gild. Ef einhverju er haldið fram sem meirihlutinn er ekki sammála, þá er látið í sér heyra og það leiðrétt.
Það er ekki sjálfsagður hluti að hver sem er geti sagt allt hérna á þessu spjalli og það fái að standa óáreitt. Það á enginn höfundur rétt á því að ekki sé póstað inn í þráðinn hans. Þetta spjallborð er fyrir alla spjallverja, þ.a.l. verður stundum að hampa fjöldanum og þá hallar á einstaklinginn.
Ég skora á þennan aðila að sjúga upp í nefið og smella inn aftur textanum sem hann var búinn að setja inn, eða búa til nýjann þessvegna. Það er ekkert að því að ræða hlutina. Þetta hefur allaveganna haldið þræðinum hans uppi sem er söluvænt. Það græðir enginn á því að vera í fýlu, hvorki hann né við, það er leiðinlegt að vera í fýlu!
